Litli Bergþór - 01.06.1989, Page 8
Hvítárvatn - frh.
Hvítárvatn - Skriðufell.
víöast eru þær grasi vaxnar, hvönn og ýmsu
blómgresi. Undirlendi erþarlítiö, nemadálítil malareyri
viö vogsbotninn, þar sem lækr fellr úr hlíðinni ofan í
hann. Vogr þessi kallast Karlsdráttr. Sunnanmegin
vogsinsgengrhöfðifram ívatniöúrfjallinu. Af honum
er mjög fagrt og einkennilegt útsýni og þó nokkuö
stórskorið. Skriöjöklarnir blasa þar andspænis viö,
meö sínum ógnandi brúnum, alþaktir hroöalegum
sprungum og geigvænum gjám. Ef hiti er eöa regn
heyrir maör iðulega skelli og skruðning, því þá eru
jökulbjörg við og við aö hrapa ofan í vatniö, en þau
sem komin eru langt niör í vatnið líta út til aö sjá eins
og út þanin segl á hafskipi. Þau eru ýmist fleiri eöa
færri eftir veöráttu, því ekki eru þau alllengi aö bráöna
þegar hlýtt er. - Sunnan í höfðanum erfögr grasbrekka
meö margskonarblómgresi. Fram meö honum kemr
Fróöáog fellr ívatniö sunnan undir honum. Hún kemr
fram úr Fróðárdal, sem liggr milli fjalls þess er nýlega
var getiö og Hrefnubúöa,-svo heitir fjall eigi alllítiö.
Dalrinn er grösóttr, og gengr hann alveg fram aö
vatni. Fróöáerbergvatn. HinumeginviöHrefnubúöir
kemr fram Fúlakvísl, þaö er jökulvatn, og kemr úr
Langajökli í 2 kvíslum, erönnurfellr um Miödali en hin
um Þjófadali, og koma saman fyrirofan Þverbrekkur.
Báöum megin Fúlukvíslar eru allmiklir mýraflákar
fram aö vatninu. Mýraflákinn fyrir sunnan hana heitir
Hvítárnes; þaö er mikið víölendi, noröan frá Fúlukvísl
suör aö Tjarná og ofan frá Kjalhrauni fram aö
Hvítárvatni. Víöa er Hvítárnes ilt yfirferöar vegna
bleytu, en víöa er þar gras mikið, og ágætt haglendi
einkum fyrir stórgripi, enda er engi iö bezta ef í bygö
væri; sér í lagi meö fram Tjarná. Tjarnir eru þar víöa
og ósarúr þeim; þar er mikið af álftum. Tjarná er ekki
stór; hún kemur úr mörgum tjörnum og fellr í vatnið
sunnarlega ; Svartá þó nokkru sunnar, og eru
mestmegnis þur og blásin hrjóstr milli þeirra. Svartá
verör úrtveim kvíslum; kemrönnur upp austan undir
Kjalfelli, en hin fyrir hrauniö sem gengr fram aö
Gránunesi. Kjalfell er hátt fjall á fjóröungamótum.
Fróðárdalur - Leggjabrjótur.
SkammtfráþvísérennstaöinnþarsemReynistaöar-
bræör uröu úti ; sést þar stór hrúga af sauða og
hrossa beinum. Frá útfalli Svartár er eigi alllangt
þangaö sem Hvítá fellr úr vatninu.
Leifarsjást affornvirkjum á þessu plássi. Fyrir austan
Tjarná, ofanvert má sjá rústir af talsverðum tóftum ;
raunar eru þær mjög niðr sokknar, en þó má sjá
nokkurnveginn fyrir sex tóftum ; ætla ég þaö hafi
hlotið aö vera bær, þó ekki gæti ég gjört mér Ijósa
hugmynd um húsaskipun. Áöörum staöfyrirframan
Svartá hefi ég einnig séö leifar af byggingu ; þar er
raunar örblásiö, þó sér þar til tófta ; aska er þar og
beinarusl, og ýmsir smáhlutir af járni haf a f undizt þar.
Ekki er ólíklegt aö víðar finnist þar fornleifar ef vel er
eftir tekiö. í Karlsdrætti, vestanvert viö lækinn, sjást
rústir af allstórri hústóft, víst 20 álna langri, en víddin
sést ógjörla. Þaö er varla efi á aö þar hefir veriö
veiðiskáli. Svo segja gömul munnmæli, aö til forna
haf i þótt eins gott að eiga mann viö Hvítárvatn eins og
í góöri hlutarvon viö sjó ; og önnur munnmæli segja
aö nafnið Karlsdráttrsé svo til komið aö þegar menn
hættu aö stunda veiðiskap í vatninu, þá hafi karl einn
haldiö henni lengst áfram. Hann lagði net í vog-
armynnið; en af því hann haföi ekki bát, þá haföi hann
þaö ráö, aö leiða folaldsmeri yfir fyrir voginn en lét
folaldið bíöa í bandi ööru megin viö mynniö. Þegar
merin kom þar á mótsviö, batt hann vaö viö hana, og
slepti henni svo ; svam hún þá yfir umtil folaldsins og
drógvaðkarlsinsmeösér. Hanngekksvoyfirfyriraftr
og dróg út netið á vaðnum.
Þaö hefir án efa staðið í sambandi viö aöra deyfð og
aftrför landsmanna á miðöldunum, aö þeir hættu aö
stunda veiðiskap í Hvítárvatni; því enn er bæöi vatnið
og allar ár, sem í þaö falla, fullar af silungi, mest
bleikju, og mun ávalt svo hafa verið. Þaö var nú sér
í lagi þetta, sem kom mér til aö vekja eftirtekt á
Hvítárvatni. Ég er viss um, aö færi menn aö stunda
veiðiskap þar aftr, þá gæti þaö orðið álitleg
bjargræöisuppspretta fyrir næstu sveitir. En þetta
Litli-Bergþór 8