Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1940, Side 18

Sameiningin - 01.04.1940, Side 18
segir að þrír menn hafi mist lifið af þeim sökum árið sem leið, en sex í hitt ið fyrra, og átta árið 1937. Virðist því áreiðanlegt að sá skrílsháttur sé nú að leggjast niður. Þessa framför þakka kunnugir aðallega góðri frammistöðu ]>resta og annara leiðandi manna í Suðurríkjunum; en drápin hafa langflest verið framin áður í þeim landshluta. + + + Á meðan Þjóðverjar eyddu Varsövaborg ineð eldi og sprengingum í haust, létu þeir þjóðkunnan málara, Ernst Vollmer, flögra þar yfir í loftfari og gjöra teikningar og ljósmyndir af borgarbrunanum. Síðan hefir hann unnið nokkur málverk upp úr þeim myndaforða. Þau voru sýnd í vetur um jólin á listastofu í Munich, og sumt af þeim litprentað í jólanúmeri blaðsins Völkische Beobachter, sem er leiðandi málgagn Hitlers. Þótti víst Hitlersmönnum ágætur jólaboðskapur vera fólginn í myndum þessum og efni þeirra. + + + Nokkuð á aðra miljón manna meiddust af bílaslysum sunnan “línunnar” á síðasta ári, og rúmar þrjátíu og tvær þúsundir létu lífið. Skýrslur telja fram allmargar orsakir að þessum slysum, og líklega með réttu; en ein er þó lang- tíðust — sú, að drukkinn maður heldur um hjálmunvölinn. ■f -f -f Þýzka þjóðin hefir lítinn fögnuð fundið í þessum ófriði, hvað sem stjórnarvölidin segja. Má sjá það á mörgum merkjum, að sögn manna sem þaðan koma. Blaðamaður nýkominn frá Þýzkalandi segist hafa verið í Berlín um jólaleytið í vetur og hlustað þar á fagran kirkjusöng eftir Bach. Söngsalurinn var troðfullur, og herklæddir menn dreifðir um allan hópinn. Þegar sunginn var textinn: “Friður á jörð,” voru flestir með tárvot augu, karlmenn ekki síður en lcvenfólk; og' eins þegar kom að seinasta söng- textanum: “Biðjið um frið.” — Rétt fyrir neðan þann texta var þessi stjórnarskipun á sönglistanum: “Ef hlásið er til aðvörunar um sprengitor í lofti, verður fólkið að hraða sér samstundis niður í kjallara.” —G. G. Gjöf í heimatrúboðssjóð: Vinur, Lundar, $'5.00.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.