Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 23

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 23
næring ekki meðtekin fyrr en um lágnætti, er við kæmum á ákvörðunarstað, Nesjavalla- skóla í Hornafirði. Á leiðinni frá Vík austur að Kirkjubæjar- klaustri var Guðnýju falið að vera leiðsögu- maður — enda vitað að hún er mesti fjalla- garpur í stéttinni. Það kom líka á daginn að hún var hafsjór af fróðleik og var þrungin af frásagnargleði. Hún fræddi okkur um gamlar og nýjar fjalla- slóðir og fjölda örnefna, kunni dulrænar sagnir og fyrirbæri ýmissar náttúru og fyrr en varði vorum við á hlaðinu á Kirkjubæjar- klaustri, því ævaforna höfðingjasetri, sem nú er vel þekkt öllum landsmönnum vegna hinna góðkunnu og atorkumiklu Klausturbræðra. Einn þeirra, Valdimar Lárusson var þar stöðvarstjóri í marga áratugi, en hefur nú á efri árum látið embættið í hendur dóttur- sinnar Elínar Önnu, sem bættist í hópinn á Klaustri. Elín tók að sér leiðsögn austur Landbrot og Fljótshverfi, en myrkur var dottið yfir er við komum í Öræfin. Er við ókum suður Nestanga ofan Fagur- hólsmýrar, sáum við ljós gullleitarmannanna suðvestur á sandi og óskuðum þeim heilla í huganum. Eftir það voru það aðeins ljósin á bæjun- um sem vitnuðu um mannlíf en fullur máninn sló töfrabjarma á Reynivallaós, Breiðaból- staðalón, Steinavötn og Hestgerðisós og ótal huldufólksbyggðir, sem örvað höfðu hugar- flug Þorbergs skálds Þórðarsonar í bernsku og valdið honum hugarangri á stundum ein- semdar og einangrunar, einkum þegar Hornafjarðarmáninn tróð marvaðan í kólgu- klökkum. o O o O o Næsta morgun var glaðasólskin — næstum heiður himinn. Farin var skoðunarferð um Höfn við leið- sögn Óskars Helgasonar stöðvarstjóra. Bæjarstæðið er sérkennilegt og fallegt, með einni fegurstu fjallasýn er gefur að líta á ís- landi. En það vekur einnig eftirtekt hve ótrúlega mikið hefur tekist að framkvæma á stuttum tíma — m.a. opinberar byggingar, í gatna- Stjórn deildar stöðvarstjóra, f.v.: Guðbjörg Thorarensen, Þorlákshöfn, Björgvin Lúthers- son, Keflavík og IVIarta B. Guðmundsdóttir, Varmá. gerð og snyrtingu, við hafnargerð og aðrar þjónustustöðvar auk fjölda fagurra einbýlis- húsa, sem mörg eru í umhverfi gróskumikilla garða. Fagur bær og hreinn. Höfn er höfuðstaður Suðausturlands. Þó er það ekki fyrr en um síðustu aldamót að verslunin er flutt þangað frá Papaósi þar sem hún hafði verið um aldir. Óskar mátti vera hreykinn af byggð sinni, þar eð hann var oddviti þar í 16 ár meðan uppbyggingin var hröðust, en af hógværð fór hann fáum orðum um sögu staðarins og ók siðan með okkur upp í Almannaskarð, en þar er útsýni fegurra en víðast hvar annars staðar á íslandi. Hornafjörður lá fyrir fótum okkar sléttur og friðsæll, bændabýlin brostu við okkur í morgunsólinni og jökuldrottningin teygði arma sína niður á láglendi. o O O o o Fundahöld hófust að loknum hádegis- verði. Formaður deildarinnar, Marta Bíbí, setti fundinn á tilsettum tíma, tilnefndi starfsmenn: fundarstjóra þá Garðar Hannes- son og Hermann Guðmundsson og fundarrit- ara þá Jón Skagfjörð og Sigurð Jónsson og hlaut tilnefningin samþykki fundarins. Vart verður Marta Bíbí sökuð um að halda karl- SÍMABLAÐIÐ 97

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.