Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.07.2002, Qupperneq 23

Freyr - 01.07.2002, Qupperneq 23
byggingu (vatnsrásir) sem íyrir er. Áður en hafist er handa þarf að hafa verið þurrt í nokkum tíma þannig að allt laust vatn sé horfíð úr jarðveginum. Ekki er nóg að yfírborðið sé þurrt heldur þarf að skoða jarðveginn í losun- ardýpt og ganga úr skugga um að hann sé það þurr að við losun brotni hann upp en smyrjist ekki saman. I langvarandi vætutíð get- ur vissulega verið erfítt að hitta á réttan tíma, sérstaklega í þéttum og blautum jarðvegi, en víða eru aðstæður þannig að ekki er hægt að reikna með réttum skilyrðum á hverju ári. Erlend reynsla Erlendar tilraunaniðurstöður sýna að jarðvegslosun (subsoil- ing) skilar umtalsverðum árangri í bættri framræslu og meiri upp- skeru í þeim tilvikum þar sem jarðvegur var orðinn þéttur og/eða framræslu var ábótavant. Jafnframt kemur fram að lítill árangur er af jarðvegslosuninni þar sem jarðvegsskilyrði eru góð. Notkun tækisins við aðstæður þar sem loftun og framræsla verður ekki bætt vel- dur því að sumir fá vantrú á þessari tækni. Einnig gerist það að stundum fá menn vantrú á tækinu þar sem því er ranglega beitt eða það notað þar sem aðrir þættir en þéttur jarðvegur og léleg framræsla valda minnkandi uppskeru. Erlendis er jarð- vegslosunin nær eingöngu notuð í steinefnajarðvegi en lítið sem ekkert á mýrlendi. Sérstaklega þykir aðferð þessi góð þar sem bijóta þarf upp þunn en þétt lög í jarðveginum, en lög þessi geta bæði verið í jarðvegi ffá náttúrunnar hendi eða myndast vegna vélaumferðar, en þar em einna þekktust þéttu lögin í botni plógfara þar sem reglulega er plægt. Mynd 3. Jarðvegslosunartæki (subsoiler/grubber) eru fáanleg I mismunandi geróum. Hér sést tæki sem hefur vökvalyftan valta aftan á tækinu til þess að jafna ójöfnur sem oft myndast. Innlend reynsla Jarðvegslosunartæki hafa fremur lítið verið notuð hér- lendis. Helst má nefna að við ffum- vinnslu lands hefúr dálítið verið gert af því að losa um jarð- veginn með sk. „rip- per“ tönnum sem tengdar eru við jarð- ýtu. Vafalaust er slíkt til bóta en erfitt er að koma þessari aðferð við nema í upphafi þegar land er brotið eða ef jarðýtu er beitt við endurræktun. Hafa skal í huga að hér koma örugglega upp sömu atriði og erlendis sem kunna að fæla menn ffá notkun þessara tækja. Nýjustu gerðir af jarðveg- slosunartækjum hafa verið í notk- un hérlendis í nokkur ár. Þeir sem reynt hafa láta vel af notkun þes- sarar tækni, landið þomar mun fyrr á vorin, gróður er mun fyrr á ferðinni og meiri uppskera er af landinu að þeirra mati. Við losun með tækinu getur orðið örlítil röskun ájarðvegsyfirborðinu. Best er að ffamkvæma losunina síð- sumars eða að hausti, landið látið standa þannig yfir veturinn og valtað vorið effir. Þá er komin reynsla fyrir því að tækið hentar mjög vel til að ræsa fram úr einstökum bleytublettum og spara þar með um- fangsmeiri aðgerðir, eða losna við bleytubletti sem lengi höfðu verið til vandræða en ekki vom til aðgengileg tæki til aðgerða. Kýfing Kýfing er það kallað þegar til- tölulega flatt jarðvegyfirborð er mótað eða því breytt þannig jafn yfirborðshalli myndist. Tilgangur þessa er að losna fljótt og vel við úrkomu eða leysingavatn eftir yfirborði og beint út í skurð. Mikilvægi kýfingar er mest þar sem jarðvegur er þéttur og hleyp- ir vatni lítt eða ekki í gegn, þar sem frost í jörðu hindrar niðursig vatns og til þess að koma í veg fyrir klakamyndun á yfírborði sem getur valdið kali. Þótt kýfing sé nauðsynleg á öllu flötu landi Mynd 4. Jarðvegslosunartæki þar sem velja má hversu margir losunararmar eru notaðir hverju sinni. Freyr 6/2002 - 23 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.