Símablaðið - 01.12.1983, Page 26
Karl Hjálmarsson
Karl Hjálmarsson stöðvarstjóri var fæddur
í Nesi í Loðmundarfirði 28. desember 1912.
Foreldrar hans voru Hjálmar Guðjónsson,
yfirfiskmatsmaður á Austurlandi frá Litlu-
Laugum í S-Þingeyjarsýslu og Kristbjörg
Elísabet Baldvinsdóttir frá Stakkahlið í Loð-
mundarfirði.
Foreldrar Karls fluttust til Seyðisfjarðar og
ólst hann þar upp til 16 ára aldurs, fór þá
í símavinnu á sumrin, en í Samvinnuskólann
veturna 1930 til 1932 og útskrifaðist þaðan
með góðum vitnisburði.
Ekki var skólaganga Karls lengri, því að
strax eftir Samvinnuskólanámið byrjaði hann
vinnu í pósthúsinu í Reykjavík og vann að póst-
og símamálum alla starfsævi sína, um 50 ára
skeið.
í fyrstu var Karl póstberi og við skrifstofu-
störf, en 1953—1958 var hann fulltrúi hjá Pósti
og síma.
Hinn 1. mars 1958 var Karl skipaður stöðv-
arstjóri Pósts og síma í Borgarnesi og gegndi
því starfi til 1. sept. 1981 og var þá nær 69 ára
gamall.
Karl kvæntist eftirlifandi konu sinni, Frið-
björgu Davíðsdóttur, frá Flatey á Breiðafirði,
16. jan. 1943.
Börn þeirra Karls og Friðbjargar voru þessi:
Hjálmar, andaðist tvítugur að aldri. Sigríður
húsmóðir í Reykjavík, gift Skarphéðni Bjarna-
syni flugumferðarstjóra. Birgir kennari kvænt-
ur Þórunni Harðardóttur. Kolbrún húsmóðir
í Reykjavík gift Gísla Ragnarssyni kennara.
Karl var formaður Póstmannafélagsins
1950—1952, í stjórn Byggingasamvinnufélags
póstmanna um árabil.
Karl andaðist 6. ágúst s.l.
Stefán Ólafur Stefánsson
Stefán Ólafur Stefánsson stöðvarstjóri var
fæddur á Akureyri 3. mars 1916.
Foreldrar hans voru Stefán Ólafur Sigurðs-
son kaupmaður og kona hans, Jóhanna Sigríð-
ur Jónsdóttir.
Árið 1934 fluttist Ólafur með foreldrum sín-
um til Siglufjarðar. Hann settist í Verslunar-
skóla íslands haustið 1935 og lauk þaðan prófi
vorið 1938.
Árið 1938 var hann ráðinn fulltrúi á póst-
afgreiðslunni á Siglufirði og starfaði þar óslitið
til ársins 1958, er hann var skipaður stöðvar-
stjóri á Sauðárkróki. Þeim starfa gegndi hann
til dauðadags og hafði þá verið í þjónustu Pósts
og síma í 45 ár.
Þann 14. september 1950 kvæntist Ólafur
eftirlifandi konu sinni, Ölmu Björnsdóttur.
Ólafur og Alma eignuðust þrjú börn, sem öll
eru á lífi. Þau eru talin í aldursröð: Anna Birna,
100 SÍMABLAÐIÐ