Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 4
Frá aðalfundi Ungmennafélagsins.
Aðalfundur Ungmennafélagsins var haldinn í Aratungu þann 29. apríl sl. Vel var
mætt eða 31.
Fundurinn var með hefðbundnum hætti, þ.e.a.s. þegar Kjartan formaður var búinn að
setja fundinn, þá var skýrsla stjómar og fundargerð haustfundar. Þá sögðu
nefndarformenn frá störfum nefnda. Lagabreytmg var gerð til að lækka mætti aldur
félagsmanna og gekk stór hópur af ungum og efnilegum Tungnamönnum í félagið.
(Breytingin tekur til 4. gr. en hún er nú svona: “Félagar geta allir orðið, sem eru
fyllra sjö ára <áður: tólf ára >. Aðalfundur skal samþykkja inntöku nýrra félaga.
Ursögn úrfélagi skal tilkynna formanni, eigi síðar en á aðalfundi. Félagar greiði
árstillag til félagsins. Félagar yngri en 16 ára eru ekki gjaldskyldir. Felagar að tólf
ára aldri hafa hvorki kosningarétt né kjörgengi.”)
Sú breyting var gerð á skipun nefnda að sundnefnd og íþróttanefnd em einungis
skipaðar foreldrum en sett var á stofn sérstakt unglingaráð til að tala máli yngri
kynslóðarinnar.
Ymis málefni vom rædd eins og venja er og stóð fundurinn yfir í 3 tíma og 30
mínútur.
Skógræktarfélag eða skógræktamefnd?
Sumir vilja að nefndin okkar verði lögð niður og stofnað verði öflugt skógræktarfélag
en sýndist sitt hverjum um þau mál. Litlar breytingar urðu á stjóm, þó sagði Þor-
steinn Bragason sig úr stjóm og varamenn em allir nýir. Að endingu vil eg taka undir
með Amóri Karlssyni er hann svaraði ^agnrýni á útgáfunefnd að menn mættu ekki
gleyma að félagsmenn vinna verk sín í sjálfboðavinnu og oft væri þessi vinna
töluverð því bæri að líta starf félagsmanna jákvæðum augum og einblína ekki á allt
það sem gæti þó verið betra.
F.h. U.M.F.B.
Ingibjörg Sverrisdóttir.
Stjórn U.M.F.Bisk. Sundnefnd: Gústaf Sæland
Kjartan Sveinsson formaður Ragnheiður Jónasdóttir
Skarphéðinn Pétursson varaformaður Pcrla Smáradóttir
Ingibjörg Sverrisdóttir Róbert Róbertsson ritari gjaldkeri Stígur Sæland varamaður.
Sigurjón Sæland meðstjómandi UnglingaráS:
Linda Guðjónsdóttir varamaður Linda Guðjónsdóttir formaður
Magnús Ásbjömsson - Skarphéðinn Pétursson varaformaður
Róbert Einar Jensson íþróttanefnd: Guðrún Magnúsdóttir Haukur Bjömsson Björg Ólafsdóttir
Jóhanna Róbertsdóttir Páll Skúlason Egill Jónasson formaður Róbert Einar Jensson Eiríkur Sæland
Jens P.Jóhannsson varamaður. Fulltrúi í rekstrarnefnd: Kjartan Sveinsson
íþróttavallarnefnd: Gunnar Sverrisson Ingibjörg Sverrisdóttir varamaður.
Sveinn A. Sæland varamaður. Skógrtektarnefnd: Gylfi Haraldsson
Litli-Bergþór 4