Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 16
Heimsókn á Fjarskiptastöðina
í Gufunesi
— Reykjavík-radio/TFA, 65 ára á þessu ári
Myndir: Ásgeir Valur Snorrason.
Fjarskiptastöðin í Gufunesi skiptist í tvær deildir, annars vegar Reykjavík-radió/TFA sem ann-
ast sjófarstöðva- og landfarstöðvaþjónustu og hins vegar Radíó-flugþjónustuna. Stöðvarstjóri er
Stefán Arndal.
Á þessu ári eru liðin 65 ár síðan Reykjavík-radió/TFA hóf sjófarstöðvaþjónustu sína, en hún
var stofnuð 17. júní 1918. í tilefni af því, heimsótti blaðamaður Símablaðsins stöðina og tók starfs-
menn þar tali.
Það var verulega ánægjulegt að koma þar
og sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig, eftir
að hafa spjallað við loftskeytamennina í síma
gegnum árin. Margir starfsmannanna hafa
unnið þarna í mörg ár, en stöðin var flutt af
Melunum upp í Gufunes árið 1963.
Blaðamaður Símablaðsins, Kristjana H.
Guðmundsdóttir og Kormákur Kjartans-
son, deildarstjóri á TFA.
Það eru ábyrgðarmikil störf sem þarna eru
leyst af hendi og gefur auga leið, að menn
þurfa að vera vakandi á verðinum.
Loftskeytastöðvarnar eru eini tengiliður
sjómanna á höfum úti og fjölskyldna þeirra,
oft á tíðum eina vonin ef í harðbakka slær.
TFA hefur skilað starfi sínu vel gegnum árin
og margir eru þeir, sem hugsa hlýlega til
starfsmannanna þar.
Kormákur Kjartansson, deildarstjóri hjá
TFA fylgdi mér um stöðina og kynnti mér
Sigurður Baldvinsson, Reykjavík-radió.
starfsemina og mennina sem voru á vakt
þennan dag. Auk viðgerðarmanna og skrif-
stofufólks eru þrír menn á dagvakt kl. 8—22
við sjófarstöðvaþjónustuna og einn við land-
farstöðvaþjónustuna, en á næturvakt sinna
tveir menn sjófarstöðvaþjónustunni, en einn
90 SÍMABLAÐIÐ