Litli Bergþór - 01.06.1989, Qupperneq 24
Starf Skálholtsskóla og framtíðin.
Vetrarstarf Skálholtsskóla.
Góður maður spurði mig, hvort
nokkur starfsemi væri í
Skálholtsskóla í vetur. Hann
sagði mér einnig, að sveitungar
okkar spyrðu sig hins sama.
Þessu er til að svara, að um 700
manns hafa sótt námskeið og
verið á ráðstefnum í skólanum í
vetur. Flestir þessara hafa verið
þátttakenduránámskeiðum, sem
skólinn hefur staðið fyrir. Að
auki hefur skólinn gengið til
samstarfs með ýmsum aðilum
og haldið námskeið. Þriðji hóp-
urinn hefur síðan fengið aðstöðu
í skólanum fyrir námskeið.
Fjórði hópurinn, sem ekki er
talinn með hér, eru fundarmenn
á alls konar fundum, s.s. nær-
sveitungar á aðalfundi sauð-
fjárræktenda og undirbúnings-
fundir um Farskóla Suðurlands
og annað í þeim dúr. Er mjög
gleðilegt, að heimamenn finni
sig æ betur heima í Skálholts-
skóla. Það hefur verið yfirlýst
stefna mín, að reyna að opna
skólann fyrir starfssemi heima-
manna. Dæmi um þetta eru
kvöldnámskeið, sem hófust fyrir
rúmlega tveimur árum.
Viðgerðir og ný skólastefna
Síðasta skólaár var skólahlé, þrátt
fyrirfjöldanámskeiða. Þegarég
kom til skólans fyrir tveimur og
hálfu ári, tók ég þá stefnu að reka
þrenns konar skólastarfsemi:
heimavistardeild, kvöldfræðslu
ogstandafyrirnámskeiðum. Ég
hugsaði hina síðari þætti sem
tilraunastarf í ljósi þess, að
heimavistardeild átti undir högg
að sækja. Reynslan sýndi einnig,
að Skálholtsskóli átti við sama
vanda að stríða sem margir aðrir
heimavistarskólar. Nemendur
þeir, sem sóttu til skólans,
þörfnuðust meiri þjónustu en
skólinn hafði mannafla til.
Skólanefnd ákvað því, að reka
ekki heimavistamám 1988-89.
Samþykktu menntamálaráð-
herraráætlanirskólanefndar. Var
ákveðið að nota hluta
kennslukvóta til viðgerða á
húsnæði skólans og móta nýja
skólastefnu.
Að þessu tvennu hefur verið
unnið og gengið vel. Margir
hafa undrast, að skólanum skyldi
hafa verið úthlutuð rífleg
fjárveiting á árinu 1989.
Skýringin er einföld.
Skólahúsinu var aldrei lokið og
viðhaldmjöglítið. Eftirlitsmenn
ráðuneytis gerðu sér grein fyiir
hinum miklu skemmdum, sem
voru að verða vegna
viðhaldsleysis. Niðurstaða
margra funda var sú, að ráð væri
að gera átak í viðhaldsmálum og
fékkst góð fjárveiting á árinu til
að ljúka skólabyggingunni og
koma í gott horf. Viðgerðirhafa
staðið yfir og mun
skólahúsnæðið í lok ársins
væntanlega verða komið í gott
horf.
Lok byggingaframkvæmda.
Þá hefur Kirkjuráð samþykkt, að
ljúka byggingu skólans til að
skapa betri rekstrarmöguleika og
auka fjölbreytni í skólahaldi.
Standa nú yfir samningar við
ráðuneyti um fjárveitingar til
þessa. Viðbygging verður
teiknuð á árinu og framkvæmdir
væntanlega hafnar á næsta ári.
Áætlað er, að byggja heima-
vistarálmu með 20 herbergjum
til viðbótar þeim 10, sem fyrir
eru. Þá er áætlað, að byggja
fjölnota sal fyrir ráðstefnur,
sýningar, kennslu og létta
Litli-Bergþór 24