Litli Bergþór - 01.04.1996, Qupperneq 7

Litli Bergþór - 01.04.1996, Qupperneq 7
Hreppsnefndarfréttir ferðamálafulltrúa. Samþykkt að ráða Ásborgu Arnþórsdóttur sem ferðamálafulltrúa og leggja til þess hálf árslaun frá áramótum. Hreppsráðsfundur 5. desember 1995. Mætt: Gísli Einarsson, Drífa Kristjánsdóttir og Guðmundur Ingólfsson en hann tekur sæti í hreppsráði til eins árs. Bréf frá Samb. ísl. sveitarfélaga frá 15. nóvember 1995 þar sem kynnt er samþykkt stjórnar um að skipa þriggja manna vinnuhóp til að taka á vanda unglinga vegna fíkniefnanotkunar. Samþykkt var að kynna bréfið í félagsmálanefnd og hjá Ungmennafélaginu. Bréf frá Skipulagi ríkisins dags. 23. nóv. um samþykki þeirra að taka þátt í kostnaði við endurskoðun aðalskipulags Reykholts, lagt fram. Bréf frá Landgræðslu ríkisins dags. 22. nóvember um niðurstöðu könnunar á hrossahögum í hreppnum kynnt. Landgræðslan telur að á 13 jörðum sé um beitarvandamál að ræða. Fundargerð stjórnarfundar SASS frá 15. nóvember en þar voru lögð fram drög að samningi um rekstur skólaskrifstofu. Bréf frá Grími Jónssyni og Guðmundi B. Sigurðssyni þar sem þeir kynna þjónustu sína til framkvæmda á fráveitum. Þeir hafa annast slíka framkvæmd í Ölfushreppi s.l. sumar. Með bréfinu fyglja teikningar og umsögn Ölfushrepps vegna þessa. Lagt fram bréf frá Sambandi ísl. sveitarfélaga frá 30. nóvember 1995, þar sem minnt er á að ákvörðun sveitarstjórna um útsvarsprósentu þarf að vera tekin fyrir 1. desember 1995 v/tekna 1996. Álagning útsvars er nú 9,2% og hreppsráð leggur til að hún haldist óbreytt áfram. Lagt fram til kynningar riftunarsamningur vegna Stalla, frá 21. nóvember 1995 og er því Björn Bj. Jónsson löglegur eigandi ylræktarbýlisins Stalla. Lagt fram bréf frá Fasteignamati ríkisins dags. 1. desember 1995. Fram kemur að heildar- gjaldstofn hefur hækkað um 3,4% milli ára og er nú kr. 3.331.062 þús. fyrir Biskupstungnahrepp. Nú hefur verið endumetið 97,24% af öllum mannvirkjum í Biskupstungnahreppi. Bréf dags. 28. nóv. 1995 frá Magnúsi Má Magnússyni þar sem hann kynnir verkefnið „Ungt fólk í Evrópu" og biður einnig um aðila sem getur verið „tengill" fyrir hönd sveitarfélagsins. Samþ. að senda formanni U.M.F.B. bréfið. Hreppsnefndarfundur 14. desember 1995. Gengið var frá bréfi til Vegagerðar og þingmanna Suðurlands um að hvergi verði hvikað frá vegaáætlun varðandi vegi í Biskupstungum. Bréfið var undirritað af hreppsnefndarmönnum. Lagt fram fundarboð um aukafund Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands í Vík 15. desember 1995 kl. 13.00 ásamt dagskrá og tillögu stjórnar um að framlög til Atvinnuþróunarsjóðs verði óbreytt fyrir næsta ár. Hreppsnefnd samþykkir tillögu stjórnar. Bréf Skipulags ríkisins frá 7. des. 1995 þar sem heimiluð er auglýsing á deiliskipulagi Skálholts- staðar. Bréf til hluthafa í Yleiningu h.f. dags. 6.12. 1995 þar sem þeim er boðinn forkaupsréttur að auknu hlutafé í félaginu. Hreppsnefnd þiggur það ekki, umfram það sem þegar er frá gegnið. Kjörinn var í stjórn Hitaveitu Reykholts Þórarinn Þorfinnsson. Samþykkt að beina því til Umhverfisnefndar að hún beiti sér fyrir fræðslu um meðferð og förgun sorps. Hreppsráðsfundur 9. janúar 1996. Bréf frá Alnæmissamtökunum frá 1. des. 1995 þar sem þau fara fram á fjárhagsstuðning. Lagt til að vísa afgreiðslu bréfsins til fjárhagsáætlunar- gerðar. Bréf Gylfa Haraldssonar frá 28. des. 1995 þar sem hann fer fram á að fá ^_____________ land til hrossabeitar úr^^ "" landi Laugaráss. f Passið að Gylfi ojbeiti ekki Gerður hefur verið l Laugarás! leigusamningur við ^— Benedikt Skúlason þar -------------Kfi sem hann fær allan beitarrétt á landi Laugaráss, sem ekki hefur verið leigður út með lóðarsamningum eða verður leigður á samningstímanum. Benedikt er heimilt að endurleigja beitarrétt sinn og skulu íbúar í Laugarási hafa forgang til hestabeitar gegn sanngjarnri greiðslu, skv. taxta Bændasamtakanna. Oddvita falið að skýra málið fyrir báðum aðilum. é Bréf Umhverfisnefndar Alþingis frá 12. ~ des. 1995 lagt fram. Einnig liggur frammi til kynningar afrit af bréfi til Alþingis frá ** eigendum Haukadals dags. 13. des. 1995. Fundargerð aukafundar SASS 7. des. lögð fram og stofnsamningur um skólaskrifstofu. Bréf frá Ferðafélagi íslands frá 15. des. 1995 lagt fram, þar sem óskað er eftir heimild til að stækka hús þeirra við Þverbrekknamúla. Samþykkt að leggja til að breytingin verði heimiluð. Bréf frá Ólafi Björnssyni dags. 15. des. lagt fram. Bréfið er sent fyrir Njörð Jónsson, Brattholti, og er ítrekuð ósk hans um að fá leyfi til að byggja söluskála við Sigríðarstofu eða söluskála við Gullfoss. Einnig er óskað eftir að Biskupstungnahreppur beiti sér fyrir því að haldinn verði fundur um málið með viðkomandi aðilum. Ákveðið að oddviti ræði málin við Ferðamálaráð. Litli - Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.