Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 39

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 39
Galdrar og töfrabrögð — tölvustýrðar símstöðvar sem tengja margvíslega þjónustu við símann þinn í desemberhefti Póst- og símafrétta frá síðasta ári var skýrt frá nýrri gerð sjálfvirkra símstöðva sem brátt myndu ryðja sér til rúms á íslandi og hefði fyrsta pöntunin verið send framleiðanda 11. júní 1982. Hér er um að ræða tölvustýrðar símstöðvar af svokallaðir AXE-gerð sem sænska fyrir- tækið L.M.Ericsson framleiðir en það átti lægsta tilboð í fjögurra ára áætlun um uppsetningu slíkra stöðva á svæðunum 91 og 92 með samtals 20500 símanúmer. í fyrsta hluta pöntunarinnar eru stöðvar með samtals 6500 númer. Þrjú þúsund númer verða sett upp í Múlastöð við Suður- landsbraut og eitt þúsund í símstöðinni í Keflavík en þær verða miðstöðvar fyrir slíkar símstöðvar hvor á sínu svæði. Gert er ráð fyrir að stöðin í Múla komist í notkun í desember n. k. og þegar er hafinn undirbúningur að uppsetningu stöðvarinnar í Keflavík. Á næsta ári verða settar upp tvær útstöðvar í Reykjavík, önnur í Landssímahúsinu en hin í Árbæ og jafnframt verður sett upp útstöð í Gerðum. Smátt og smátt mun síðan fjölga númerum við þessar nýju stöðvar. Það er hins vegar Ijóst að langur tími mun líða þar til þessi gerð stöðva hefur leyst þær gömlu af hólmi alls staðar. En hvað er svona merkilegt við það að ný gerð símstöðva sé að komast í notkun á ís- landi? Verður notandinn eitthvað var við það að hann kemst í samband við umheiminn í gegnum fullkomnari símstöð? Ekki verður hér gefin tæknileg lýsing á þessum stöðvum, enda skil ég ekki orð af því sem ég hef um þær lesið á þrem tungumálum. Þó má geta þess að eins og nýjustu tölvur og reiknivélar eru þær byggðar upp með raf- eindakubbum sem hver um sig inniheldur þúsundir örsmárra rása. Hins vegar ætla ég að lýsa lítillega þeirri þjónustu sem þær geta veitt notendum á sjálf- virkan hátt og má líkja henni við galdra og töfrabrögð. Ég er þess fullviss að hefðu þess- ar stöðvar verið eitthvað fyrr á ferðinni, hefði allt símafólk um tólf hundruð að tölu, verið brennt til ösku fyrir galdra. ÞJÓNUSTUMÖGULEIKAR Hefur þú hringt í 02 og beðið um að láta vekja þig? Hefur þú hangið heima vegna þess að þú áttir von á áríðandi símtali þegar þig jafnframt hefur langað til að heimsækja kunningja? Hefur einhvern tíma staðið þann- ig á hjá þér að þú hafir þurft að tala við tvo aðila í síma í einu? AXE stöðin leysir á einfaldan hátt úr svona málum og hefði mátt spyrja 10—12 spurninga í viðbót því að svo fjölbreytt er þjónustan sem stöðin veitir á sjálfvirkan hátt. Áður en þjónustutegundunum er lýst er rétt að geta þess að til þess að geta hagnýtt sér þær allar, þarf notandinn að hafa síma með 13 tökkum, þ. e. þrem fyrir utan þá sem hafa töl- ur. Þessir 3 aukatakkar eru merktir með stjörnu, ferningi og R og eru þeir einmitt not- aðir til þess að komast í samband við minni stöðvarinnar. Hins vegar er hægt að komast í samband við hluta þjónustunnar með eldri gerðum síma og jafnframt getur notandinn beðið símstöðina að tengja vissa þjónustu við símanúmer sitt. í öllum tilvikum nema einu þarf að biðja símstöðina um aðgang að þjón- ustunni en eftir að notandinn er orðinn á- skrifandi, getur hann á sjálfvirkan hátt notað þjónustuna. Hér á eftir verður lýst helstu þjónustu- möguleikunum sem AXE-stöðin hefur upp á að bjóða: VAKNING ÁMINNING Hægt er að stilla símann þannig að hann hringi á ákveðnum tíma, til þess t.d. að láta hann vekja sig eða minna á eitthvað áríðandi. Aðferðin er þessi: Fyrst lyftir þú heyrnartal- færinu og velur ákveðinn kóða til þess að komast á réttan stað í minni stöðvarinnar. Kóðinn gæti t.d. verið stjarna 55 stjarna. Næst setur þú inn tímann, t. d. 0715 og að lokum ýtir þú á takkann með ferningnum og símsvari staðfestir pöntun þína. Þessi þjón- usta er að sjálfsögðu ekki ókeypis og í hvert sinn sem þú tengir símann þinn við hana, telst ákveðinn skrefafjöldi á númerið þitt. SÍMABI.AÐIÐ 113

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.