Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.2002, Side 35

Freyr - 01.07.2002, Side 35
tímabils í íslenskri landbúnaðar- sögu sem lítið hefúr verið rann- sakað (sjá þó Asgeir L. Jónsson 1975) og ástæða virðist vera til að varðveita. „Égsleppi fegurð náttúrunnar og hinni fögru útsjón til Alpa- Jjalla sem blasa við en fer með lesandann rakleiðis í jjósið, en það er hið fallegasta sem ég hef séð, og 30-40 nautgripir á bási. “ Guðbrandur Vigfiisson 1860. Ferðasaga úr Þýzkalandi. Því hefúr verið haldið fram að Islendingar hafi lengst af einung- is metið náttúruna út frá nytja- sjónarmiði og að þeir hafi engan greinarmun gert á náttúrufegurð og gróðursæld. Fögur náttúra var búsældarleg sveit og búsældarleg sveit var fogur náttúra. Fræði- menn hafa raunar ekki verið sam- mála um þá náttúrusýn sem birt- ist í fomum ljóðum og kvæðum og hafa ýmist talið hana endur- spegla hreint nytjamat eða næma tilfinningu fyrir hreinni náttúru- fegurð (sjá umræðu hjá Þorvarði Amasyni 1994). Ég notaði hér orðið náttúmsýn án þess að skýra nánar merkingu þess. Þorvarður Ámason (1994), sem skrifað hef- ur merka grein um náttúmsýn Is- lendinga, segir að náttúmsýn manna verði “til við sammna þess sem raunvemlega ber fyrir augu og þess sem sjáandinn telur sig hafa greint”. Þar ræðir hann hvemig tilkoma landslagsmál- verksins og fýrstu íslensku mál- aranna, um og eftir aldamótin 1900, hafi valdið straumhvörfúm í náttúmsýn Islendinga. Erlendis verður þessi vitundarvakning nokkm fyrr og er upphaf hennar oft tengt rómantísku stefnunni í bókmenntum og listum, en hún sprettur líka upp úr breyttum þjóðfélagsaðstæðum, s.s. fólks- fjölgun í borgum, og öðmm af- leiðingum iðnbyltingarinnar. Samhliða þessari viðhorfsbreyt- ingu vaknar áhugi á náttúmvemd. Bandaríkjamenn stofnuðu fyrsta þjóðgarð sinn í Yellowstone árið 1872, og um aldamótin 1900 höfðu verið mynduð samtök um vemdun landslags og fagurra staða í ýmsum Evrópulöndum. Líklega vakti Matthías Þórðar- son, síðar þjóðminjavörður, fyrst- ur athygli á nauðsyn náttúm- vemdar á Islandi í grein í Skími árið 1907: “Vemdun fagurra staða og merkra náttúmminja” (Páll Líndal 1984). „Engið, jjöllin, áin þín - yndislega sveitin mín! - „ Sigurður Jónsson frá Amarvatni. Ekki þarf að leita til að átta sig á því hversu snar þáttur róman- tískar náttúmlýsingar á íslenskum sveitum em í skáldskap síðustu tveggja alda. Hver sveit á sín skáld sem mært hafa fjöllin og dalina og karlakórar lofa enn á hátiðlegum stundum. Hversu hagnýtt sem fegurðarskynið kann að hafa verið, er varla hægt að draga í efa einlægar og djúpar til- finningar skáldanna til sinna bemskuslóða og átthaga. En hvað er falleg sveit? Landslag á Islandi er talsvert ólíkt eftir landshlutum; þröngir dalir með háum, bröttum fjöllum á Norðurlandi og Aust- fjörðum, flatneskja með ijarlæg- um fjallahring á Suðurlandi, en jöklar og sandar ramma inn landslag í Skaftafellssýslum. Er hægt að greina almenna drætti i landslagi sem fólki finn- ast aðlaðandi, - eða skiptir upp- vöxtur fólks, aldur, menntun eða reynsla mestu við mótun smekks? Engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu hér á landi en e.t.v. má líta til Noregs þar sem norskt landslag er kannski það sem helst má bera saman við íslenskt. Stmmse (1994a,b, 1996) lét tæplega 200 manna hóp gefa 60 ólíkum litskyggnum af land- búnaðarlandi einkunn. Helmingur myndanna sýndi hefðbundið landbúnaðarlandslag, hinn helm- ingurinn nútima landbúnaðarland og var hvorum helmingi skipt í 5 hliðstæða efnisflokka (einn sýndi t.d. fólk við vinnu, í öðmm vom byggingar í forgmnni, í þriðja mannvirki s.s. vegir eða brýr). Niðurstöður vom afdráttarlausar. Hæstu einkunn fengu annars veg- ar myndir af hefðbundnu land- búnaðarlandslagi með gömlum byggingum, hins vegar myndir af þar sem íjölbreytt náttúra var mest áberandi, t.d. blómskrýdd engi. Lægstu einkunn fengu ann- ars vegar myndir með nútíma landbúnaðartækjum og bygging- um, og hins vegar rnyndir af greniskógi. Einnig var reynt að greina hvaða einkenni eða mynst- ur hefðu áhrif á upplifunina. I landi þar sem náttúra var í fyrir- rúmi, einkenndust aðlaðandi myndir af samræmi eða samfellu (coherence), landið var fremur opið, og fjölbreytt. “Aldur” landslagsins virtist líka skipta máli (gamalt var fallegra) og flókið eða margleitt (complexify) fallegra en en einsleitt og fólki fannst aðlaðandi landslag sem virtist búa yfir dulúð og gaf fyrir- heit um nýja upplifún og uppgötvanir (mystery). ÍSLENSKT BÚSETULANDSLAG 21. ÖLD? Island er mikilúðugt land, og víðast hvar er það náttúran sjálf sem mestu ræður um svipmót sveita. Ég ræddi áðan að það hefðu einkum verið tvö tímabil í sögu búsetunnar sem voru afdrifa- rík við að móta landið, skóga- eyðing fljótlega eftir landnám og ífamræsla á síðustu 50 árum. Eru í sjónmáli breytingar sem gætu Freyr 6/2002 - 35 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.