Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1983, Side 9

Símablaðið - 01.12.1983, Side 9
engin vandkvæði voru á að fá afleysara, þar sem fyrrverandi tálsímaverðir í Borgarnesi hjálpuðu upp á sakirnar. En starfsfélagar okkar voru allar af vilja gerðar, að leggja sitt af mörkum til þess að við kæmumst á námskeiðið. Við héldum til á Hótel Heklu og greiddum gistinguna með dagpeningum okkar. Við fengum heldur betri fyrirgreiðslu hjá hótel- stjóranum en ella, vegna þess hve um langan tíma var að ræða. Þá notuðum við okkur mötuneyti Pósts og Síma varðandi morgun- kaffi og hádegismat, en kvöldmatur var á lausu, annað hvort snarl, eða lifað á kunn- ingjunum. Við héldum okkar mánaðarlaun- um og vorum mjög ánægðar með það. Sú hugmynd mun hafa komið fram hjá skóla- nefndinni, að bjóða talsímavörðum utan af landi upp á bréfanámskeið og olli það mikilli óánægju meðal taþsímavarða. Ég álít af feng- inni reynslu, að bréfaskóli geti aldrei komið í stað þess að ganga í skóla. Námið mun aldrei nýtast eins vel. Það er eins og vítamíngjöf að takast á við ný verkefni, með nýjum, en þó gömlum félögum. Því raddirnar þekktum við, þótt ekki hefðum við sést fyrr. Og hugmyndir okkar um hverja aðra stóðust sjaldnast. Það var eistaklega góð og mikil samstaða meðal okkar, enda má segja að við höfum náð saman í fyrsta kaffitímanum. Lifnaði mjög yfir kaffisalnum, þegar við komum þar inn, enda talsímaverðir í heildina sérlega glaðvær hópur. Námskeiðið byggðist upp á þrettán náms- greinum og stóðum við að sjálfsögðu mis- jafnlega vel að vígi í hinum ýmsu fögum. En okkur þótti sem ætla hefði mátt meiri tíma fyrir sum fögin, eins og t.d. erlend tungumál og íslensku, en minni tíma í aðrar greinar. Þá þótti okkur vanta mjög fræðslu i landafræði, ekki síst um okkar eigið land. Þá söknuðum við talsímaverðir utan af landi mjög, að fá ekki vélritunarkennslu og fannst okkur þar fram hjá okkur gengið, þar sem talsímaverðir í Reykjavík hafa fengið slíka kennslu. Von- umst við eftir að á því verði ráðin bót. Einnig mætti gjarna kenna blokkskrift. Þá álitum við einnig, að heppilegra væri að hafa nám- skeiðið samfellt, í stað þess að hafa það í Guðrún María Harðardóttir. tvennu lagi, því það er dálítið átak, að taka sig upp aftur og byrja á nýjan leik. Það er mikið álag fyrir fullorðið fólk, sem ekki hefur gengið í skóla í mörg ár, að standa allt í einu frammi fyrir því, að þurfa að taka próf. Próf eru að sjálfsögðu ágæt á sína vísu, en ég veit ekki hvort þau eiga heima á slíku námskeiði sem þessu, en það kom fram, að margar stúlkurnar voru á móti prófum ein- göngu af hræðslu. Það var mjög fróðlegt að sjá hinar ýmsu deildir Stofnunarinnar, kynnast störfum þeirra og aðbúnaði og vita hvar þær eru til húsa. Slíkt færir fólk nær hvert öðru. Að lokum vil ég gjarnan koma á framfæri þakklæti okkar talsímavarða í Borgarnesi, fyrir að fá að taka þátt í þessu námskeiði og á F.Í.S. heiður skilið fyrir að hafa komið þessum stóra áfanga áleiðis. NÁMSSKRÁ FYRIR TALSÍMAVERÐI í STARFI 1983 íslenska 30 klst. Danska 60 — Enska 60 — Bókfærsla 40 — Símareglugerð 40 — Réttindi og skyldur 4 — Saga, rekstur og skipulag 6 — Meðferð reiknivéla 10 — Skýrslugerð 10 — Póstreglugerð 30 — Tölvur 12 — Símatækni 20 — Mannleg samskipti 8 — Samtals 330 klst. SÍMABLAÐIÐ 83

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.