Nýi tíminn - 16.05.1963, Side 12
Tímarit-
st|on a
Yarðbergs-
fundi
Eins og Þjóðviljinn hefur
bcnt á áður, tók fé-
lagið Varðberg mikið við-
bragð cftir hirtingu þá sem
Bjarni Beneditksson veitti
formanmi þess, framsókn-
armanninum Heimi Hann-
esssyni, I vetur. Byrjað var
með hádegisverði, þar sem
Bjarni Ben. flutti ræðu um
utanríkisstefnu SÍNA (sbr.
Morgunbiaðið siðustu daga).
Var hádegisverður þessi
snæddur í Bændahöllinni,
daginn áður en þing Fram-
sóknarflokksin skyldi hefj-
ast þar.
í fyrrakvöld bauð Varð-
berg meðlimum sínum svo
til kvöldverðar í Sjálfstæð-
ishúsinu og var þar rætt
um „framtíðarskipulag ís-
lenzkrar utanríkisþjónustu."
Meðal kvöldverðargesta var
Þórarinn Þórarinsson, rit-
stjóri Tímans, og virðist
kvöldvcrðarboðið hafa borið
skjótan árangur. Eins og
skýrt er nánar frá hér á
síðunni var forsíða Tím-
ans í gær eitt allsherjar
hcróp um stuðning Fram-
sóknarflokksins við her-
námsstefnu og NATÓ, —
enda þótt ritstjórinn
gleymdi ekki að biðja hátt-
virta kjósendur þess lengst
aiira orða, að þeir mættu
ekki kjósa um þá afstöðu
Framsóknar í kosningunum
9. júní n.k.
Framsókn lýsir yfir fullum
stuðningi við hernámstefnuna
VarSbergsliSiS i Framsókn
knýr fram hollustuyfirlýs-
ingu viS AflanzbandalagiS
Alþýðublaðið JÁTAR
■ I gær gefst Tíminn algerlega upp fyrir Morg-
unblaðinu og biðst vægðar í umræðum þeim sem
hafnar voru um utanríkismál í þessum blöð-
um. Lýsir blaðið yfir fullum og óskoruðum stuðn-
ingi við hernámsstefnuna og aðild íslands að
NATÓ, en segir því næst að alls ekki megi kjósa
um þessi mál — grundvallaratriði íslenzkrar ut-
anríkisstefnu í komandi kosningum.
■ Að svo miklu leyti sem kosið sé um utanríkis-
máL segir Tíminn, er eingöngu um að ræða að-
gerðir ríkisstjómarinnar 1 landhelgismálinu og
stefnuna gagnvart EBE.
Öllum er þó ljóst að stefna
núverandi stjómarflokka
bæði í landhelgismálinu og í
Efnahagsbandalagsmálinu er
rökrétt framhald af þeirri
utanríkisstefnu, sem her-
námssitdfnunni hefur fylgt
frá stríðslokum — og Tím-
inn lýsir yfir óskoruðum
stuðningi Framsóknarflokks-
ins við þá stefnu.
Framsóknarflokkurinn er
þannig með orsökinni en
móti afleiðingunum í land-
helgismálinu samkvæmt
málfluningi Tímans þessa
daga.
Sjá síðu 2.
Ritgerðasafn eftír
Laxness á dönsku
1 síðustu viku kom út á (or-
lagi Gyidendals í Kaupmanna-
höfn ritgerðasafn eftir Halldór
Kiljan Laxness. Er þetta fyrsta
ritgerðasafnið eftir höfundinn,
sem út er gefið á dönsku.
De islandske Sagaer og andre
Essays — íslendingasögurnar og
aðrar ritgerðir, er nafnið á safni
bessu. Erik Sönderholm hefur
valið ritgerðimar i safnrit
þetta og þýtt nokkrar þeirra
Aðrar hefur Laxness skrifað á
dönsku. Ritgerðimar em 18
talsins, og er þá með talin ræða
skáldsins, sem flutt var við
móttöku Nóbelsverðlauna £ ráð-
húsinu í Stokkhólmi í desember
1955, - • •
Á dönsku bera helztu ritgerð-
ir H. K. L. þessi heiti: Nota-
ter om de islandske sagaer —
Egill Skallagrimsson og TV —
Saga og sagaforskning —
Gammelt og nyt om islandsk
Iitteratur — En dansk digter
pá Island — Om Martin And-
ersen Nexö — Forfatteren og
hans værk — Forfatterens for-
hold til religionen — Digtning-
ens problematik í vor tid —
En amerikansk ábenbaring —
Slumcauseri — Nogle personlige
notater om roman og skuespil
— Island, Norden og Europa.
