Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 32

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 32
væri í sniðum en ég bjóst við og er þakklátur þeim aðilum sem gerðu þessa heimsókn mína mögulega. o O O O o Guðný Gestsdóttir Fulltrúi Skrifstofu Umdæmisstjóra Umdæmi I, Reykjavík. t>ú fórst á námskeið við Háskólann í Sant- ander á Norður—Spáni í sumarleyfinu. Hvað getur þú sagt okkur af því? Ég hefi stundað spönskunám hér heima við Námsflokka Reykjavíkur og kennarinn, sem er spánskur, kynnti fyrir nemendum þessa námsferð á vegum ferðaskrifstofunnar At- lantik. Var þetta sumarnámskeið og eingöngu ætlað útlendingum. Samskonar námskeið eru haldin við ýmsa háskóla í Frakklandi, Spáni og víðar í Evrópu. Við vorum tíu nemendur frá íslandi á þessu námskeiði, en alls tóku þátt í því þrjú hundr- uð nemendur frá þrjátíu löndum, fólk á öll- um aldri og mislangt komið í námi. Aldur skiptir ekki máli, ef áhugi er fyrir hendi. Nemendur héldu til í ýmsum heimavistum á vegum skólans, en ég ásamt sex öðrum ís- lendingum, bjó í kastala, sem stendur á höfða, sem skagar út frá borginni. Umhverf- ið þarna er mjög fagurt, skógur, baðströnd og margt fleira sem gleður augað. Þetta mun vera verndað svæði, eða nokkurs konar þjóð- garður. Kastalinn virðist mjög gamall og er þar komið fyrir mörgum fögru munum og lista- verkum. Þarna var lögregluvörður og urðum við að sýna passa til að komast inn, enda ekki óeðlilegt, þar sem um svo marga dýrgripi var að ræða. Að vetrinum er þarna safn, en á sumrin eru haldin ýmis listanámskeið, músik- vikur og fyrirlestrar. Það var seiðmagnað að dvelja í kastalan- um. Að vísu var þar margt gamaldags og ekki eins miklum þægindum fyrir að fara og á luxushótelum. En það var dásamlegt að dvelja innan um alla þessa fögru muni. Her- bergin eru lítil og voru tveir til þrír saman í herbergi, en ég var svo heppin að fá eitt af þeim fáu einbýlum sem stóðu til boða. Ekki voru þarna sérbaðherbergi, heldur hafði ver- ið komið fyrir sturtum og þvottaaðstöðu á hverri hæð. Við fengum þrjár máltíðir á dag og var maturinn ágætur. Skólinn er nokkuð langt í burtu og var farið með hópferðabíl til skólans á morgnana, en með strætisvagni heim að lokinni kennslu. Við upphaf sumarskólans, tóku þeir sem vildu próf, til að sjá hvar þeir stæðu og var þá raðað í bekki eftir kunnáttu. Þeir sem ekki tóku próf, fóru í byrjendabekk. Við vorum í bóklegum- og málfræðitímum frá kl. 9—12 fyrir hádegi, en um eftirmiðdag- inn voru fyrirlestrar og talkennsla. Kennt var á laugardögum frá kl. 9—12. Um helgar fórum við í skoðunarferðir í fylgd leiðsögumanns og var mikill fróðleikur fólginn í því. Þessar skoðunarferðir voru mjög ódýrar, eða um kr. 200.00 ísl. hver ferð. Námskeiðið mun hafa kostað, með ferðum fram og til baka, húsnæði, fæði, skólagjöld- um og námsgögnum, um kr. 45.000.00. Ekki voru haldin próf í lok námskeiðsins, en diplom gefin í samræmi við ástundun. Ég hefi áður notað sumarleyfi mín til þess að fara á slík námskeið sem þetta. Árið 1961 fór ég á frönskunámskeið í París og svo aftur árið 1970 í Nissa. Hingað til hefi ég kostað þessar námsferðir sjálf, en í sumar fékk ég styrki úr Starfsmenntunarsjóði BSRB og Menningar- og kynningarsjóði FÍS. Það er mjög lærdómsríkt að fara á nám- skeið sem þessi og finnst mér tilvalið að eyða sumarleyfinu á þennan hátt. 106 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.