Litli Bergþór - 01.06.1991, Page 23
Þegar við höfðum fengið okkur fullsaddar af
risaskjaldbökum, skelltum við okkur á puttanum
yfir á vesturströnd Malaysíu, fyrst til
höfuðborgarinnar Kuala Lumpur og síðan áfram
til Penang. sem er m.a. þekkt fyrir ódýrar
ferðaskrifstofur. Þar ætluðum við heldur betur að
gera reyfarakaup á flugmiðum, en létum í staðinn
pretta okkur illilega. Borguðum miðann áður en
við fengum hann í hendurnar, sem voru slæm
mistök. Þeir á ferðaskrifstofunni sögðu að við
þyrftum að bíða í nokkra daga eftir miðunum, en
við höfðum pantað okkur far til Súmatra og
nenntum ekki að breyta því. Sögðumst því bara
sækja miðana þegar við kæmum til baka eftir
mánuð og héldum kátar til Súmatra. En þegar við
komum til baka var skrifstofan farin á hausinn, og
við búnar að tapa 725 Bandaríkjadölum hver.
Við vildum auðvitað ekki gefast upp við svo
búið, kærðum þetta til lögreglunnar og
ferðamálaskrifstofu Penang, og veifuðum
blaðamannapassanum frá Þjóðviljanum, sem við
höfðum fengið áður en við lögðum af stað.
Sögðumst myndu eyðileggja orðstír Penang sem
ferðamannabæjar, ef ekkert yrði gert í málunum.
Anna komst meira að segja á forsíðu eins
slúðurblaðsins í Malaysíu útaf þessu. En hvort
sem það var vegna þess eða einhvers annars, þá
var forstjóri ferðaskrifstofunnar og allt hans
starfslið handtekið og réttað í málinu á stundinni,
sem er mjög óvanalegt þarna. Árangurinn var þó
ekki annar en sá, eftir viku vitnaleiðslur og bið á
lögreglustöðinni, að dómur yrði kveðinn upp eftir
3 mánuði. Ef forstjórinn yrði dæmdur sekur,
gætum við fengið okkur lögfræðing og reynt að fá
eitthvað út úr þrotabúinu. Því nenntum við ekki
að bíða eftir, gáfumst því upp og keyptum nýja
miða. Það voru á annað hundrað ferðamenn þama
á sama báti og við, og hvort einhver fékk einhverjar
bætur, veit ég ekki.
SÚMATRA
Nú er að segja frá mánaðar ferðinni til Súmatra,
sem við fórum meðan við vorum að bíða eftir
flugmiðunum okkar góðu. Súmatra er ein af
stærstu eyjum Indónesíu, (en alls eru eyjarnar
taldar vera yfir 3000). Við flugum frá Penang til
Medan á Sumatra þ. 30. maí og fengum þá enn
einu sinni, það sem á dönsku heitir "kúltúrsjokk",
en hefurveriðþýttmenningaráfall áíslensku. Það
var eins og að koma til Indlands aftur, eftir að hafa
verið í Singapore og Malaysíu, sem eru tiltölulega
vestræn lönd. Múslímsku áhrifin voru áberandi.
Þegar við komum út af flugvellinum, vorum við
umkringdar af "snarbrjáluðum" karlpeningi, sem
allirvildu bjóðaokkuródýrastafarartækið, hótelið,
eða aðra þjónustu, - talandi og hrópandi hver upp
íannan. - Allirreyndu annaðhvortað snertaokkur
eða einblíndu á okkur eins og naut á nývirki, eins
og þeir hefðu aldrei séð kvenmann áður. Og
fæstir töluðu ensku.
En sem betur fer reyndist Medan ekki vera
einkennandifyrir Súmötru. Landiðerbæðifallegt
og frjósamt, með hitabeltis frumskóga og eldfjöll,
og mannlífið fjölbreytt. Margskonar þjóðflokkar
með mismunandi menningu og trúarbrögð lifa
þar, og húsbyggingalist Súmatrabúa er kafli útaf
fyrir sig. Góni karlmanna og öðrum múslímskum
ósiðum vandist maður, eða lærði að leiða hjá sér.
V ið fórum strax frá Medan, og upp til Toba-vatns.
sem er stórt stöðuvatn, um 80 km á lengd, á
miðhálendi N-S úmötru. Þar er mjög fallegt, vatnið
er girt fjöllum, og úti í miðju vatni er eyjan
Samosir. stór fjöllótt eyja, þar sem Batak-
þjóðflokkurinnbýr. Viðvorum 12dagaáeyjunni.
Höfðum bækistöð á stað, sem hét því skemmtilega
nafni "Tuck Tuck Timbul", hjá fjölskyldu, sem
leigði út nokkur lítil "Batakhús" til ferðamanna.
Við Anna fórum þarna í viku fjallgöngu yfir
eyna og til baka aftur. Á leiðinni bjuggum við hjá
innfæddum fjölskyldum, og lærðum margt um
Batakfólkið í leiðinni. - M.a. hvernig þeir halda á
sér hita á nóttinni! - Fyrstu nóttina hríðskulfum
við á strámottunni, sem var eina húsgagnið í
kofanum. En þegar við heimtuðum teppi kvöldið
eftir, var okkur sagt að vefja mottunni utan um
okkur, og það dugði til að halda hitanum við
skrokkinn. Eftir það steinsváfum við. -
Ur dagbókinni er lýsing á því þegar við villtumst
í frumskóginum á 2. degi göngunnar:
"Vöknuðum heldur kaldar og illa sofnar um 7
leytið, við heimilishljóðin. Fékk heilt vaskafat af
heitri núðlusúpu og egg í morgunmat, sem kom
blóðrásinni á hreifingu. Gerðum upp, tókum
mynd af mömmunni höggva eldivið og síðan af
Litli - Bergþór 23