Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 9

Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 9
Hvítárvatn - frh. verður ekki gjört án kostnaðar; og því er hætt við að svo f ari með þenna bjargræðisveg sem ýmsa fleiri: að einstakir menn eru trauðir að leggja fram kostnað af litlum ef num, fyr en reynzlan erfengin fyrir því að þaö borgisigvel. Það vantar þá að »brjóta ísinn«. Að vísu gjörði ég, ásamt tveimr öðrum, tilraun til aö veiða silung í Hvítárvatni ífyrra haust. En hún varð ekki að fullu marki. Raunar kostuðum við talsverðu til ; en veiðarfæri okkar reyndust þó ónóg og ekki hentug ; því varð árangrinn miklu minni en annars mundi hafa orðið. Sjálfir vorum við enda lítt fallnir til þessa fyrirtækis;alliróvanirþesskonarveiöiskap,aldrhnignir og 2 af okkr heilsutæpir; fengum þar að auki óveðr. Þrátt fyrir alt þetta varð þó afli okkar nægilegr til að gefa þá hugmynd, aö mjög mikið mætti afla þar með góðum útbúnaði og hyggilegri aöferð. Samt er ég hræddr um að lítið verði úr því, að fleiri reyni þetta, eða að meiru verði til þess kostað, og álít ég það skaða eigi lítinn. Mér kemr í hug að stinga upp á því, að styrkur verði veittr af opinberu f é til þess, að koma gangi á notkun þessa bjargræðisvegs. Þaö fé, sem til þessagengi, mundi naumast verða, þegarfrá líðr, talið meðalþessfjár, sem lakastþykirvariö. Mérhefir fundizt að peningar þeir, sem alþingi veitti til búnaðarlegra framfara 1881 og sem sýslunefndirnar hafa skipt milli hreppanna, mættu brúkast í þessari sveit til að koma veiði á í Hvítárvatni og svo hefir fleirum fundizt, en sýslufundarmaðr okkar Biskupstungnamanna segir mér, að sýslufundr Árnessýslu hafi komizt að þeirri niðrstööu, að brúkun þeirra peninga til annars eins fyrirtækis og að koma veiði á við Hvítárvatn væri á móti tilgangi alþingis. Þessu á ég bágt með að trúa, því ef það lukkaðist aö koma þar á veiði, gæti það orðið sveitinni mikill hagr. Það er oflítið gefið sig við að nota þaö, sem landið gef r af sér, en á meöan þess er ekki gætt, er hætt við að framförin verði seinfær, því það mun lengi reynast satt, að hollr er heimafenginn baggi. Hér í sveit eru tvær stórár, Hvítá og Brúará. í þeim báðum er mikill silungr og líklega í Tungnafljótinu líka, víst upp að Vatnsleysu-fossi, og nokkur er hann í því öllu, en mjög lítiö hefirverið stunduð silungsveiði í þeim öllum til þessa, sem þó enginn ef i er á að gæti orðið til mesta gagns. Ég get af eigin reynslu sagt um veiðina í Brúará. Ég bjó á jörð, sem á land að nefndri á, mín fyrstu 15 búskaparár, og var veiði mín þar hvert ár svo hundruðum skipti af vænum silungi; líka veiddi ég þar öll þau ártil muna af laxi, sem ég er viss um að hefði mátt vera meira. En síðan fór ég frá nefndri jörö, hefir enginn stundaö þar veiði, en það er nú orðinn 27 ára tími. Þetta finst mér talandi dæmi upp á, hvað menn eru tregir að nota það, sem að miklu gagni gæti orðiö, ef notað væri. En að sækja langar leiðir lítilfjörlegt fiskætisruslfyrirafarverð.talarenginnum, þvívaninn með sínu ofurvaldi gjörir mörgum það girnilegra, en það sem næst liggr. Pylsur-ÍS Sími: 98-68999 Bensín, olíu- og fer&avörur. Matvörur. Grænmeti á góöu veröi beint úr gróöurhúsinu. Einnig öl, tóbak, sælgæti og ýmislegt fleira s.s. heybindigarn í mörgum litum. Videoleiga, lukkumiöar og LOTTO 5/38 . Opið{ 1. júní - 31. áqúst: 10-12 og 13-22 alla daga. 1. sept - 31. maí: 10-12 og 13-18 mánud. - föstud. 11-12 og 13-18 laugard. - sunnud. Gnefðsfi/kortaþfónusta. Verib velkomin Erum ávallt í leiðinni Litli-Bergþór 9

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.