Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 46

Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 46
Til kvenna innan F.I.S. Kynning á starfsemi Málfreyja Mig langar til að kynna konum innan F.Í.S., starfsemi Málfreyja. Nafnið þykir kannske fráhrindandi oj* gefur ekki rétta mynd af samtökunum. Eg er hrædd um að þær ykkar sem hafa heyrt málfreyja getið haldi að þær séu bara konur sem séu alltaf að halda ræður. En ræðumennska er bara einn lítill hluti starfsins. Ekki þar fyrir, engin skyldi vera hræddur við ræður, þær eru bara orð fest á blað, sem síðan eru lesin upp. En starf í málfreyjudeild er mikið meira en það. Þar fá konur tækifæri til að þjálfa sig í fundarstörfum, fundarstjórn, hlustun af at- hygli og að tjá sig upphátt í hópi annarra kvenna sem uppörva þær og hvetja. Hver þekkir það ekki af eigin raun að sitja fundi í starfsmannafélagi, stjórnmálafélagi eða á foreldrafundi og dauðlanga til að koma með fyrirspurn og tjá sig um málefnið, en ha- fa alls ekki kjark til að standa upp, hvað þá að fara í ræðustól. Konur gera lítið af því að leggja orð í belg á mannamótum. Ekki af því að þær hafi ekkert til málanna að leggja, eða engar skoðanir, heldur af óvana og ör- yggisleysi. Starf í málfreyjudeild gefur gott tækifæri til þess að stíga fyrstu skrefin í þá átt, að koma hugsunum sínum og skoðunum á framfæri. í Málfreyjudeild mega vera 12—30 aðil- ar. Flestar deildir telja þó 18—25. Þessar konur skifta með sér stjórn deildar og nefnd- arstörfum og öllum verkefnum funda, en þeir eru tvisvar í mánuði, yfir vetrarmánuðina. Þar sem félagatalan er bundin við svo fáa aðila fá allar konur tækifæri til að spreyta sig á verkefnum, sem ég er hrædd um, að við tækjum ekki að okkur ef einhverjir karlar væru til staðar, sem tækju af okkur ómakið. Fundir eru formlegir, lögð er fram prentuð dagskrá og henni fylgt. Þó er líka glens og gaman á þessum fundum. Konur sýna hver annarri þá virðingu að heyra má saumnál detta þegar einhver flytur ræðu, og við upp- lestur annað verkefni. Málfreyjur leggja mikla áherslu á að fræðast um hin ólíkustu málefni. Á fundina eru oft fengnir gestir til að flytja erindi eða annast kennslu. T. d. læknar, stjórnmálamenn, leikarar og lista- menn. Auk þess eru í deildunum fluttar kynningar á nýjum bókum. Málfreyjudeildir hafa með sér samtök og er yfirstjórn þeirra nefnd Ráð. Ráð heldur fjóra fundi á ári og er einn fulltrúi kosinn fyr- ir hverja deild til að sækja þá og hefur hann atkvæðisrétt. Allar málfreyjur eru velkomn- ar á þessa fundi og hafa þær málfrelsi. Sem dæmi um þátttöku, þá eru 220 málfreyjur á landinu, en algengt er að 80—90 sæki Ráðs- fundi. Þar sem deildir eru á ýmsum stöðum á lan- dinu, gefur það okkur tækifæri, til að kynn- ast konum, sem við aldrei annars mundum kynnast, og hef ég orðið vör við, að mál- freyjur meta það mjög mikils og telja ekki eftir sér löng og oft dýr ferðalög til að koma á Ráðsfundi, og sérstaka hátíðafundi. Málfreyjur vilja gjarnan kynna sem flest- um, þennan góða og skemmtilega félagsskap og reyna því, að auglýsa fundi sína ef fjárhag- ur leyfir. En gestir eru velkomir án nokkurra skuldbindinga á alla fundi í deildum og í Ráði. Vil ég hvetja ykkur félagskonur í F.Í.S. til að fara á málfreyjufund. Það er ekki ýkja stórt skref eða erfitt, en það getur leitt þig til sjálfsþroska og framfara. í sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna. Og hvað er menning manna ef menntun vantar snót. Mali. Joch. Anna Einarsdóttir. talsímavörður Talsambandi við útlönd. 120 SÍMABLAÐlt)

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.