Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 37

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 37
Heimsóknir nemenda á vinnustaði Skrifstofufólk P. & S. á námskeiði. F.v.: Inga H. Kjartansdóttir, Endurskoðun póstávísana, Guðný Inga Þórisdóttir, Skrif- stofu Bæjarsímans, Hrefna Kristinsdóttir, Selfossi, Dóra Laufey Sigurðardóttir, Hafn- arfirði, Jóhanna Sturlaugsdóttir, Hagdeild, Dóra Þórisdóttir, Endurskoðun, Álfhildur Jóhannsdóttir, Endurskoðun, Halldóra Jakobsdóttir, Akureyri, Sóley Ingólfsdóttir, Innheimtunni, Hrafnhildur Hreiðarsdóttir, Endurskoðun póstávísana, Friðrik Haralds- son, kennari, Unnur Óskarsdóttir, Starfsmannahald, og Kristjana V. Jónsdóttir, ísa- firði. Á myndina vantar: Danhildur J. Helgason, Hafnarfirði, Emu H. Hannesdóttur, Frímerkjasölunni og Erlu SigurðardóttUr Bókhaldinu. Mynd; Ásgeir Valur Snorrason. Þær stúlkur, sem nú stunda nám á hinum nýju námskeiðum í Póst- og símaskólanum fyrir talsímaverði og skrifstofufólk, hafa lýst ánægju sinni með þessi námskeið. Einn þátt- urinn í náminu, og sem nemendur kunna vel að meta, eru heimsóknir á hina ýmsu vinnu- staði Pósts og sima hér á höfuðborgarsvæð- inu. Slíkar heimsóknir gefa nemendum, sem eru viðsvegar að af landinu, tækifæri til að kynnast hinni margvíslegu starfsemi Stofnun- arinnar. Stúlkurnar, sem eru á námskeiðinu fyrir skrifstofufólk, fóru í eina slíka heimsókn á Birgðastöðina að Jörfa fyrir skömmu, ásamt einum kennara skólans, Þorsteini Ólafssyni. Birgðastjóri Pósts og síma, Sverrir Skarphéð- insson, tók á móti gestunum og sýndi þeim starfsemina þar. Þegar hópurinn fór í gegnum eina deildina á Jörfa, sló einn starfsmannanna þar fram eftirfarandi vísu: Lítið hingað oftar inn og yljið huga mínum. Varma slœr á kalda kinn frá kvennaskara fríðum. Þakkir frá Símablaðinu Eins og lesendur blaðsins hafa eflaust tekið eftir, þá hafa margar ljósmyndir, sem birst hafa í blaðinu að undanförnu, verið teknar af Ásgeiri Vali Snorrasyni. Asgeir er sonur Kristjönu H. Guðmundsdóttur og Snorra Ásgeirs- sonar. Hann er í námi í Læknadeild Háskólans, og þrátt fyrir miklar annir hefur hann gefið sér tíma til að aðstoða okkur við myndatökur. Fyrir þessa aðstoð vill Símablaðið færa Ásgeiri hinar bestu þakkir. Ásgeir Valur Snorrason. SlMABLAÐIÐ 111

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.