Litli Bergþór - 01.04.1996, Page 9

Litli Bergþór - 01.04.1996, Page 9
Hreppsnefndarfréttir Deiliskipulag Hótel Geysis, eig. Már Sigurðsson, af svæði dvalarhúsa kynnt. Samþykkt að óska eftir heimild Skipulags ríkisins til að auglýsa tillöguna. Vinna við gerð fjárhagsáætlunar 1996. Ákveðið að oddviti finni út og taki saman lögbundin og föst framlög auk beiðna og bókana vegna fjárhagsáæltunargerðar. Hreppsráðsfundur 22. febrúar 1996. Lögð fram 1. fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands frá 14. febrúar 1996. Ingunn Guðmundsdóttir kosinn formaður stjórnar. Bréf Fjölbrautaskóla Suðurlands frá 15. 2. 1996 þar sem boðið er til hátíðardagskrár vegna opnunar á nýju bókasafni í skólanum. Fundarboð frá Umhverfisráðuneytinu. Fundurinn verður haldinn á Hvolsvelli 29. febrúar. Sveitarsjórnarmenn á Suðurlandi boðaðir til fundarins. Fundarboðið sent viðeigandi nefndum og forstöðumanni áhaldahússins. Kynntar fundargerðir stjórnar SASS frá 16. janúar og 7. febrúar 1996. í fundargerð kemur fram að aðalfundur SASS verður 22. og 23. mars n.k. og þarf að kjósa fulltrúa sveitarfélagsins á fundinn sem fyrst. Bréf Sorpstöðvarinnar frá 7. febrúar, staðfesting gjaldskrár stöðvarinnar. Gjald fyrir sorp frá aðildarsveitarfélögum kr. 1,50 ákg. Gjald fyrir sláturúrgang kr. 3,0. Afgfreiðslugjald fyrir hverja losun kr. 500,-. Bréf frá Félgi aldraðra þar sem farið er fram á að lagfæra hljómburð í Bergholti þ.e. í aðstöðu þeirri sem aldraðir hafa. Loftur beðinn um að gera tillögur um málið. Bréf frá Þorsteini P. Sverrissyni og Ingvari Guðmundssyni dags. 28. 1. 1996. Þeirfélagar fara fram á styrk og/eða auglýsingu á rallbifreið sína keppnisárið 1996. Samþykkt að veita þeim styrk í formi auglýsingar að upphæð kr. 50.000,-. Bréf frá U.M.F. Bisk. dags. 28. janúar þar sem formaður leggur fram óskir félagsins varðandi fjárhagsáætlun 1996. Farið er fram á fjárstyrk kr. 350.000,- og húsaleigustyrk kr. 280.000,-. Jafnframt er óskað eftir fjárstyrk til leikdeildar allt að kr. 220.000,-. Bréf frá Skipulagi ríkisins frá 19. febrúar 1996 þar sem heimiluð er auglýsing v/breytinga á aðalskipulagi Laugaráss og Skálholts. Fjárhagsáætlun: Unnið var í fjárhagsáætlun en ekki náðist að Ijúka fyrstu yfirferð. Framhaldsvinna ákveðin kl. 10.00 þriðjudaginn 27. febrúar. Hreppsráðsfundur 27. febrúar 1996 kl. 10.00. Framhald vinnu við fjárhagsáætlun. Kristinn M. Bárðarson mætti á fundinn og skýrði forsendur skólans vegna fjárhagsáætlunar. Samþykkt að leggja til við hreppsnefnd varðandi framhald vinnu vegna fjárhagsáætlunar að breytingatillögur verði lagðar fyrir hreppsráð sem vinni úr þeim áfram. Hreppsnefndarfundur 27. febrúar 1996. Fundargerð hreppráðs 22. febrúar 1996. Formaður skólanefndar mætti á dagskrá vegna opnunar á nýju bókasafni Fjölbrautaskóla Suðurlands. Færði hann safninu að gjöf fyrir hönd hreppsins bækurnar „Inn til fjalla I - lll“. Bókun v. fundargerðar SASS, 3. liðar: Á fundi hreppa vestan Hvítár sem haldinn var á Borg í Grímsnesi þann 15. febrúar 1995 var ákveðið að oddviti Laugardalshrepps boðaði þá sömu aðila til næsta fundar á Laugarvatni. í fundargerð SASS frá 7. febrúar kemur fram að sameiningarfundur hafi verið haldinn að Laugarvatni 17. janúar 1996. Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps óskar eftir því að fá upplýsingar um niðurstöðu fundarins sé þess nokkur kostur. Fundargerðin staðfest. Fjárhagsáætlun 1996 fyrri umræða. Drög að fjárhagsáætlun 1996 yfirfarin og kynnt. Fundargerð Fjallskilanefndar 5. 2.1996 lögð fram. Farið hefur fram verslun með fé milli varnarhólfa í Biskupstungum. Hreppsnefnd fer fram á að kindunum verði lógað. Lögð var fram tillaga um að gerð verði áætlun um lokun skurða og lýsingu í þéttbýli til fjögurra ára. Erindinu vísað til hreppsráðs. Samantekt D.K. BISK-VERK C ) Tökum að okkur alla byggingastarfsemi Nýsmíði - Viðhald Sumarhúsaþj ónusta Þorsteinn Þórarinsson, sími 486 8862 Skúli Sveinsson................. 486 8982 Bílasími 853 5391 Litli - Bergþór 9

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.