Skátablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 12
Lifandi miðbær • frábær dagskrá!
Á mótssvæðinu verður að sjálfsögðu byggður upp lifandi og skemmtilegur miðbær eins og nauðsynlegt er
í öllum bæjarfélögum með fjölbreyttri starfsemi. Þar verður m.a. útvarps- og sjónvarpsstöð mótsins,
sjúkrahúsið, bíóhúsið, tónleikahús, veitingastaðir og leigubílastöð svo eitthvað sé nefnt. Þar verða
einnig margskonar dagskrártilboð sem einstaklingar geta tekið þátt í upp á eigin spýtur.
49
Motsgestir mæta a svæðið
Stútfullar rútur af syngjandi skátum streyma á mótsstað
Til að allt skipulag megi ganga sem best mun
hvert félag fá úthlutað ákveðnum komutíma
svo ekki séu allir að mæta á
__svæðið á sama tíma. -• %
Siðasta kvöldið
Mótssetning
Við mótssetningu safnast allir saman á
hátíðarsvæði mótsins og taka virkan
þátt í setningarathöfninni. Ekki
gleyma félags-, sveitar- ^
og flokksfánunum!
Tónleikar
Eftir langan og
strangan dag í
tjaldbúðarstörfum
og þátttöku í tveimur
skemmtilegum pósta-
leikjum, safnast allir
mótsgestir saman á
hátíðarsvæðinu og
skemmta sér á frábærum
stórtónleikum þar sem fra
koma hljómsveitir víða aé
landinu!
Torgadagskrá
Tjaldbúðunum verður skipt upp i
nokkur svæði sem við köllum torg.
Hvert torg hefur sitt nafn og sín
einkenni. Þegar torgadagskrá er í
boði á kvöldin þá safnast allir sem eru
saman á torgi á einn stað og taka þátt
í hressilegri dagskrá sem skipulögð er
af torgstjórnum hvers torgs.
Dansleikur
Þokkalega klikkað ball þar sem allir munu
stíga trylltan dans langt fram eftir kvöldi.
Áður en ballið hefst mun hvert torg undirbúa sig
í suðrænni sveiflu og undirbúa sín einkenni og
fleira sem nauðsynlegt er til að vita hver er hvers
og hvurs er hvað!
Dagskrá fyrir ylfinga /
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla ylfinga
iandsins! Ylfingar eru framtíð skátastarfsins og því er
mikilvægt að þeir fái tækifæri til að upplifa landsmótsævintýrið.
Ylfingar eru að sjálfsögðu velkomnir með foreldrum sínum í fjölskylduþúði
allt mótið en á meðan á ylfingamótinu stendur, verður þeim boðið til
sérstakrar tjaldbúðar þar sem hjarta ylfingamótsins mun slá.
mNÚ ER LAG" - meiriháttar „karnival”!
Stuðið byrjar strax að morgni og stendur langt fram á kvöld. Hundruðir
listamanna munu heimsækja mótið og tónlist, leiklist og önnur skemmtilegheit
munu einkenna þennan dag. Að sjálfsögðu þurfa mótsgestir sjálfir að leggja fram
sinn skerf til að gera þennan dag sem fjörugastan.
Flokkurinn aflar vina og þekkingar
Þennan mótsdag er gert ráð fyrir að gefa flokkum og
sveitum svigrúm til að vinna að tjaldbúðarstörfum. Einnig
verður boðið upp á tvo skemmtilega póstaleiki um svæðið
sem nefnast „Flokkurinn aflar vina" og „Flokkurinn aflar
þekkingar".
Tjaldbúðarstörf
Þessum degi verður varið í tjaldbúðarstörf og fleira
skemmtilegt til að byggja upp góða og nytsama
tjaldbúð þar sem áherslan erlögð á að öllum líði vel.
Valdagskrá flokka
Spennandi dagskrá fyrir skátaflokka og drótt-
skátaflokka. Þessum fjórum dögum er skipt
upp í 8 dagskrábil. Hver flokkur fær að ráða
því hvaða viðfangsefni hann glímir við þessa
daga. Nánari útskýringar á þessari valdagskrá
er að finna hér á síðunni til hægri.
Góðan daginn!
Flokkurinn vaknar með bros á vör og býr
sig undir viðburðarríkan dag með góðum
morgunmat og spjalli um verkefni dagsins.
Að lokinni fánaathöfn og tjaldbúðaskoðun
eru allir tilbúnir til að takast á við
spennandi dag!
— Skáti í einn dag
Skemmtileg dagskrá fyrir
fjölskyldur og gesti sem ekki
hafa kynnst skátastarfi af
eigin raun. Þátttakendur fá
að spreyta sig í ýmsum skáta-
íþróttum og leikjum og
kynnast því, í hverju
skátastarfið er fólgið.
Frágangur
Eftir viðburðarríka og
frábæra daga er kominn
tími til að ganga frá
tjaldbúðinni. Tjöldin
eru tekin niður og allir
hjálpast að við að ganga
frá tjaldbúðasvæðinu.
Mótsslit
Allir þátttakendur safnast
saman á hátíðarsvæðinu og taka
þátt í lokaathöfn mótsins.
Það verður mikið um dýrðir og mikið fjör á síðasta kvöldi
Landsmótsins — söngur, grín og gleði eins og skátum er
einum lagið og hver veit nema einhverjir muni dansa
kinn við kinn inn í rómantíska sumarnóttvið Úlfljótsvatn!
Haldið heim á leið
Mótsgestir halda heimleiðis, glaðir í bragði eftir frábært skátamót
en með ofurlítinn trega í hjarta við að skilja við alla nýju vinina.
u
landsmót skáta
úlfljótsvatni
SkfátMtíwý— sjfclpt&dur lípstíll!