Nýi tíminn - 15.03.1962, Síða 2
f Varðberg heitir ungur félags-
skapur, sem kynnir sig sem fé-
lag ungra manna. Sérgrein sína
telur hann vestræna samvinnu
og hlutverk sitt að kynna þá
samvinnu meðal fslendinga.
Tilgangi sínum ætlar félagið
að ná með fundahöldum fyrst
— og fremst, og hefur það þegar
haldið fimm fundi að minnsta
. kosti. Það mun vera sameigin-
legt einkenni allra þessara
_ funda. að þeir hefjast með
framsöguerindum þriggja for-
- ustumanna samtakanna frá höf-
uðs.töðvum þeirra, sem er sjálf
höfuðborg landsins. Að loknu.m
þessum framsöguerindum hefj-
ast síðan frjálsar umræður og
ræðutími þá fljótlega tak-
markaður niður í tíu og síð-
an fimm mínútur eftir ástæðum.
Það hafa birzt tvær greinar-
• góðar frásagnir af fundi Varð-
■ bergsmanna í Hafnarfirði, þar
: sem lýst er skýrt og skilmerki-
lega menningarreisn þeirri, sem
íundarboðendur gæddu fundinn.
Fundir þessir eru líka svo
. merkilegt menningarfyrirbæri
og varpa svo skýru Ijósi yfir
: vissa þætti menningarástands
þessara ára, að það er vissulega
. ómaksins vert að gera sér sem
fyllsta grein fyrir eðli . þeirra.
Það vildi svo tii| að ég var
■ staddur á einum slíkum fundi
é Selfossi. Af þeim fundi er að
.'.vísu ekki margt að segja fram
’ yfir það, sem lýsingar á Hafnar-
fjarðarfundinum bera með sér,
og verður hér lítið dvalið við
einstök atriði hans. En ég vildi
gjarnan koma á framfæri
nokkrum frómum hugleiðingum,
sem kviknuðu undir ræðum
Varðbergsmanna þar og þeirra
fvlglfiska og ég hygg að
verið einhverjum hjálp til að
gera sér enn skýrari grein fyr-
if eðli þeirrar menningarþróun-
ar, sem oþinberast einna Ijós-
■ légast. í starfi og starfsháttum
þeirra Varðbergsmanna.
Forustusveit Vairðbergs á fremsta bekk á fundi félagsins í Hafnarfirði. Þar mcinuðu fundarboðendur fundarmönnum að skcra úr um
hvort funduninn gerði ályktun um fundarefnið.
I gamla daga tók kirkjan upp
á því, þegar henni þótti söfn-
uðurinn bágrækur til hinna
himnesku föðurhúsa, að verja
miklum, og stundum mestöllum,
hluta ræðu sinnar, til að útlista
fyrir mönnum skelfingar helvít-
is, og skyldu þær vera sá hund-
ur,‘ sem hrekti sálirnar inn í
himnaríkissæluna, hvort sem
mönnum líkaði það betur eða
verr. Á 19. öld tóku prestarn-
ir að leggja þennan sið niður
sökum hæpins árangurs, og
munu margir hafa tekið undir
orð Skúla prófasts Gíslasonar
á Breiðabálstað, sem hljóðuðu
eitthvað á þessa leið: Enginn
skyldi ætla, að nokkur sála
hrökklist inn í himnaríki af ótt-
f "anum við helvíti.
En fyrir alþjóðleg áhrif hafa
íslenzkir auðvaldssinnar nú á
seinni árum tekið upp þennan
afdankaða kenningarmáta mið-
aldakirkjunnar, og upprennandi
6pámenn þeirra, sem kenna sig
við varðberg, hafa tekið alveg
sérstöku ástfóstri við hann. En
þar er skemmst frá að segja,
enda alþjóð kunnugt iað þegar
við byltinguna í Rússlandi fyr-.
