Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.2002, Síða 21

Skátablaðið - 01.04.2002, Síða 21
Skátamót Aðstandendur mótsins og þátttakendur. tókst leitarhópnum að finna þessa fjóra „sjúklinga" og koma þeim út úr gilinu. Örmagna eftir vel heppnað æfingarútkall skriðu unglingarnir í fletið sitt og sváfu værum svefni fram á næsta morgun. Þverun jökulár úr dróttskátamaraþoninu og limbó úr metamótinu. Nóg að gera... sig í hæstu klettum, ísklifur í Gígjökli, burð slasaðra á bökkum jökullóns, þverun Krossár, rötunarverkefni, svifbraut, klettaklifur, refaleit o.þ.h. Öll verkefnin eru spennandi og lýsandi fyrir starf og þjálfun hjálparsveitafólks og gefur skát- unum hugmynd um hvað biði þeirra, gerðust þau meðlimir í einni af hjálparsveitum Slysavarnar- félagsins Landsbjargar. Um kvöldið var dýrindis grillmáltíð. SS kjöti og salati var skolað niður með gosi í boði Skátalands. Kokkarnir brilleruðu og sendu hvern skammtinn á fætur öðrum af ilmandi kjöti inn til soltinna mótsgesta. Að lokinni máltíð var haldin kvöldvaka sem var mikið í anda Brennu-Njálu, enda vel við hæfi. Um miðnætti var að færast ró yfir staðinn. Snjókornum var nýbyrjað að kyngja niður og flestir kunnu ágætlega við að vera inni, jafnvel ofan í hlýjum svefnpoka, eftir puð dagsins. Allt í einu bruna hjálparsveitabílar af stað út í myrkrið með blikkandi Ijós. „Nú er eitthvað að gerast!“ Stuttu seinna voru dróttskátar og ungliðar ræstir út til að leita fjögurra manna í Strákagili, sem er spölkorn frá Básum. Það er erfitt að lýsa því hvernig tilfinningin er að vera í snjókomu og myrkri að leita að einhverj- um á ókunnugum stað. Öll skilningarvit eru þanin til hins ýtrasta, hjartað pumpar meira adrenalíni en blóði og maður fer að bera óttablandna virðingu fyrir umhverfinu. Með því að hjálpast að og samstilla krafta sína Metamótið er líka fastur liður í „SAMAN". Þá keppa mótsgestir sín á milli í stór- furðulegum og ekki alveg eins furðulegum íþrót- tagreinum og allt er lagt í sölurnar til að skrapa saman stigum fyrir sitt lið. Hápunktarnir voru kappátið (sumum finnst skyr betra en öðrum) og fatalínan (hver gengur í 10 stuttermabolum?). Eftir met á met ofan hittust mótsgestir og hjálparsveitafólkið fræddi skátana um feril útkalls, nýliðaþjálfun og fleira tengt björgunarstörfum. Þar kom fram margt fróðlegt og fyrir marga opnaðist þar nýr heimur. Eftir myndatöku í mótsbolum, sem Málning ehf. og Pizzan í Garðabæ gáfu mótsgestum, var hoppað upp í rútu og haldið heim - með bros á vör og regnblauta sokka. Þetta mót er ágætt dæmi um farsælt samstarf skátafélaga og björgunarsveita, sem mætti vera svo miklu meira. Það er augljóst að það er beggja hagur að vinna saman og einbeita sér saman að verkefnum frekar en að hver sé í sínu horni að finna upp hjólið. í dag er vitað um a.m.k. tvö skátafélög sem hafa nýverið skrifað undir samstarfssamning við björgunarsveitir og Starfsráð BÍS er í samvinnu við Slysa- varnarfélagið Lands- björgu, að vinna að sameiginlegu unglinga- starfi. Við bíðum spennt og hlökkum til að taka þátt í nýjum og spenn- andi verkefnum með Útkall á laugardagskvöldi. Snjónum kyngdi niður og skapaði magnaða stemmningu. Á litlu myndinni er verið að leggja af stað með „sjúkling" úr gilinu. Á leiðinni þurfti að vaða á. nýjum félögum! 0 Omega Farma HafnarfjarðarUær Orkuveita Reykjavíkur SKÁTABLAÐIÐ 21

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.