Skátablaðið


Skátablaðið - 01.10.1998, Page 16

Skátablaðið - 01.10.1998, Page 16
 rftíítfrk-pfHnaj a, Kæru foreldrar. Umferðarslys taka mestan toll afþjóðinni, bæði hvað varðar örkuml og dauðafyrir aldur fram. Mörgum hættir til að líta á þessar staðreyndir sem áhættu sem fylgi því að búa í tækni- vœddu samfélagi og litlu verði þar um breytt. Sú er ekki reyndin, mjög miklu má breyta og draga má úr slysum með aðgerðum sem einkum reyna á skynsemi fólks. Umferðin er sérstaklega skeinuhætt börnum og ungu fólki og er því eðlilegt að skáta- hreyfingin, hreyfing barna og ungs fólks, láti öryggismál í umferðinni til sín taka meö því að hvetja til fræðslu og varkárni meðal yngstu vegfarendanna, því lengi býr að fyrstu gerð. A haustin er skyggja fer og börnin hópast í skólann, eykst hœttan í umferðinni til muna. Vetrarmyrkur og válynd veður, snjór og hálka auka hœttuna og ökumenn eiga erfiðara með að komast leiðar sinnar. Þá ríður á að vera viðbúinn og gera réttar ráöstafanir til að tryggja betur öryggi barnanna. Endurskinsborðar hafa reynst ómetanleg öryggistœki í skammdegisumferðinni og skiptir fyrst ogfremst máli að fólk venji sig á að nota endur- skinsborða eða endurskinsmerki á hverjum degi. Með því að fœra öllum sex ára börnum í landinu að gjöf hentugan endurskinsborða sem brugðið er yfir öxl barnsins, erum við þess fullviss að börnin venja sig á að fara varlega í umferðinni. Þau verða með tímanum betri og tillitssamari vegfarendur en við sem nú erum á fullorðinsárum. Það er betra og skynsamlegra að tendra Ijós en aðformæla myrkrinu og með þessum endurskinsborðum, sem við biðjum foreldra að aðstoða börnin við að setja rétt á sig, viljum við koma því til leiðar að börnin geti látið Ijós sitt skína í vetrarmyrkrinu um leið og við heitum á foreldra að taka höndum saman með okkur og rifa upp umferðarreglurnar með börnunum. Með kærri kveðju, / Olafur Asgeirsson skátahöfðingi Lftutn Ijc5 oWtxr ‘jk.ívux

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.