Litli Bergþór - 01.04.1996, Qupperneq 6
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsráðsfundur 7. nóvember 1995.
Kauptilboð í hlöðu, hesthús og fjárhús á
Drumboddsstöðum I. Seljendur: Svavar Á.
Sveinsson og Laufey Eiríksdóttir. Kaupendur:
Björn Gíslason og Vilborg Hannesdóttir, Háagerði
41. Samþykkt að leggja til við hreppsnefnd að
hreppurinn neyti ekki forkaupsréttar. Svavar sat hjá
við afgreiðslu.
Fundargerð fundar hjá byggingafulltrúa frá 24.
október 1995 lögð fram en hann sátu fulltrúar allra
hreppanna ásamt skipulagsstjóra ríkisins.
Skýrsla Tónlistarskóla Árnessýslu vegna
vettvangsferðar skólans, m.a. í Reykholt, lögð fram.
Tillaga kom fram um að kaupa hlut tónlistarskólans í
rafmagnspíanói sem er í skólanum v/flutnings
tónlistarskólans í húsnæði Aratungu. Keypt verði
75% af píanóinu en fyrri eign skólans var 25%.
Kaupverð kr. 141.570,-.
Bréf frá Byggðastofnun frá 20. október og
uppgjör mála vegna Yleiningar kynnt. Hreppurinn
fær styrk kr. 957.000,- frá Byggðastofnun vegna
atvinnumála. Greidd var upp ábyrgð sem féll á
hreppinn vegna Yleiningar að upphæð kr.
6.334.283,-. Tekið var lán hjá Lánasjóði
sveitarfélaga að upphæð kr. 7.105.725,- til 15 ára.
Vextir 4,8%.
Lagt fram bréf Brunos Hjaltested frá 26. okt.
s.l. þar sem hann samþykkir friðun Reykholts f.h.
umbjóðanda síns.
Bréf frá „Dagsbrún" dags. 16.10.1995
varðandi samþykki þeirra á uppsetningu og viðhaldi
girðingar að Reykholti lagt fram og staðfest.
Bréf Haraldar Friðrikssonar frá 16. okt., þar
sem hann býður þjónustu sína til upptöku og
skráningar á myndefni og heimildum um mannlíf,
byggðarlög og sveitir á íslandi, lagt fram.
Bréf SASS frá 12. okt. um tekjujöfnunarframlag
v/1995. Biskupstungnahreppur fær kr. 5.487.720,-.
Bréf Sigurðar Sigurðssonar dýralæknis dags.
9.10. þar sem hann beinir því til hreppsn. að beita
sér fyrir samþykki um bann á heimtöku fjár úr réttum
og af bæjum í Hrunamannahreppi, og að samþykkt
sé að fé sem kemur þar fyrir megi flytja beint til
sláturhúss. Erindinu vísað til fjallskilanefndar til
umsagnar. Fyrirhugað er að endurskoða í vetur
fjallskilareglugerðir fyrir Árnessýslu. Fram eru
komnar hugmyndir um breytingar á fjallskiladögum
m.a. að Tungnaréttir verði á laugardegi.
Hugmyndunum vísað til umfjöllunar í fjallskilanefnd.
Bréf Ara og Ragnars sálfræðinga
fræðsluskrifstofu varðandi yfirfærslu sálfræði- og
ráðgjafarþjónustu grunnskólanna til
sveitarfélaganna, lagt fram.
Ársskýrsla Biskupstungnahrepps v/ársins
1994 kynnt, en hún hefur verið send á öll heimili í
sveitinni.
Hreppsnefndarfundur haldinn í Aratungu
16. nóvember 1995.
Páll M. Skúlason sagði frá ráðstefnu um
skólaskrifstofu Suðurlands og flutning grunnskólans
frá ríki til sveitarfélaga sem haldinn var á Hellu 21.
okt. Málið var rætt en ákvörðun frestað til fundar
þann 7. 12. 1995.
Ferðamálafulltrúar Ásborg og Jón K.B. komu á
fundinn og lögðu fram yfirlit yfir auglýsingakostnað
vegna ferðaþjónustu fyrir 1995. Rætt var um
auglýsingar fyrir næsta ár m.t.t. hámarks nýtingu
fjármagns.
Lagt fram bréf frá Ólafi Dýrmundssyni og Ágústi
Sigurðssyni um fjallferðir, réttir og ferðaþjónustu.
Málinu vísað til fjallskilanefndar og
ferðamálafulltrúa.
Bréf og erindi Samb. ísl. sveitarfélaga 13. nóv.
lagt fram. Samþykkt að oddviti undirriti umboð til
launanefndar sveitarfélaga til gerðar kjarasamnings
við Kennarasamband ísl. og H.Í.K.
Samþykkt að hreppsnefnd veiti Flateyrarhreppi
fjárhagsaðstoð kr. 40.000,-.
Slysavarnadeild Biskupstungna hefur óskað
eftir því að fá sæluhúsið við Fremstaver til umráða í
vetur. Húsið verði læst en forstofa opin.
Hreppsnefnd samþykkir, enda verði fyllsta öryggis
gætt og húsið nýtist sem neyðarskýli.
Hreppsnefndarfundur haldinn í Aratungu
30. nóvember 1995.
Tillaga að stofnsamningi Skólaskrifstofu
Suðurlands. Lagt fram bréf frá SASS dags. 17.
nóvember 1995 þar sem boðað er til aukafundar
SASS 7. 12. 1995. Meðfylgjandi er tillaga að
stofnsamningi Skólaskrifstofu Suðurlands. Óskað
er eftir því að sveitarfélög tilkynni fyrir 1. desember
1995 ef þau ætla ekki að taka þátt í skólaskrifstofu,
einnig ef veigamiklar athugasemdir eru gerðar. Ef
svo er ekki verði fulltrúa sveitarfélagsins falið að
undirrita samninginn á fundinum. Fulltrúar eru
tilnefndir á fundinn.
Eftirfarandi breytingartillaga var samþykkt:
6. grein hljóði svo:
Stjórn skólaskrifstofu ræður faglegan
stjórnanda skrifstofunnar úr hópi sérfræðinga
hennar.
Hann skal sinna viðskiptavinum skrifstofunnar
á sínu sérfræðisviði, en auk þess bera faglega
ábyrgð á starfi hennar og leiða starf hóps
starfsmanna hennar, sem sinnir ráðgjöf við
skólastjórnendur og sveitarsjórnir. Hann skal
ennfremur sinna faglegri áætlanagerð í samráði
við stjórn skrifstofunnar og framkvæmdastjóra
SASS.
Önnur mál.
Gísli og Sveinn ræddu um ferðamál og starf
Litli - Bergþór 6