Símablaðið - 01.12.1983, Síða 29
Símaþjónustan
á ísafirði
75 ára
Símstöðin á ísafirði.
Þann 23. september síðastliðinn voru liðin 75 ár frá opnun ritsíma- og gæslustöðvar á ísafirði,
en það ár var lögð einþætt símalína frá Borðeyri til ísafjarðar. Stöðin var frá upphafi 1. fl. stöð.
Húsnæði var leigt fyrir símstöðina hjá Guðmundi Bergssyni póstmanni. Byggt var innanbæjar-
kerfi sama sumarið og voru notendur um 40. Fyrsta skiptiborðið var fyrir 70 notendur.
Þetta var þó ekki fyrsti síminn á ísafirði, því
að í júnímánuði 1889 lét Ásgeir Ásgeirsson,
yngri, leggja síma á milli Faktorshússins í
Neðsta-kaupstað og verslunar sinnar við
Aðalstræti 15, Ásgeirsverslunar. Þetta var
fyrsta símasamband á íslandi , og var í notk-
un þar til síminn tók til starfa 1908. Faktors-
húsið, ásamt fleiri elstu húsum bæjarins í
Neðsta-kaupstað hafa nú verið friðuð, og er
unnið að lagfæringu þeirra, og hefur upp-
runalega símatækið verið sett upp aftur þar
sem það áður var. Einnig var árið 1892 lagður
sími á milli ísafjarðar og Hnífsdals að frum-
kvæði sýslunefnda ísafjarðarsýslna.
Magnús Thorberg var fyrsti símstöðvar-
stjóri á ísafirði. Ásamt honum voru í byrjun
tvær afgreiðslustúlkur, þær Soffía Thordar-
son og Ása Guðmundsdóttir.
Haustið 1920 var byrjað að reisa loft-
skeytastöðvar á ísafirði og Hesteyri, og voru
þær teknar í notkun vorið eftir. Loftskeyta-
stöðin á ísafrði varð þó ekki langlíf í þetta
sinn, rafveitan var í ólagi og Hesteyrarstöðin
reyndist langdrægari en búist hafði verið við,
og voru tækin á ísafirði flutt til Kirkjubæjar-
klausturs haustið 1922. En eftir að sími hafði
verið lagður til Hesteyrar var loftskeytastöð-
in flutt til ísafjarðar árið 1936, og hefur verið
starfrækt þar síðan. Með henni kom Jón
Guðjónsson, símritari, en hann hafði unnið
sem símritari á Hesteyri frá upphafi.
Haustið 1911 var símstöðin flutt í nýtt
steinhús, Pólgötu 10, sem Magnús Thorberg
símstöðvarstjóri hafði byggt, og þegar Magn-
ús sagði starfi sínu lausu árið 1918, keypti
Landssíminn af honum húsið.
Póststjórnin keypti húseignina Aðalstræti
18 um 1927—28, en það var áður eitt glæsi-
legasta verslunarhús landsins. Þangað flutti
Síminn líka við sameiningu Pósts og Síma. Á
síðustu árum hafa verið gerðar gagngerar
breytingar og lagfæringar á húsinu til hag-
ræðis fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Á árunum 1967 og 1968 var byggt tækja-
hús á bak við stöðvarhúsið og þar sett upp
800 númera sjálfvirk símstöð, sem tekin var
í notkun 25. júní 1969, og voru notendur í
byrjun 742. Nú er þessi stöð 1400 númer og
fullnýtt og beðið eftir stækkun.
Á síðastliðnu ári keypti Póst- og símamála-
stofnunin húseignina Áðalstræti 16, gamalt
hús við hlið hinna tveggja. Er það nú notað
fyrir línudeildina sem áður var í tækjahúsinu
við mikil þrengsli.
Við Póst- og símstöðina á ísafirði vinna nú
33 starfsmenn, nokkrir þeirra í hlutastörfum,
á skrifstofu umdæmisstjóra 4 og í tæknideild
7 að viðbættum 3—6 verkamönnum.
Erling Sörensen,
Umdæmisstjóri
SÍMABLAÐIÐ 103