í gær játar Alþýðu-
blaðið skilyrðislaust að
yfirmenn íslenzku varð-
skipanna megi ekki und-
ir neinum skilyrðum
beita vopnum sínum í
viðskiptum við brezka
veiðiþjófa, eins og sjá
má af úrklippunni sem
hér er birt mynd af.
Segir Alþýðublaðið að
Bjarni Benediktsson
landhelgismálaráðherra
hafi mælt svo fyrir sam-
kvæmt eldra fordæmi
Framsóknarleiðtogans
Hermanns Jónassonar
sem áður hefur verið
vikið að hér í blaðinu.
Þessi játning Alþýðublaðsins
er mjög mikjlvæg, því hjngað
til hafa bæði stjórnarblöðin
borið á móti því að slík regla
hafi verið sett um athafnir
varðskipanna. Má ekki eiga von
á játningu um annað atriði i
leynisamningi Breta og íslenzku
ríkisstjórnarinnar, að ekki megi
taka brezka togara án þess að;
brezk herskip hafi verið kvatt
á vettvang og samþykkt tökuna?,
Fyrirmæli um að varðskipin ;
megi aldrei beita fallbyss-
um sínum í viðureign við land-
helgisbrjóta er á vitorði allra
brezkra togaraskipstjóra. Þess
vegna hegðaði skipstjórinn á
Milwood sér eins og raun ber
vitni. Þess vegna tók við eltinga-
leikur á hafinu og árekstur sem
hefði getað valdið alvarlegum;
slysum á mönnum.
Meðan varðskipin höfðu fyrir-
mælí um að beita yfirburðum:
sínum, þegar óhjákvæmilegt I
Varðgæzlaa í íslenzkri íiskveiði
lögsögu er löggæzlumál, eem heyr
ir undir dómsmálaráðherra. Her-
mann Jönasson var dómsmálaráð- ;
herra í vinstri stjórninni. Það kom
því í hans hlu.t að gefa íslenzku
várðskipunum fyrirmæli, ér þau
lentu í fyrstú átökum sínum við
Breta. Hermann markaði þá þeg
ar þá stefnu að skjóta ekki föstum
skotum á brezku togarana og þeirri^
stefnu Jiefur Bjarni Benediktssor/
fylgt sem dómsmálaráðherra 1 nú*
verandi ríkisstjórn. 2L
væri, kom það aðeins þrjsvar
sjnnum fyrir að íslenzkt varð-
skip neyddist tji að skjóta föst-
um skotum. Ástæðan var sú að
veiðiþjófamjr vissu hvers þeir
máttu vænta. völdu þann kost
að hlýða, þannig að mjög dró
úr allri áhættu við löggæzlu-
starfið. Stefna Bjama leiðir hins
vegar til stóraukinnar hættu,
jafnframt bví sem veiðiþjófarn-
ir geta leikið á landhelgisgæzl-
una og komizt undan eins og
nýjustu dæmin sanna.
Ver doktorsrítgerð
Um mánaðamótin maí—júni
mun Bjarni Guðnason magister
verja doktorsritgcrð sína „Um
Skjöldungasögu" við heimspeki-
dcild Háskóla Isiands, en rit-
gerðin kom út á dögunum á
forlagi Menningarsjóðs.
I formála segir höfundur
m.a.: „Vorið 1956 lauk ég
meistaraprófi í íslenzkum fræð-
um við Háskóla íslands og
fjallaði prófritgerð mín um Frá-
sagnir norrænna heimilda af
Ragnari loðbrók. Við þá rann-
sókn varð Skjöldungasaga á
vegi mínum. og komst ég þá
að raun um, hversu hugmynd-
ir manna um þetta merka rit
voru óljósar. Jafnframt fékk
ég hugboð um að ef til vill
mætti leggja eitthvað nýtt til
málanna í þessu efni, þótt ekk-
ert yrði úr þvi þá. Haustið
1956 varð ég góðu heilli sendi-
kennari í Uppsöum, og gafst
mér þá tækifæri til að taka
til óspilltra málanna við rann-
sókn á Skjöldungasögu.
Rannsókn þessa verkefnis
reyndist mér örðug. og tók þvi
verkið smám saman allt aðra
stefnu og fékk allt annan svip
en ætlunin var í öndverðu. . .
Ritgerðin sýnir árangurinn af
þessari sex ára íhlaupavin»u
minni“.
