Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.2002, Qupperneq 23

Skátablaðið - 01.04.2002, Qupperneq 23
Eitt og annað „Gakktu á Hví klifra menn kletta og fjöll? Hvers vegna kjósa sumir lóðréttan vegginn fram yfir þægilegan göngustíg - er ekki allt í lagi með þessa menn? Af hverju geta þessir glæframenn ekki stundað boltaíþróttir, eins og venjulegt fólk? Svör við þessum spurningum færðu kannski ef þú lítur við í Klifurhúsinu! Þann 22.mars síðastllðinn opnaði Klifurhúsið. Klifurhúsið starfrækir ínnanhús klifuraðstöðu en um er að ræða klifurveggi af öllum stærðum og gerðum. Leiðsluveggur er til staðar ásamt helli og 3 misbröttum veggjum. Á staðnum eru linur og belti fyrir leiðsluvegg, og einnig er hægt að fá lánaða skó. Hæðin er 3-5 metrar á veggjunum og undir þeim öllum eru þykkar dýnur svo enginn slasi sig þegar dottið er. Við bendum fólki sem heimsækir Klifurhúsið á að virða þær reglur sem þar gilda og tökum jafnframt fram að yngri en 13 ára þurfa að koma í fylgd með fullorðnum. Klifur er íþrótt fyrir alla, verið því óhrædd að kíkja á vef Klifurhússins http://www.isalp.is/klifurhusid/ Klifurhúsið er staðsett í Skútuvogi 1G, gengið inn frá Barkarvogi. Opnunartími Klifurhússins er mán.-fimmtudag 17-22.30, föstud. 16-21 ,13-17 um helgar. Leitað oð leiðtogum Bandalag íslenskra skáta hefur hrundið af stað verkefni sem miðar að því að koma á skátaflokkum i sem flestum byggðar- lögum víðs vegar um land þar sem ekki eru starfandi skátafélög. Nú er veriö að leita að leiðtogaefnum á aldrinum 12 til 14 ára, haldið flokksforingjanámskeið og skundað með hópinn á landsmót. Skátaflokkarnir verða síðan stofnaðir í september. Ekki er stefnt að því að stofna skátafélög á þessum stöðum heldur aðeins að halda úti sjálfstæðum skátaflokkum sem verða í beinum tengslum við BÍS. Efni og hugmyndum verður að mestu dreift til þeirra í gegnum Skátavefinn. Sigurður Viktor Úlfarsson hefur verið ráðinn til að hleypa verkefninu af stokkunum og verður spennandi að sjá nýja sprota, nýtt skáta- starf verða til víðs vegar um landið næstu mánuðina. Við viljum hvetja gamla skáta sem búa í byggðarlögum þar sem ekki eru skátafélög til að líta í kringum sig eftir hugsan- legum flokksforingjaefnum á aldrinum 12 til 14 ára og láta Sigurð vita í síma 550 9800 eða með tölvupósti skataflokkar@scout.is. Viltu gerast starfsmaöur landsmóts skáta Við leitum eftir hressu fólki til að starfa með okkur á landsmótinu. Starfsmenn mótsins skiptast i tvo hluta; a) Starfsmenn ráða og nefnda: Þetta er lykilfólk sem tekur að sér að stjórna ákveðnum verkefnum fyrir landsmót. Þessir starfsmenn greiða ekki mótsgjald en fá mat þá daga sem þeirra póstar eru í gangi. b) Aðrir starfsmenn: Harðduglegt fólk sem tilbúið er að leggja sitt af mörkum að halda gott landmót. Greiðir 17.500 krónur í mótsgjald, fær öll einkenni mótsins, mat í mötuneyti landsmóts, miða ístarfsmannaferð og á sérstaka starfsmannaskemmtun eftir mótið. V. Ef þú villt bætast í hóþinn, kíktu þá á vefinn og skráðu þig strax í dag. V SKÁTABLAÐIÐ 23

x

Skátablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.