Sameiningin - 01.03.1936, Page 25
59
Árnaðarósk
Heimskringla árnar Sameiningunni heilla á 50 ára af-
mælinu, þakkar henni fyrir sérhvað það er hún hefir unnið í
þarfir íslenzks þjóðlifs hér vestra, og óskar að henni endist
aldur um langt skeið enn, að vinna að því, er Vestur-íslend-
ingum er til sæmdar og góðs, sem á liðinni tíð.
Stefán Einarsson,
ritstjóri Heimskringlu.
Afmælisóskir
í tilefni af hálfrar aldar afmæli Sameiningarinnar, finnur
Lögberg sér það bæði ljúft og skylt, að þakka afmælisbarn-
inu mikilvægt framlag til íslenzkra menningarmála vestan
hafs og árnar því giftuvænlegrar framtíðar. Sameiningin
hefir þegar orðið langlífust íslenzkra kirkjurita; að henni
hafa löngum staðið ritfærustu áhugamenn vors vestræna
þjóðarbrots; hún hefir reynst trú hinum lífrænustu menn-
ingarerfðum, tungu vorri og sögu. Megi áhrifa hennar og
starfs enn lengi gæta þjóðerni voru lil varðveizlu og sæmdar.
Virðingarfylst,
Einar P. Jónsson,
ritstjóri Lögbergs.
Compliments of
International Laboratories, Ltd.
PAINTS and VARNISHES
DES MEURONS& HAMEL ST. BONIFACE
Phone 201 147