Litli Bergþór - 01.06.1989, Blaðsíða 23
Atvinnumál.
Aukin uppbygging - auknir atvinnumöguleikar!
Nú er verið að undirbúa stofnun
fyrirtækis hér í sveit til að
framleiða einingar í veggi og
þök húsa. Forsaga þessa máls er
í stuttu máli sú að Límtré h.f.
fékk styrk til að vinna að svo-
nefndu iðnþróunarverkefni.
Niðurstaða þess var sú að hag-
kvæmt væri að framleiða hér þak
- og veggeiningar eftir annars
vegar dönsku einkaleyfi og heitir
verksmiðjan sem framleiðir þær
í Danmörku TÁSINGE TRÆ,
og hins vegar norsku, og heitir
verksmiðjan í Noregi LETT-
TAK. StjómLímtréssamþykkti
að bjóða hreppunum sem aðild
eiga að því að nota þessa
niðurstöðu. Ákveðið var að
vinna að stofnun fyrirtækis um
þetta á svipuðum gmndvelli og
Límtré, enda var í sam-
starfssamningi milli sveit-
arfélaganna um stofnun þess
alltaf gert ráð fyrir að Límtré
væri aðeins fyrsta skrefið íþessu
samstarfi. Kjörin var
samstarfshópur, sem í eiga sæti
oddvitar hreppanna og fram-
kvæmdastjóri Límtrés. Þessi
hópur komst fljótlega að þeirri
niðurstöðu að rétt væri að velja
verksmiðjunni stað í Reykholti í
Biskupstungum. Ergertráðfyrir
að hún rísi á hreppslandinu á
Norðurbrún.
Gert er ráð fyrir að verksmiðjan
kosti um 40 milljónir kr.
Áformað er að hlutafé fyrir-
tækisins verðikr. 20 milljónir og
munu hrepparnir kaupa um 51 %
af því. Skiptist það þannig að í
hlut Biskupstungnahrepps kemur
5.620.000,-, Gnúpveijahrepps
kr. 1.400.000,-,
Hrunamannahrepps kr.
2.180.000,-, og Skeiðahrepps kr.
1.000.000,-. Sótt verður um lán
hjá Byggðastofnun til að greiða
þetta með, og standa vonir til að
fasteigna-og aðstöðugjöld af
verksmiðjunni geti staðið undir
afborgunum af þeim.
I upphafi er gert ráð fyrir að
fastráða 5 starfsmenn í fram-
leiðslu en lausráða 5-10 menn,
en við full afköst munu starfa þar
15-18 menn og að auki 2-3 við
hönnunogsölu. Áþriðjastarfsári
er áætlað að velta verði komin í
um 100 milljónir króna.
Tæknilegur undirbúningur er
unnin hjá Límtré og er áætlað að
hann kosti um 4,4 milljónir fram
að stofnun fyrirtækisins. Límtré
mun verða hluthafi í þessu
fyrirtæki, en ekki hefur verið.
ákveðið hvort allt þetta fé verður
lagt fram sem hlutafé.
„... œttiframleiðsla að geta
byrjað í ársbyrjun 1990. ...
s
A þriðja starfsári er áœtlað
að velta verði komin í um
100 milljónir króna. “
Áformað er að stofna hluta-
félagið í ágúst í sumar og verði
upp úr því hafist handa um að
byggja verksmiðjuhúsið og ætti
framleiðsla að geta byrjað í
ársbyrjun 1990. Allt er þetta þó
háð því að áætlanir standist, svo
sem að lánastofnanir telji
fyrirtækið lánshæft og takist að
safna nægu hlutafé.
Ráðinn hefur verið starfsmaður
til að sjá um undirbúning þessa
fyrirtækis og er gert ráð fyrir að
hann verði framkvæmdarstjóri
þessa.m.k. tilaðbyijameð. Hann
hefur raunar staífað við þetta
verkefni frá upphafi. Sá heitir
Sigurður Guðmundsson og er
bæði byggingameistari og
viðskiptafræðingur að mennt.
Hann er búsettur í Hafnarfirði en
á sumarhús á Syðri-Reykjum I.
Kynningarfundur var haldinn um
þetta í Aratungu 9. maí sl. Á
honum vom um 40 manns og þar
skráðu 28 sig sem væntanlega
hlutafj árkaupendur.
Nafn á hlutafélagið verður end-
anlega ákveðið á stofnfundi en
þá þarf að liggja fyrir tillaga sem
samkomulaggeturorðiðum. Hér
eru nokkrar uppástungur: Skýli,
Létteining, Kjöreining, Ylein-
ing, Léttþak, Skjólholt, Skjól-
eining, Léttholt,Límeining.
A.K.
Mín
uppástunga er
ÞAKÞIL.
En ég held að
BERGÞIL
myndi nú selja mest.
Litli-Bergþór 23