Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 25
Starf Skálholtsskóla ... - frh.
leikfimi. Samtengt þessum sal
verði bókasafn. Þáverðurbyggð
lítil starfsmannaíbúð. Allir, sem
nálægt rekstri skólans hafa
komið, þekkja hversu rekstar-
einingin er lítil og hve starfsemi
erþröngurstakkurskorin. Þessar
viðbyggingar munu tryggja, að
hinn ytri rammi verði hagkvæm
eining, sem gefur kost á mjög
aukinni starfsemi. Þessar
viðbyggingar eru forsenda þess
að hin nýja skólastefna nái fram
að ganga.
Ekki felldur niöur
- heldur efldur.
Steinsteypa og rammi eru ekkert
ef hjartsláttinn vantar. Skál-
holtsskóla verður breytt mjög.
Lýðháskóli verður ekki lagður
niðurheldurefldur. Mennspyrja
sig, hvað Skálholtsskóli sé og
hafa horft mjög á rekstur
heimavistardeildar. Lýðháskóli
er ekki heimavistardeild heldur
hugsjónarstarf, mannrækt í anda
þeirra tveggja þátta, sem fram
koma í markmiðsgrein skólans:
"Að starfa í anda kristinnar
kirkju og þjóðlegrar menningar-
arfleifðar okkar Islendinga”. Þó
nú verði gerðar miklar breytingar
á starfsemi skólans, hefur enginn
hug á að yfirgefa lýðháskólastarf
heldur laga starfssemina að
nútímaþörfum, bæði hvað varðar
inntak og starfshætti. Fjallað
verður um hagnýt efni annars
vegar og hins vegar verða í stað
vetrarlangs námskeiðs haldin
stutt námskeið, frá 2 dögum og
allt að einum og hálfum mánuði
(tímalengd námskeiðanna hefur
ekki verið endanlega ákveðin).
Ef aðstæður breytast og þegar
húsnæði skólans er orðið meira,
er engan veginn útilokað að
heimavistardeild verði stofnsett
að nýju. Er rætt m.a. um lýð-
háskólanám í 5 Norðurlöndum
og verði Skálholtsskóli einn
skólanna, sem tæki þátt í þessari
áætlun.
Arfur íslendinga
- samtíð og trú.
Segja má, að starfsemi skólans
frá hausti 1989-90 verði þrenns
konar. I fyrsta lagi verður fj allað
um íslenskan menningararf og
tungu. Fjallað verður um
átrúnað, bókmenntir, þjóðhætti
og siði, listir o.fl. Þá verður efnt
til námskeiða fyrir útlendinga
um arf okkar. Skólinn verður að
nokkru leyti gluggi útlendra
manna til íslensks þjóðararfs,
sem er næsta eðlilegt vegna sögu
Skálholtsstaðar.
I öðm lagi verða á dagskrá ýmis
samtíðamál. Efnt verður til
námskeiða um deiglumál sam-
tíðar, hvert íslensk menning
stefnir og ætti að stefna. Þá
verður reynt, að þjónusta
nærsveitunga og Sunnlendinga
eftirmegni. Haldiðverðuráfram
kvöldfræðslu. Gengið verður til
samstarfs við Farskóla Suður-
lands. Þá hefur skólanefnd
fagnað áformum um stofnun
Lista- og menningarsamtaka
Suðurlands, sem Hjörtur Þórar-
inson hefur barist fyrir að yrðu
stofnuð og ættu samastað í
Skálholti. Mun skólinn reyna að
veita þessari hugmynd
brautargengi. Þáerljóstaðfjöldi
námskeiða um átakaskeið
ævinnar verða á dagskrá.
Hjónanámskeið skólans hafa
gefið góða raun. Áform eru um,
að halda námskeið, sem nýst
gætu fólki, sem er að glíma við
nýjar aðstæður og ný hlutverk.
Reynt verður að spanna
lífsskeiðið allt, frá þrítugsaldri
allt til elli.
I þriðja lagi verður efnt til
kirkjulegra samfunda. Komið
hefur í ljós, að þörf er fyrir
Kyrrðardaga. í haust mun verða
haldið námskeið fyrir verðandi
leiðtoga á Kyrrðardögum og
síðan verða Kyrrðardagar haldnir
reglulega. I annan stað mun
skólinn efna til námskeiða fyrir
starfsmenn safnaða, s.s. sóknar-
nefndarmenn. Þá verða haldin
námskeið fyrir leikmenn um
ýmis efni, fyrir presta og aðra þá
sem sinnatrúfræðslu, t.d. fóstrur,
kennara o.fl. Ráðstefnur, s.s.
akademíur verða ennfremur á
dagskrá.
Framtíö og samvinna.
Starfsemi skólans hefur ekki
verið rekin í vetur með blæstri
og látum. En gróðrartíminn er
hafinn. Eins og fræið fellur í
myrkan svörðinn, spírar í kyrrð
og myrkri hefur uppby gging farið
fram með kyrrð. Nú er komið að
sprettutíð Skálholtsskóla.
Skólinn tekur stakkaskiptum á
árinu bæði hið ytra sem og hið
innra. Égvonasttil, aðkalblettir
verði engir og starf hans verði
okkur öllum til blessunar.
Skólinn er líka vettvangur fyrir
þig, sem þessi orð lest. Þú mátt
vita, að hann er opin stofnun.
Reynt er að koma til móts við
óskir heimamanna. Raunar
þarfnast hann þess, að hér í héraði
sé hópur fólks, sem tekur þátt í
starfi hans og slær vörð um hann.
Verður í þessu sambandi að
minna á mikið og fómfúst starf
Arnórs Karlssonar frá upphafi
Skálholtsskóla. Breyting á starfi
skólans gerir það mögulegt, að
þjónusta heimamenn betur en
áður. En slfk þjónusta verður þá
fyrst marksækin, ef heimamenn
sýna frumkvæði og leita eftir
þjónustu. Með þökk fyrir
umhyggju, fyrirspumir og störf
margra heimamanna síðastliðið
ár.
Bestu kveðjur,
SigurðurÁrni Þórðarson.
Litli-Bergþór 25