Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 13

Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 13
íþróttir/77líþróttirl77líþróttirl77/íþróttir Héraðsmót H.S.K. í borðtennis. Héraösmót H.S.K. í borðtennis var haldiö aö Laugarvatni 6. maí 1989. Árangur krakka úr U.M.F. Bisk var þessi: 10 ára og yngrl hnokkar: 2. Axel Sæland 3. Jónas Unnarsson 11-12 ára stelpur: 1. Eva Sæland 11-12 ára strákar: 4. Einar Páll Mímisson 5. Böðvar Þór Unnarsson 13-14 ára stelpur: 2. Guörún Magnúsdóttir 3. Sigrún Erna Guðjónsdóttir 15-16 ára sveinar: 6. Skarphéðinn Pétursson U.M.F. Bisk. varö í 2. sæti meö 31,5 stig. Ur Arsskýrslu Umf. Bisk. 1989. Jœja kœru félagar, þá er veturinn liðinn og sumarið tekið við samkvœmt almanakinu þótt veðráttan segi annað. Veturinn hefur liðið án stórra áfalla fyrir íþróttanefndina. Reyndarvarlítiðstarfaðfram aðáramótum þarsem hluti hennarvarfjarverandieneftiráramótvoruhaldnirnokkrir fundirog margt rœtt. Til að byrja með voru íþróttaœfingar þrisvaríviku. A þriðjudagskvöldum œfðu yngri krakkarnir undir stjórn foreldra og voru systurnar Margrét og Ingibjörg Sverrisdœturþarfremstaríflokki. Áfimmtudagskvöldum voru eldri krakkarnir undir stjórn Ólafs Óskarssonar. Á föstudögum voru svo körfuboltaœfingar á Laugarvatni en þœr hafa ekki gengið nógu vel vegna veðurs. Rétt eftir áramót var haldinn fundur með foreldrum og voru þarsettarfram tillögur um að œfingarnar í Aratungu yrðu settar á eitt kvöld til að nýta þjálfarann okkar betur ogvarþaðsamþykktseinnaáíþróttanefndarfundi. Einnig komu tillögur um œfingakvöld sem svo voru felld niður af stjórninni. Já, við höfum fengið þjálfara. Ólafur Óskarsson heitir hann og erum við mjög ánœgð með hann. Ólafur hefur unnið mjög gott starf hér og vonumst við eftir að samstarfið haldi áfram á sömu braut. Ekki er hœgt að enda þetta íþróttarabb án þess að minnast á foreldrastarfið en á það hefur komist hreyfing og er það á góðri leið með að blómstra. Á fyrrnefndum fundi voru tveir foreldrar valdir til að starfa með íþróttanefnd og hafa þau verið starfi sínu vaxin að öllu leyti. Vona ég að þessu starfi verði haldið áfram. Fundir voru haldnir og foreldrum kynnt uppeldisstarfið sem Ungmennafélagið rekur fyrir börn þeirra. íþróttamót voru nokkur í vetur og náðist nokkuð góður árangur þar en helstu úrslit hafa birst í Litla- Bergþór og tel ég því ekki þarft að eyða meiri pappír eða pennableki í það að undanskildu einu móti sem var nú reyndar fyrsta mót sumarsins: Þriggjafélagamót Umf. Bisk., Hvatarog ^Laugdœla en þó lokaúrslit hafi ekki verið okkur í vil þá ‘held ég að ég megi fullyrða að allirskemmtu sérvel. Sem sagt ánœgjuleg keppni. Magnús Ásbjörnsson. Litli-Bergþór 13

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.