Áifam er unnii að |iví aB tryggja
eiiendu fjármagni völd á Islandi
■ Enda þótt fyrirætlanir valdhafanna um að
innlima ísland í Efnahagsbandalag Evrópu
hafi nú frestazt um sinn er áfram unnið af al-
efli að því að tryggja erlendu auðmagni fót-
festu á íslandi eftir öðrum leiðum.
Að undanförnu hefur þriggja manna nefnd
frá ríkisstjórninni dvalizt í Sviss til þess að
semja við alúminíumhring um byggingu alú-
miníumverksmiðju á Islandi í eigu erlendra
auðmanna. Nefndarmenn voru Jóhannes
Nordal bankastjóri, Eiríkur Briem verkfræð-
ingur og bandarískur sérfræðingur, mr. Willy.
Undirbúningur að þessu máli
hefur staðið yfir lengi. í ræðu
sinni á Varðarfundi í fyrra-
kvöld vék Jóhann Hafstein að
því og hefur Morgunblaðið m.
a. eftir honum þessi ummæli:
„Árið 1961 skipaði Bjarni
Benediktssan iðnaðarmálaráð-
herra nefnd til þess að kanna
möguleika og skilyrði til þess
að hér yrði komið upp stóriðju.
Hefur nefnd þessi síðan unnið
mikið starf og unnið að athug
un málsins í samráði við bæði
erlenda, einkum svissneska, og
innlenda sérfræðinga. Grundvöll-
ur stóriðjunnar er að sjálfsögðu
stórkostlegar raforkuvirkjanir í
miklu stærri stíl en við íslend-
ingar höfum enn virkjað fallvötn
okkar. Hefur aðallega verið unn-
ið að athugunum tveggja virkj-
unarmöguleika. virkjun Þjórsár
við Búrfell og Dettifoss ; Jökúls-
á á Fjöllum. Mundu virkjanir
þær, sem um yrði að ræða, kosta
12—14 hundruð milljónir króna,
og aluminiumverksmiðja senni-
lega svipaða upphæð. Hefur á-
vallt verið gengið út frá þeirri
forsendu, að íslendingar einir
ættu virkjanirnar, en samvinna
yrði höfð við erlenda tækni og
fjármagn um það að koma upp
aluminiumverksmiðjunni, sem
yrði hin$ vegar eign íslendinga
einna síðar eftir nánara sam-
komulagi.“
Fengi úrslitaáhrif
Samkvæmt þessum áformum
ætti alumíníumhringurinn að
ieggja fram fjármagn bæði í
verksmiðjuna og virkjunina.
nær þrjú þúsund milljónir króna.
Fjármagnið í virkjunina yrði
kallað lán. og það ættu íslend-
ingar að borga m.a með raf-
orku frá virkjuninni. Verksmiðj-
an yrði hjns vegar óskoruð eign
erlendra aðila, þótt ein’nver á-
kvæði fylgdu um að íslending-
ar gætu eignazt hana eftir tvo
eða þrjá áratugi eða enn lengri
tíma. Hins vegar myndi slík
verksmiðja þegar i stað bera
ægishjálm yfir öll önnur fyrir-
tæki á íslandi, og eigendur
hennar fengju þannig vald til
að skipa hér málum að eigin
geðþótta Þegar í undirbúnings-
samningunum hafa þeir sett
fram harðvítug skilyrði um
efnahagsstefnu íslendinga, vinnu-
’öggjöf kaupgjald og önnur at-
riði sem áhrif gætu haft á vænt-
anlegan gróða þeirra. Verði af
áformum ríkisstjórnarinnar um
að leyfa erlendum alúmíníum-
hring ag koma hér upp verk
smiðju hefur erlent auðma?r'
þannig fengið aðstöðu til úr
slitaáhrifa á allt þjóðlíf fslen'1
inga.
Forusta Framsóknar
Eins og áður er sagt eiga
þessar ráðagerðir sér langan
aðdraganda. Einn helzti upphafs-
maður þeirra var Steingrímur
Hermannsson, formaður Félags-
ungra Framsóknarmanna í
Reykjavik Qg Tíminn studdi
stefnu hans af alefli Steingrím-
ur vann að þvi árum saman að
koma á sambandi við alúmín-
íumhringa i Ameríku og Evrópu,
fékk fulltrúa þeirra hingað til
lands og samdi áætlanir og á-
litsgerðir fyrir stjómarvöldin.
Kostnaðurinn vi« há undirbún-
íngsvjnnu var allnr ?reiddur aí
háverandi finrn--'''-Ti!Sherra —
V.vsteini inn.-qy-r ,formannl
I Framsóknarflokksins.