Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 34

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 34
bundnum hætti. Starfsmaðurinn tekur niður símanúmer og vakningartíma og setur síðan viðkomandi pöntun inn á tölvu, sem tengd er við „fröken klukku“, sem síðan hringir og vekur viðkomandi, án þess að mannshöndin komi þar nærri. Margt fleira mætti nefna, en of langt mál að skýra frá því nú. Fjárhagslega er ferð sem þessi erfið, en það munaði miklu, að ég fékk styrki til fararinn- ar, m. a. úr Starfsmenntunarsjóði BSRB. Ég er mjög þakklátur öllum þeim er greiddu götu mína til þessarar námsferðar og sé ekki eftir að hafa eytt sumarfrii mínu á þennan hátt. o o O o o Ólafur Eyjólfsson Yfirdeildarstjóri Ritsímanum, Reykjavík notendur og hinn almenna símnotanda, en hann hefur að vísu ekki gagn af símatelexinu nema í aðra áttina. Þó getur símnotandi beð- ið í símanum eftir svari og fengið síðar skrif- lega staðfestingu í pósti ásamt sendiafriti. Með þessari nýju símatelexþjónustu virðist hafa orðið bylting í símnotkun hjá þeim þjóðum sem hafa tekið hana upp. Ég bind miklar vonir við hina nýju tækni og tel að hún muni veita símnotendum betri og meiri þjónustu. o O O o o Álfhildur Jóhannsdóttir Skrifstofumaður Endurskoðun Umdæmi I Reykjavík. Þú fórst í námsferð til Englands í sumarleyfi þínu nú í sumar. Hver voru tildrög þess? Ég- fór á vegum Stofnunarinnar til Kaup- mannahafnar í september-mánuði og þá fyrst og fremst til að kynna mér hina nýju þjón- ustu, símatelexið, sem senn verður sett á stofn hér hjá okkur. Einnig kynnti ég mér alla almenna símaþjónustu, svo sem telex- og símskeytaþjónustu, langlínuþjónustu innan- lands og utan, ásamt bílasímaþjónustu. Ólafur Eyjólfsson. Fram undan eru miklar breytingar á Rit- símanum í Reykjavík með tilkomu þessarar nýju þjónustu og því nauðsynlegt að kynna sér starfsemi þeirra, sem lengra eru komnir og byggja á þeirra reynslu. Símatelexinn verður bæði fyrir símatelex- Ég stundaði enskunám síðast liðinn vetur hjá enskum kennara. Þegar hann heyrði, að ég hafði áhuga á frekara námi í sumarskóla í Englandi, benti hann mér á skóla sem heitir Alfhildur Jóhannsdóttir. Concorde International Study Centre í Folke- stone á suðaustur-strönd Englands. Ég skrif- aði til skólans og fékk upplýsingar um náms tilhögun og fór svo þangað þann 15. maí og dvaldi þar í einn mánuð. Skólinn útvegaði mér húsnæði og fæði hjá enskri fjölskyldu og var sá kostnaður ásamt námsgögnum innifalinn í skólagjaldinu, sem var um það bil 400£. 108 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.