ir nærri 45 árum tóku auðvalds-
■ sirinar um allan •'héim að inn-
rétta eitt meiri háttar helvíti
í . einum frjósömustu landshlut-
um þessarar jarðar. Við lifum á
öld hraðfara þróunar, og helvíti
þetta hiefur tekið ákaflegum
breytingum frá upphafi sinnar
tilvistar. í upphafi var það
vettvangur hverskonar morða
Gunnar Benediktsson
Fyrst urðu þar allir hungur-
morða. Svo drápu kommúnistar
alla fína menn og presta, stór-
bændur og atvinnurekendur. Þá
drápu kommúnistar hver annan,
og hélt svo áfram um sinn. í
afskekktustu heilabúum samtíð-
arinnar lifir hún enn trúin á
þetta helvíti, þótt við dvínandi
heilsu sé. En víðast er þessi
helvítisboðun orðin öll önnur
en hún var. Hungurmorð heyr-
ast vart lengjxr nefnd,. á nafn,
og annai’s konar morð hafa
einnig liðið undir lok hin síðari
ár, nema þá sem draumsjón,
þegar einhverjir höfðingjar
myrkraheimsins hafa horfið af
sviði daglegra umsvifa nokkra
daga af völdum kvefs eða ann-
arra farkvilla. Þá eru einnig
ýmsar vitaðar staðreyndir um
hinn fordæmda ‘ hjara heims-
byggðarinnar, sem síður emsvo
bendir til hörmungaástands,
þótt frægustu sælustaðir jarð-
lífsiris séu teknir til saman-
burðar. Þar hefur ekki þekkzt
atvirinuleysi frá fyrstu árunum.
Þar er skipulag á ellilaunum
og tryggingum hvers konar eitt
hið fullkomnasta, sem þekkist
um víða veröld. Þar eiga ungir
efnismenn greiðari aðgang til
mennta en annars staðar á
byggðu bóli, og gæti það með
miklum sennileik skýrt þá stað-
reynd, að á þessum slóðum hafa
menn hin síðari ár komizt fram
úr öðrum byggjendum jarðar-
innar í þýðingarmiklum vís-
indagreinum.
En helvíti skal það vera, og
helvíti það skal boðað sem ógn
yfir öllu mannkyni. Og svo eru
menn sendir út af örkinni til að
halda trúboðssamkomur, þar
sem ekkert er boðað nema þessi
eini kvalastaður, höfðingi hans
og árar, sem ganga ljósum log-
um mitt á meðal vor mannanna
sem úlfar í sauðagærum eða nyt-
samir sakleysingjar. Varðberg-
menn eru vígðir til fararinnar,
og vakningasamkomur eru
boðaðar víðs vegar um land.
Fátt getur keimlíkara en
Varðbergsfundi og vakninga-
samkomur strangtrúaðra sértrú-
arflokka, sem hafa nístandi
syndavitund og gapandi djúp
tortímingarinnar að hyrningar-
steinum trúar sinnar,. Ræða
þeirra er þurr og sneydd öllum
nýjum hugmyndum, hvergi
fram dreginn nýr flötur nokk-
urs málefnis. öll ræðan er boð-
skapur um hið ægilega helvíti
í anda hinnar einu sönnu skoð-
unar] svó sem hún stendur
skrifuð í Morgunblaðinu og öðr-
um óskeikulum ritum kapi-
taiskrar siðvæðingar... ÞfUk„VQtt- ,
ar ekki fyrir fagnaðarboðskapn-
um Um hið vestræna guðsríki,
þar sem hinar endurfæddu sálir
lifa í eilífri sameiningu við .
brezka landhelgisþjófaj vestur-
þýzka nazista og portúgalska
blökkumannamorðingja og aðra
virðulega fulltrúa þess heims,
sem kenndur er við hið sanna
frelsi. Fundarefnið er auglýst
Vestræn sámvinna, en það er
ekki minnzt á reýnslu okkar
Islendinga af þeirra samvinnu.
Það er látið liggja í þagnargildi,
hvern stuðning vestræn sam-
vinna hefur veitt ókkur í land-
helgismálinU. Það er ekkert'
minnzt á bingó og ekki á amer-
ríska kynblöndun mannfólksins,
sem hvort tveggja hefur flotið
í ríkum mæli hingað til lands
í kjölfar bandalags okkar við
vés.træn herveldi. Það er ekkert
minnzt: á allt gjafaféð frá
Bandaríkjunum bæði fyrr og
síðar, og í umræðum um vest-
ræna , sarriyinnu . hefði vel mátt
. getg þess, að . án hénnar. væri
sennilega ekki hægt að gefa út
Alþýðublaðið. Það er heldur
ekki tilfært sem rök fyrir vest-
rænni samvinnu, að fyrir henn-
ar hjálp stendur okkur nú til
boða sjónvarp á íslandi, þar
sem íslendingar þurfa ekki að
hafa neinar áhyggjur af útveg-
un sjónvarpsefnis, heldur kem-
ur það allt fullmallað á andans
boi’ð vor, svo sem það er lost-
rænast tilreitt handa hermanna-
skara í ókunnu iandi. Inntak
ræðunnar er aðeins hið eina
illa, ógn þess og skelfingar að
lenda á valdi þess, ábendingar
á útsendara þess og varnaðar-
orð gegn fagurgala þeirra.
