Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 25
Minningargreinar
Marinó G. Jónsson.
Vinur minn og mágur Marinó G. Jónsson
yfirsímritari var fæddur á ísafirði 23. júlí 1906,
sonur Jóns Guðbrandssonar skósmiðs frá Kýr-
unnarstöðum í Hvammssveit og Valgerðar
Hafliðadóttur frá Fremri-Bakka í Langadal N-
ís.
Á þeim árum er Marinó var að alast upp á
ísafirði var félagslíf ungmennafélagsins Árvak-
urs í blóma. íþróttir mikið iðkaðar. Árið 1922
er Marinó var 16 ára var hann sendur á vegum
Árvakurs á fimleikanámskeið til Reykjavíkur.
Hann var mjög fær fimleikamaður og þjálfaði
margan ungan mann á ísafirði og síðar í Vest-
mannaeyjum í fimleikum.
í ársbyrjun 1925 fór Marinó til náms í Loft
skeytaskólann í Reykjavík. Áður en hann
lauk námi kom Ottó Arnar skólastjóri að máli
við hann og réði Marinó, í forföllum, sem loft-
skeytamann á enska togarann Imperialist, sem
Helliersbræður gerðu út frá Hafnarfriði. Skip-
stjóri var hinn landskunni togaraskipstjóri og
síðar útgerðarmaður Tryggvi Ófeigsson. Þetta
lýsir best hve ótakmarkað traust Ottó Arnar
skólastjóri bar til hins unga nemanda síns.
Marinó lauk námi frá Loftskeytaskólanum 5.
júlí 1926. hann byrjaði sð starfa hjá Landssíma
Islands 14. júlí sama ár. Fyrst á viðgerðarverk-
stæði Landssímans undir stjórn H. Krag. Einn-
ig í línuviðgerðum undir stjórn C. Björnæs.
Haustið 1926 veiktist annar símritaranna í
Vestmannaeyjum og var Marinó sendur þang-
að í forföllum hans, og skipaður símritari 1.1.
1927.
Dvöl Marinós í Eyjum varð lengri en til stóð,
eða 20 ár.
Árið 1946 fluttist hann til Reykjavíkur og
var skipaður yfirsímritari 1. mars 1966. Hann
fór á eftirlaun 15. júlí 1973.
Árið 1929, 8. júní kvæntist Marinó systur
minni Jakobínu Þórunni. Þau eignuðust þrjú
börn, Sigurð Emil forstjóra, Sigurður er
kvæntur Ágústu Sigurjónsdóttur og eiga þau
6 börn. Agnesi sem er gift Kristni Guðjörns-
syni tæknifulltrúa, eiga þau 2 börn, og Jón Val
forstjóra. Jón Valur er kvæntur Sabinu
Marth, þau eiga 4 börn.
í ársbyrjun 1948 veiktist Jakobína af ólækn-
andi sjúkdómi. Hún andaðist 8. júní 1948, að-
eins 42 ára að aldri, eftir 19 ára ástríkt hjóna-
band. Það var mikið áfall og erfiðir tímar fyrir
Marinó og börnin þrjú.
Sjö árum síðar kynntist Marinó góðri og
kærleiksríkri konu, Hjördísi Ólafsdóttur. Þau
gengu í hjónaband 28. janúar 1956.
Marinó og Hjördís eignuðust eina dóttur,
Valgerði, sem er gift Valdimar Guðmundssyni
tæknifræðingi, þau eiga eina dóttur.
Marinó var afar vel liðinn af öllum sem hon-
um kynntust. Hann var glaðsinna, bjartsýnn,
áræðinn en jafnframt gætinn.
Hann hafði góða leikhæfileika og lék í
nokkrum leikritum í Eyjum og hlaut góða
dóma.
Hann andaðist á sjúkrahúsi aðfaranótt 22.
júlí s.l.
Blessuð sé minning Marinós G. Jónssonar.
Hafsteinn Þorsteinsson.
SÍMABLAÐIt) 99