Elektron - 01.09.1916, Page 16
86
ELEKTRON
skrift hans þess Ijósan vott — og er
við fyrst kyntust honum, var hann
stöðvarstjóri í föðurlandi sínu, Noregi,
en hafði jafnframt á hendi línulagn-
ingar. Við það starf hafði hann sýnt
svo mikinn dugnað, að yfirmenn
hans, símasijórnin norska, gátu ekki
mælt með öðrum frekar til þess að
takast á hendur hið afar vandasama
starf, að leggja fyrstu landssimalín-
una á íslandi; línu sem náði eftir
landinu endilönga; og Forberg brást
ekki vonum manna í því efni.
Síðan 1906 hefir Forberg stjórnað
landssímanum og er óþarfi að fjöl-
yrða um það starf hans hér, en næg-
ir að vitna í skýrslur landssímans,
sem sýna Ijósast hvernig honum hefir
farist það starf úr hendi. En eins
og oft vill brenna við, hefir það starf
verið misjafnlega þakkað og eigi hafa
menn ávalt tekið nægilegt tillit til
þess, hve sýnilega ant Forberg hefir
látið sér um að halda útgjöldum sím-
ans sem lægstum, þrátt fyrir gífur-
lega tekjuaukningu.
Þegar nú Forberg á þessum degi
lítur yfir 10 ára starf sitt við lands-
símann, hefir hann eigi ástæðu til
annars en að vera ánægður með á-
Jón Olafsson.