Svo sem vera ber, streyma
allir sanntrúaðir héraðsbúar á
samkomurnar. Þar hlýða þeir
með andakt á prédikun orðsins,
og þegar prédikarinn kveður
fastast að orði um hina for-
dæmdu, svo sem að þeim skuli
varpað í myrkrin fyrir utan,
þá reka hinir trúuðu upp óp
mikil og lemja saman lófunum.
Það er þeirra hallelúja. Að
lokinni þöfuðprédikun dagsins
rísa hinir trúuðu á fætur hver
öðrum og vitna um trú sína
með miklum fögnuði yfir sinni
endurlausn og svellandi reiði í
garð hinna glötuðu. Þá snúast
þeir einnig til varnar gegn sér-
hverjum óguðlegumj sem tekur
til máls, og- færa fram nýjar
sannanir fyrir hinni einu sönnu
trú. Á Selfossi flutti einn höf-
uðklerkurinn þá kenningu, að
erkióvinurinn hefði gengizt fyr-
ir méiri háttar aftökum í Tékkó-
slóvakíu árið 1948. Þetta leið-
rétti einn hinna óendurfæddu
fundarmanna og vitnaði til
biblíu hinna trúuðu, sjálft
Morgunblaðið, en þar hafði ekki
staðið eitt eiriasfa orð tftri- af-
tökur í Tékkóslóvakíu á þeirri
tíð. Þá reis upp einn sómakenn-
ari, sem nýlega hafði sótt um
skólastjórn á staðnum og hér-
aðsbúar höfðu mælt með, þótt
ekki þóknaðist æðri völdum á
æðri stöðum að taka tillit til
þeirra óska. Nú vildi þessi á-
gæti kennari sýna það, að hann
væri sanntrúuð sál, og fullyrti,
að' víst hefðú aftökur átt sér
stað, og spurði, hvort enginn
myndi nú Masaryk. Að Vísu
hafði enginn fyrr heyrt Masaryk
nefndan í sambandi við aftök-
ur. En hverju máli skiptir það,
þegar er durfædd sál vottar
sanna trú sína í heyranda
hljóði?
Þá reis annar á fætur til að
opinbera sitt sanna hjartalag.
Sá hélt því mjög á loft, að’hann
væri danskmenntaðri en al-
mennt gérist. Því að það var
einmitt í kóngsins Kaupmanna-
höfn og á danskri tungu, sem
honum hafði ljóslegast opin-
berazt hin takmarkalausa
þjónkun kommúnistá um allan
heim við sjálfa myrkramaktina
í Moskvu. Og sú opinberun fólst
í því, að þegar uppreistin í
Ungverjalandi var brotin á bak
aftur sællar minningar. þá stóðu
þvert yfir síðu kommúnista-
blaðsins í Kaupmannahöfn þessi
félegu orð: jMeddelelse fra
Moskva“. „Þetta er á dönsku,
eins og þið heyrið“, sagði vitn-
ið. „og eins og þið vitið, þá
þýðir þetta: „Þráðurinn frá
Moskvu“ eða „línan frá
Moskvu““. Og áheyrendué sátu
eins og dæmdir, því að þessa
merkingu orðsins hafði enginn
heyrt fyrr. En því dýrlegri var
vitnisþiirð.uilna,^ þyí að .hann
var staðfesting ,;þess, að svo
mikið geta menn lagt á sig
fyrir hina einu sönnu trú, að
menn skirrast ekki við að gera
sig að fíflum á almannafæri.
Hvar skal staðar numið við
frásagnir af játningum hinna
sanntrúuðu á þessum fundi?
Enn kom í skriftastólinn einn
vinsæll læknir, sem neitaði sér
að vísu um að segja nokkra
átakanlega vitleysuj en hitt
duldist.ekki, að hann mátti vart
vatni halda og var reiðubúinn
á hverri stundu að úthella tár-
Framhald á 11; síðu.
; 2)' — NÝI fÍMINN — Fimmtudagur 15. maty. 1962'