Símablaðið - 01.12.1983, Side 40
UPPHRINGING FLUTT Á
ANNAN SÍMA
Ef þú ætlar í heimsókn en vilt jafnframt
ekki missa af áríðandi símtölum sem þú átt
von á, getur þú stillt simann þannig að hring-
ing í hann flyst yfir til síma þess sem þú heim-
sækir og þar getur þú svarað þeim sem í þig
hringir. Þegar heim kemur, aftengir þú þessa
þjónstu. Hafir þú gleymt því, heyrist breyttur
valtónn til þess að minna þig á að innhringing
í símann þinn er tengd annað.
SAMBAND ÁN NÚMERVALS
Hægt er að tengja símann beint við eitt
númer þannig að þegar heyrnartalfærinu er
lyft hringir í hinu númerinu eftir 10 sekúndur.
Jafnframt er hægt að nota símann á venjuleg-
an hátt en þá þarf að byrja að velja númer
innan 10 sekúndna. Þetta er mikið öryggi
fyrir þá sem vegna sjúkdóms eða fötlunar
eiga erfitt með a velja númer en geta lyft
heyrnartalfærinu.
SÍMTAL RAKIÐ
Fái notandi óþægilega upphringinu frá ó-
þekktum aðila, getur hann fundið uppruna-
símann með því að hringja ákveðinn kóða. Á
símstöðinni er niðurstaðan skráð sjálfvirkt og
notandinn fær upplýsingar um númer og eig-
anda símans sendar heim skriflega.
VIÐMÆLANDI GEYMDUR
Ef svo ber til meðan á samtali stendur að
upplýsingar þurfi að fá frá þriðja aðila, getur
notandi frá AXE-stöð geymt viðmælanda
sinn meðan hann hringir annað til að fá þær.
Með því að ýta á einn takka fær hann síðan
samband aftur við fyrri viðmælandann og
þriðji aðilinn tengist frá.
TALAÐ VIÐ TVO TIL SKIPTIS
Önnur útgáfa þessa fyrirkomulags er þann-
ig að notandinn getur talað við tvo aðila til
skiptis og getur hann svo oft sem hann óskar
skipt um viðmælanda en sá aðili sem geymdur
er heyrir ekki tal hinna tveggja.
114 SÍMABLAÐIÐ
ÞRIGGJA MANNA TAL
Fullkomnassta sambandið af þessu tagi er
þriggja aðila ráðstefnusímtalið þar sem beint
samband er milli allra, þ. e. hver getur heyrt
allt sem sagt er eða talað til hinna tveggja í
einu. Reikningslega verður þetta sem tvö sím-
töl.
SAMTAL BÍÐUR
Hægt er að stilla símann þannig að notand-
inn verði var við ef einhver hringir meðan á
samtali stendur. Þetta á sér stað á þann hátt
að tveir stuttir tónar heyrast og getur notand-
inn þá brugðist við með tvennum hætti: í
fyrsta lagi getur hann lokið yfirstandandi
símtali og svarað þeim sem hringir. I öðru lagi
getur hann geymt viðmælanda sinn meðan
hann svarar þeim sem bíður en i því tilviki
þarf hann að hafa 13 takka síma. í báðum til-
vikum þurfa viðbrögð hans að eiga sér stað
innan 20 sekúndna. Sá sem hringir fær venju-
legan hringingartón í 20 sekúndur en eftir það
fær hann merki um að númerið sé upptekið.
TENGING VIÐ ANNAN SÍMA
ÞEGAR NÚMERIÐ ER UPPTEKIÐ
Þetta fyrirkomulag getur verið þægilegt
fyrir lítil fyrirtæki sem hafa fleiri en einn síma
og vilja koma i veg fyrir að þau missi af vænt-