Freyr

Volume

Freyr - 01.07.2002, Page 28

Freyr - 01.07.2002, Page 28
í ræsisdýpt þarf jarðvegurinn að vera rakur en ekki gegnblautur, eða á því stigi að allt laust vatn hafi sigið úr og að jarðvegurinn sé þvalur vegna hárpipuvatnsins. I landi, sem ræst er með opnum skurðum, næst heppilegt rakastig yfírleitt eftir að þurrt hefur verið í nokkum tíma. Nauðsynlegt er að kanna rakastig bæði í yfir- borði og ræsisdýpt áður en hafíst er handa. I langvarandi vætutíð getur vissulega verið erfítt að hitta á réttan tíma, sérstaklega í mjög blautum og þéttum jarð- vegi. Fari svo að kílræslan takist ekki fullkomlega við fyrstu til- raun, t.d. vegna þess að landið var of blautt, getur verið nauð- synlegt að bæta úr því með kíl- ræslu á sama stað við hlið fyrri ræsa ári síðar. Ef mikil úrkoma kemur á nýræstan jarðveg getur það spillt ræsunum, best er ef þau ná að standa í 1 -2 vikur í þurru verðri áður en á þau reynir. Lagning ræsa Við lagningu kílræsa raskast yfírborð jarðvegsins lítið sem ekkert. Að vísu þarf að varast spól og rask af völdum hjólfara og þeirrar umferðar, sem kílræsl- unni fylgir, en við rétt rakaskil- yrði jarðvegs er hættan á slíku í lágmarki. Alitlegt getur verið að kilræsa tún, sem farin eru að blotna upp, og reyna þessa aðferð áður en ráðist er í dýrari fram- kvæmdir. Eins er kjörið að kíl- ræsa einstaka bleytubletti eða minni spildur (ef jarðvegur leyf- ir) og sjá hversu vel það dugar áður en lengra er haldið. Millibil og halli Hæfilegt er að leggja kílræsin með 4-6 metra millibili, þó að stundum tíðkist það að ræsa þétt- ar. Afar mikilvægt er að leggja ræsin með jöfiium og góðum halla og alls ekki má koina lykkja sm Krókur aftan úr kólfinum. Þessi útfærsla é að tryggja vatnsstreymi inn í ræsið og er notuð sums staðar erlendis. Ekki hefur á það reynt hér á landi hvort krókurinn er til bóta, eða hvort vandræði fylgja þvi ef hann tendir í trefjum eða seigu rótarkerfi jurta í mýrlendi. inn jarðveg eða þar sem laus efni eða blettir koma fyrir sem inn- skotslög. Bæði hérlendis og er- lendis hefúr það komið í ljós að þessi aðferð er ágæt þar sem hún á við. Jafnframt hefúr reynslan sýnt að þar sem aðferðin hefúr verið gagnrýnd hefúr hún verið notuð við aðstæður sem henta ekki. Víðast hvar hérlendis eru mýrartún orðin það gömul að jarðvegurinn er orðinn þéttur og líklegur til þess að henta til kíl- ræslu. Á móa- eða sendinn jarð- veg henta þau ekki. Alltaf skal þó kanna vel þann jarðveg sem kíl- ræsa á áður en ráðist er í fram- kvæmdir. Rakastig jarðvegs OG KÍLRÆSLA Við kílræslu er mikilvægt að rakastig jarðvegsins í ræsisdýpt sé heppilegt. Ekki skal plægja gegnvotan jarðveg. Yfírborð jarð- vegsins þarf að vera allvel þurrt. Kilræsi eru talsvert notuð í Ástraliu. Myndirnar sýna tvær algengar gerðir kílplóga þar í landi. j 28 - Freyr 6/2002

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.