Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 14

Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 14
Þorkelsson, verkfræðingur, núverandi fram- kvæmdastjóri Tæknideildar P. & S. og Einar Pálsson, fyrrverandi skrifstofustjóri P. & S., voru byrjaðir að vinna hjá Flugmálastjórn- inni og hvatti Einar mig til að fara að starfa þar. Þegar ég kom til Reykjavíkur þá báðu Guðmundur J. Hlíðdal og Gunnlaugur Briem, yfirverkfræðingur, mig að vera áfram hjá Stofnuninni og buðu mér verkstjórastöðu í Símatæknideild. Ég tók þessu starfi, sem var fólgið í því að yfirfara og lagfæra jarð- símastrengi, sem Síminn hafði yfirtekið frá Varnarliðinu. Hjálmtýr Jónsson, sem nú er símaverkstjóri í Keflavík, var með mér í þessu starfi. Árið 1948 fór ég svo að vinna á skrif- stofu Símatæknideildar og vann þar að áætl- unum um jarðsímalagnir í kaupstöðum og kauptúnum. Yfirmaður minn var Jón Skúla- son, verkfræðingur, núverandi Póst- og símamálastjóri. í ársbyrjun 1958 var ég skipaður skrif- stofustjóri Bæjarsímans. Ég gegndi því starfi til seinni hluta ársins 1974, að ég var settur bæjarsímastjóri, þegar Bjarni Forberg lét af störfum vegna aldurs. I ársbyrjun 1975 urðu miklar skipulags- breytingar á Póst- og símamálastofnuninni. M.a. var stöðu Bæjarsimastjóra breytt í stöðu Símstjórans í Reykjavík. Starfssvið Símstjórans varð umfangsmeira, tók við rekstri fleiri deilda. Nú starfa undir stjórn Símstjórans rösk- lega 300 starfsmenn. Staða Símstjórans var auglýst laus til um- sóknar. Ég var meðal umsækjenda og var mér veitt staðan frá 1. apríl 1975. — Þú hefur lengi verið ritstjóri símaskrár- innar, hvenær tókstu það starf að þér? Árið 1952 hætti Ólafur Kvaran, ritsíma- stjóri, sem ritstjóri simaskrárinnar að eigin ósk. Þá var okkur Magnúsi Oddssyni, síma- fulltrúa, falin ritstjórnin. Þegar Magnús lét af störfum vegna aldurs 1962, tók ég einn við ritstjórn og hefi annast síðan. — Það hafa orðið miklar breytingar á vinnslu símaskrárinnar á liðnum árum, er það ekki rétt? Jú vissulega, símaskráin var sett í blýsats þar til 1967. Þá var breytt yfir í nýja tækni, sem er ,,Fotolist“. Árið 1978 var enn breytt og þá í tölvusetningu, sem er mikil hagræðing frá ,,Fotolist“-vinnslunni. — Að lokum Hafsteinn, hvað er þér nú efst í huga er þú lítur yfir farinn veg? Þar er fyrst að telja vígslu Landssimans 29. september 1906 með ritsímasambandi við umheiminum, sem Hannes Hafstein fyrsti Is- lenski ráðherrann barðist fyrir að koma á af miklu harðfylgi. Þá má segja að einangrun íslands hafi verið rofin við umheiminn, þegar sæsímalögn frá Skotlandi um Færeyjar til Seyðisfjarðar og landssímalögn til Reykja- víkur var lokið. Hannes Hafstein leitaði til norsku síma- stjórnarinnar um að fá hæfan mann til að skipuleggja og stjórna símalögninni frá Seyðisfirði til Reykjavíkur. Skyldi verkinu lokið á einu sumri. Olav Forberg, norskur símaverkfræðingur, varð fyrir valinu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður vegleysur og yfir heiðar að fara, tókst O. Forberg að skipuleggja og stjórna verkinu svo vel, að því var lokið á tilsettum tíma. O. Forberg var ráðinn fyrsti Landssímstjórinn á íslandi. Hann gegndi því embætti til 1927, er hann andaðist um aldur fram 55 ára gamall. Frá stofnun Landssimans hafa orðið mikl- ar framfarir á tæknisviðinu, eða öllu heldur tæknibylting. Seinasta stórátakið er uppsetn- ing jarðstöðvarinnar Skyggnis og í sambandi við hana sjálfvirka útlanda símstöðin í Múla, sem tekin var í notkun 1980. Nú er mögulegt að velja sjárfvirkt símtöl frá íslandi við allar heimsálfur. Nú er langt komið að tengja alla símnot- endur frá ystu nesjum til innstu dala við sjálf- virka simakerfið. í því sambandi skal þess getið að fyrstu sjálfvirku símstöðvarnar á ís- landi voru teknar í notkun 1932. Það var í Reykjavík og Hafnarfirði. Þessa dagana er verið að tengja fyrstu staf- rænu rafeindasímstöðina hér á landi, það er í Múla við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Stöðin er 3000 símanúmer. Frá þeirri símstöð verða tengdar útstöðvar, tvær stöðvar á Mið- bæjarsvæðinu, hvor 1000 númer, ein á Árbæjarsvæðinu 1000 númer. Þá verða einn- 88 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.