Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 20

Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 20
Aðalfundur stöðvarstjóra Aðalfundur deildar stöðvarstjóra í F.Í.S. var haldinn að Nesjaskóla Höfn Hornafirði 27. og 28. ágúst s.I. Að þessu sinni var boðið upp á far með áætl- unarbíl frá Reykjavík sem fundarmenn not- færðu sér og tókst þessi nýbreytni mjög vel og voru allir sammála um að hafa þennan hátt á framvegis. Var mjög vel mætt á fundinn úr öll- um landsfjórðungum. Formaður F.Í.S. gat ekki mætt á fundinn að þessu sinni. Gestir fundarins voru Ragnhildur Guð- mundsdóttir frá stjórn F.Í.S., Jón Tómasson fyrrverandi stöðvarstjóri í Keflavík og kona hans Ragnheiður Eiríksdóttir, en Jón var um áraraðir formaður deildar stöðvarstjóra. Að venju var fræðsluerindi frá Póst- og síma- málastofnuninni að tilhlutan deildarstjórnar, og að þessu sinni flutti Jónas Sigurðsson tæknifulltrúi ítarlegt erindi um nýjungar í sima- búnaði o.fl. þar að lútandi og svaraði síðan fyr- irspurnum fundarmanna, var mjög góður róm- ur gerður að erindi Jónasar og fannst stöðvar- stjórum tímabært að kynna þeim nýjungar í símabúnaði sem komnar eru og væntanlegar. Marta B. Guðmundsdóttir formaður deild- arinnar flutti skýrslu stjórnar, en þar bar hæst að vanda kjaramál stöðvarstjóra og breytingar sem unnið hefur verið að við niðurröðun stöðv- arstjóra í launaflokka. Stjórn deildarinnar var endurkjörin en hana skipa: Marta B. Guðmumdsdóttir formaður, meðstjórnendur Björgvin Lúthersson og Guð- björg Thorarensen. Til vara: Ragnar Helga- son, FJías H. Guðmundsson og Anna Gísla- dóttir. í Félagsráð voru kosin: Marta B. Guð- mundsdóttir og Björgvin Lúthersson, vara- menn: Garðar Hannesson og Hermann Guð- mundsson. Á þing B.S.R.B. var kosinn Garðar Hannes- son til vara Marta B. Guðmundsdóttir. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum: Aðalfundurinn ítrekar fyrri samþykktir um að enginn stövarstjóri sé flokkaður lægra til launa en póstútibústjórar í Reykjavík eða fulltrúar á stærri stöðvum. Ennfremur leggur fund- urinn áherslu á hækkun yfirvinnugreiðslu til stöðvarstjóra, en núverandi greiðslur eru ekki í samræmi við framlagða vinnu þeirra. í desember verði ávallt greiddar tvöfalt fleiri yfirvinnustundir en aðra mánuði. Launanefnd leggur til að þær breytingar verði í væntanlegum samningum að stöðvarstjórar strandastöðva svo og stöðvarstjórar þeirra stöðva, sem veruleg umsvif hafa umfram það sem almennt gerist, verði hækkaðir um einn flokk frá því sem annars hefði verið. Aðalfundurinn ítrekar fyrri samþykktir deildarinnar um nánara samstarf milli yfirstjórnar Pósts og síma og stöðvarstjóra vegna framkvæmda og endurbóta viðkomandi stöðva. Aðalfundurinn ítrekar fyrri samþykkt deildarinnar um sameiningu F.Í.S. og P.F.I. þar sem eðlilegt verður að teljast að starfsmenn Pósts og síma séu í einu og sama stéttarfélagi. Aðalfundurinn samþykkir eftirfarandi tillögu: Stjórn deildarinnar ath. hvort ekki verði hægt að loka póstafgreiðslum kl. 1600 í stað kl. 1700 til þess að starfsmenn gætu losnað fyrr úr starfi á daginn. 94 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.