Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.07.2002, Qupperneq 24

Freyr - 01.07.2002, Qupperneq 24
Mynd 5. Hér hefði þurft að taka tillit til undirlagsins áður en framræslu- skurðir voru grafnir. Miðjan í svona spildu verður sifellt vandamál nema til komi sérstakar og dýrar aðgerðir. Mynd 6. Áður en kýfing og jarðvinnsla fer fram er upplagt að urða grjót, möl, leir og annað óæskilegt efni sem komið hefur upp úr skurðum. Mynd 7. Áður en land er kýft er nauðsynlegt að plægja eða plógherfa svæðið á milli ruðninga. Jarðvinnsta fer síðan fram á hefðbundinn hátt að kýfingu lokinni. Mynd 8. Lágmarkskýfing er 2%. Það samsvarar því að bakkinn sé tekinn niður um 25 cm og miðjan hækki um 25 cm á 50 m breiðri spildu. Eftir því sem meira leggst til af efni við uppmokstur úr skurðum eða með öðrum hætti, (hólar, hæðir, aðflutt efni), má að sama skapi draga úr efnistöku á skurðbökkum. Mynd 9. Kýfing má allt eins vera nær öðrum hvorum skurðbakkanum ef það hentar betur vegna efnisflutninga. Ef kúfurinn er á 50 m breiðri spildu og er 12,5 m frá öðrum bakkanum þarf hæðarmunurinn á skurðbakkanum fjær að vera 75 cm. Ekki þarf að taka bakkann svona mikið niður ef nægjanlegt efni I 75 cm hæðarmun fæst með öðrum hætti. I 24 - Freyr 6/2002 þá á það sérstaklega við um mýr- lendi. Sérstaklega er mikilvægt að kýfa gömul mýrartún sem hafa sigið og þéttst og gera það þá um leið og endurunnið er. Alltaf er nauðsynlegt að taka tillit til þess efnis sem fýrir hendi er og notað er í kýfínguna. Forðast ber að dreifa of miklum leir, set- lögum ýmiss konar og öðru óæskilegu efhi um yfirborð spild- unnar. Sé slíkt efni fýrir hendi þarf helst að meðhöndla það sér- staklega (sjá siðar). Fyrir kýfíngu er mikilvægt að vinna landið, annað hvort að plægja eða plóg- herfa. Hæfileg kýfíng er að yfír- borðshalli sé um 2%. Hins vegar þarf að taka tillit til þess þegar kýft er að jarðvegurinn sígur. Því getur þurft að kýfa meira en þessu nemur í upphafí til þess að endanlegur yfirborðshalli verði hæfilegur. I Noregi er oft ráð- lögð meiri kýfíng eða allt að 5%. Astæða þess að hér er miðað við minni yfirborðshalla er sú að allur tilflutningur á efni er dýr. Einnig að rotnun mýran- na vex eftir því sem neðar dre- gur og ef of mikið er tekið úr skurðbökkum er oft komið niður í meira ummyndaðan/rotnaðan jarðveg sem hefur lítið burðar- þol. Slíkt getur aftur skapað tals- verðan vanda varðandi umferð á skurðbökkum. Jarðvegurinn er breytilegur og því skal ávallt taka tillit til aðstæðna á hverjum stað Þá getur það skapað vanda ef jarðvegsgrunnurinn er mishæð- óttur. Hafa þarf slíkt í huga strax frá upphafi þegar lega og stefha skurða er ákveðin. Mishæðóttur jarðvegsgrunnur getur valdið því að ekki næst réttur og hæfilegur yfirborðshalli fyrr en landið hefur verið endurunnið einu sinni til tvisvar. Land, sem augljóslega á eftir að síga, má nota undir græn-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.