Símablaðið - 01.12.1983, Page 17
landfarstöðvaþjónustunni. Kormákur sagði
mér, að starfið hefði aukist mjög hin síðari
ár, bæði vegna meiri langdrægni stövarinnar
og betra sambands yfir lengri vegalengdir,
þar sem nú er afgreitt bæði á tali og morsi á
stuttbylgjum. Enn fremur hefur afgreiðsla
Árni Egilsson, Radióflugþjónustunni.
Sveinn Bjarklind, Radióflugþjónustunni.
aukist mjög með tilkomu metrabylgjustöðva
og fjarstýrir stöðin slíkum tækjum á fimm
stöðum á suðvestur- og vesturlandi.
Þótti mér nóg um allan tækjabúnaðinn og
ber ekki við að skýra frá honum.
í litlu herbergi sátu tveir fullorðnir menn í
hvítum sloppum og sinna þeir sjófarstöðva-
þjónustunni. Það eru þeir Sigurður Baldvins-
son og Ólafur Björnsson. Báðir eru þeir búnir
Anton Jónsson, Radióflugþjónustunni.
Ólafur Björnsson, Reykjavík-radió.
að vinna þarna í mörg ár, en Sigurður þó leng-
ur, þvíhann er sá eini sem eftir er afþeim, sem
störfuðu við Loftskeytastöðina á Melunum.
SÍMABLAÐIÐ 91