Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 26
Frá Kvenfélaginu.
„... að verafrekar en að sýnast.“
Hinn 15 apríl s.l. hélt Kvenfélag
Biskupstungna upp á 60 ára
afmæli sitt með hátíðarfundi að
Hótel Geysi. Alls mættu 46
félagskonur í afmælishófið og
gekkst félagið fyrir rútuferð á
fundinn. Nýkjörinn formaður,
Elinborg Sigurðardóttir, setti
samkomuna og bauð félagskonur
velkomnarmeðlitluvorljóði. Þá
minntisthún stofnunarfélagsins
og einkunnarorða þess, að vera
frekar en að sýnast. Hún sagði
félagið standa í þakkarskuld við
margar konur, sem hefðu lagt á
sig mörg störf í þágu félagsins í
áraraðir. Við skyldum minnast
þeirra allra með þakkarhug og
muna að við hefðum tekið við
arfi frá þeim sem á undan væru
gengnar.
Þá gat hún þess að það væri von
hennar og trú að þessi arfur mætti
varðveitast og eflast, áður en við
skiluðum honum til komandi
kynslóða. Við nutum góðs
kvöldverðar og fram fór
útnefning heiðursfélaga. Alls
voru 7 konur gerðar að heiðurs-
félögum.
Þessum konum voru þökkuð
velunnin störf í þágu félagsins í
áraraðir með blómvendi og
heiðursskjali. Við óskum þeim
allrar blessunar og vonumst til
að njóta samfylgdar þeirra um
langa framtíð.
Þá las formaður upp bréf sem
borist hafði, sem svar við
auglýsingu félagsins um land til
skógræktar. Það var frá hjón-
unum á Spóastöðum Áslaugu og
Þorfinni um ca. 1 ha.landsspildu
og var samþykkt einróma, að
þiggja boð þetta að afloknum
samningum um landssvæðið.
Gaman væri að geta hafist handa
nú í vor og plantað út tijám á
afmælisárinu, alla vega skip-
uðum við skógræktarnefnd og
hana skipa: Elsa í Asparlundi
formaður, Karítas í Heiðmörk,
Kristín í Víðigerði og Renata í
Brekkugerði.
Áfram leið kvöldið og
skemmtum við okkur við leik,
söng og gamanmál ýmiskonar
undir öruggri veislustjórn
Guðrúnar Guðmundsdóttur í
Hlíðartúni. Heim héldu
kvenfélagskonur kl 01, í
farteskinu höfðu þær nýgerðan
fána Kvenfélagsins, málshætti,
blóm og vonandi góðar
minningar um afmælishátíðina.
Að afloknum vetrarhörkunum
hófst mikil fundarhrina hjá
hinum ýmsu félögum og þá um
leið kaffisala félagsins. Kallar
það á bakstur og vinnu félags-
kvenna undir skipulagningu ný-
skipaðrar veitingakonu Maríu
Þórarinsdóttur í Fellskoti og
nefndarkvenna hennar.
Veitingasalan er ein af fjár-
öflunum Kvenfélagsins. Einnig
starfar fjáröflunamefnd, skipuð
6 konum og veitir Jónína
Jónsdóttir á Lindarbrekku henni
forstöðuþettaárið. Tungnamenn
og aðrir fóru ekki varhluta af
fyrstu störfum nefndarinnar, er
þær upphófu blómasölu eina
mikla laugardaginn 13. maí s.l.
og seldu afskorin blóm í tilefni
mæðradagsoghvítasunnu. Hér
með eru þakkaðar góðar
móttökur og undirtektir allar.
Hafa þær nefndarkonur
ýmiskonar önnur fjáröflunar-
áform á pijónunum, sem líta
munu dagsins ljós síðar.
Föstudagskvöldið 5. maí s.l. var
kvenfélagskonum ásamt mökum
boðið í heimsókn til Kvenfélags
Skeiðahrepps. Þangað fóru um
50 manns og nutu gestrisni,
góðrar skemmtunar og dansað
varíBrautarholti áSkeiðumlangt
fram eftir kvöldi, meðan
vorrigningin lamdi allt utan-
dyra.
Síðasta samkoma eldri sveit-
unga á þessum vetri var haldin
fimmtudaginn 18.maís.l. ívetur
gekk heldur erfiðlega að halda
uppi þessu starfi, sakir ófærðar
og ótíðar, en “það gengur bara
beturnæst”. Áformað var aðhafa
samkomur einu sinni í mánuði,
það tókst nú ekki, en á þeim
samkomum sem voru, sáu kven-
félagskonur um veitingar á
meðan eldra fólkið skemmti sér
með góðum gestum við spil,
myndasýningar o.fl. Á sumar-
daginn fyrsta var eldra fólkinu
úr Hrunamannahrepp boðið á
samkomu í Aratungu af eldri
sveitungum og Kvenfélaginu.
Þar var glatt á hjalla.
V orfundur Kvenfélagsins verður
íbyrjunjúní, fundarstaðurhefur
enn ekki verið ákveðinn, en stefnt
er á að hafa fundinn með svipuðu
sniði og s.l. vor, sem að gafst
mjög vel. Fundurinn verður
auglýstur nánar þegar þar að
kemur og á honum verða kynnt
ýmiss mál sem eru á döfinni.
Eflum félagsstarfið og vekjum
starfsandann félaginu okkur í
hag,” því hvað má höndin ein og
ein ef allir standa ei saman?“
Elínborg og Áslaug.
Litli-Bergþór 26