Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 15

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 15
ig tengdar útstöðvar í Breiðholti, Kópavogi og í Hafnarfirði, hver stöð fyrir 500 númer. Þetta eru stöðvar fyrir alls 7500 símanúmer. Aukningin verður þó ekki fleiri en 5500 síma- númer, þar sem 2000 númer af eldri símstöð- inni í Múla verða tekin niður og notuð ann- arsstaðar. Þessum framkvæmdum á að ljúka 1984. Númeraaukning á Reykjavíkursvæð- inu verður 9.4%. Þá ætti hinn alvarlegi núm- eraskortur að hverfa a.m.k. næstu tvö árin og vonandi um alla framtíð, ef nægjanleg fjárveiting fæst til að stækka símakerfið eftir þörfum hverju sinni. Að lokum vil ég nota tækifærið og óska Póst- og símamálastofnuninni allra heilla og velgengis í framtíðinni. Öllum starfsmönnum Stofnunarinnar óska ég árs og friðar. Símablaðið þakkar Hafsteini fyrir viðtalið. Þess má geta að hér áður fyrr tók hann mikinn þátt í félagsstarfi F.Í.S. og hann hefur alla tíð verið velunnari Símablaðsins. Fyrir það viljum við einnig þakka Hafsteini. H.H. Úr Símablaðinu frá 1945: Vann TFA orustuna um Norður-Atlantshafið? Það er ekki lengur neitt hernaðarleyndar- mál — og hefir raunar aldrei verið — að sjó- herinn brezki settist að í loftskeytastöðinni í Reykjavík (TFA) á hvítasunnudag 1940 og sat þar og notaði radíótæki stöðvarinnar í tæp fjögur ár. Vinnuskilyrði starfsmanna TFA voru oft erfið í þessu ,,tvíbýli“ og þótt ,,sambúðin“ hafi yfirleitt verið sæmileg og báðir aðilar sýnt sanngirni og tilhliðrunarsemi varð naumast hjá smávægilegum árekstrum kom- ist. En þessi grein á ekki að fjalla um þá hlið málsins heldur um það, sem fæstir ,,óvið- komandi“ hafa gert sér ljóst, hve þýðingar- mikinn þátt TFA átti í fjarskiptaviðskiptum bandamanna í Norður-Atlantshafi. Þegar hernámsliðið, sem hingað kom 10. maí 1940 sá, að TFA var betur búin radíó- tækjum, bæði til sendingar og viðtöku, en hliðstæðar loftskeytastöðvar í Bretlandi, vildu þeir ekki líta við þeim tækjum, sem þeir höfðu meðferðis, enda hefðu þau ekki komið að verulegum notum hér á landi. Og þær fjar- skiptastöðvar, sem þeir komu sér upp hér voru eiginlega ekki tilbúnar til viðskipta fyrr en eftir dúk og disk. TFA varð þess vegna einskonar radiómiðstöð fyrir herskipaflota og skipalestir bandamanna á Norður-At- lantshafi og við strendur íslands. Bretarnir létu þá skoðun oft i ljós við mig að margt hefði farið á annan veg hefði TFA ekki notið við, og man ég alveg sérstaklega eftir því þegar H. M. S. ,,Hood“ var sökkt fyrir norðvestan ísland og eltingaleikurinn um ,,Bismarc“ — bezt búna orustuskip ver- aldar — hófst. Þá varð einum sjóliðsforingja Breta það að orði, að ,,TFA hefði unnið or- ustuna um Atlantshafið.“ En TFA vann líka oft aðrar orustur upp á líf og dauða. Á erfiðustu stríðsárum bandamanna á haf- inu, 1941 —1943, náði TFA oft, og stundum daglega, neyðarkalli frá sökkvandi skipum. Þessi neyðarköll sendi svo TFA áfram til ann- arra skipa og flugvéla. Þannig átti TFA þá, eins og svo oft áður, óbeinan þátt í björgun óteljandi mannslífa. TFA, 4. des.1945. Friðbjörn Aðalsteinsson. SÍMABLAÐIÐ 89

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.