Litli Bergþór - 01.04.1996, Page 14

Litli Bergþór - 01.04.1996, Page 14
STROKKUR og hverasvæðið í Haukadal eftir Ingólf Guðnason. Hverasvæðið í Haukadal hefur verið þekkt víða um lönd í mörg hundruð ár vegna hins nafntogaða goshvers Geysis. Enn í dag hefur Geysir mikið aðdráttarafl, eins og Biskupstungnamenn vita manna best, og hefur margt verið um hann ritað gegnum tíðina. Eg ætla ekki að bæta við það heldur vil ég einkum gera að umtalsefni nágranna hans, Strokk, sem í raun hefur haldið uppi hróðri Geysissvæðisins um langa hríð. í ritinu „Eyjar í eldhafi“ ( Afmælisrit til heiðurs Jóni Jónssyni fil. lic. jarðfræðingi 85 ára þann 3. október 1995) er að finna grein um Strokk eftir Helga Torfason. Þar er greinargóð lýsing á hvemum og „gossögu“ hans. Hér verður einkum stuðst við þessa grein en einnig við aðrar heimildir, s.s. Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar og Jarðfræði, saga bergs og lands eftir Þorleif Einarsson jarðfræðing. Lýsing. Strokkur er goshver eins og Geysir. Fleiri goshverir eru á svæðinu, t.d. Óþerrishola og Smiður. I Reykholti er einnig goshver þótt honum hafi ekki verið sýndur sá sómi sem honum ber. Strokkur dregur nafn sitt af lögun gospípunnar, sem er (eða öllu heldur var ) víð að ofan en mjókkaði niður og í laginu eins og strokkur. Hann gýs mjög snöggu gosi,og kemur venjulega aðeins ein gusa úr honum. Gosannáll. Hér verður getið nokkurra athugana frá fyrri tíð, þar sem Strokks er getið. Aðallega er stuðst við grein Helga Torfasonar. 1708. Strokkur er stíflaður með torfi og grjóti til að forða túninu á Laug frá skaða. ( Talið að um Strokk sé að ræða.) Nokkrar heimildir eru um að skepnum hafi verið hætta búin vegna hveranna. I Jarðabók Arna Magnússonar og Páls Vídalíns (1708 ) er þess t.d. getið um bæina Haukadal og Helludal. 1750. Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson heimsækja Geysi. Þeir geta Strokks að engu, enda mun hann þá ekki vera farinn að gjósa að ráði. 1789. í jarðskjálftunum þetta ár tók Strokkur að gjósa af miklu afli og gaus hátt. 1793. Sveinn Pálsson kemur að Geysissvæðinu. Skv. ferðabók hans má ætla að hann hafi gefið hvernum nafn sitt: „Hinn nýji hver nefnist Strokkur eftir lögun sinni.“ A þessum tíma gaus Strokkur reglulega, tvisvar á dag, en truflaðist ef Geysir gaus á þeim tímum. Goshæðin er talin vera yfir 50 metrar. 1804. Gos í Strokki mældist vera 45 metrar á hæð, en Geysisgos 65 metrar. Þess er getið að gos í Strokki séu óregluleg en Geysir gjósi hátt á um 6 tíma fresti, hins vegar gjósi Strokkur oft hærra en Geysir. Strokkur gaus fyrst miklu vatnsgosi en að því loknu var gufugos í tvo tíma. 1809. Strokkur gýs 45 metra háu gosi sem stendur í hálfan annan klukkutíma. 1810. Tekið er til þess að ekkert hrúður er í kringum Strokk. Þá gaus hann 24 metra háu gosi, álíka lengi og árið áður. 1815. Gos í Strokki talið hafa náð yfir 60 metra hæð. 1830. Þegar hér er komið virðist sem Strokkur sé farinn að dofna; þess er oft getið að menn beri í hann torf og grjót til að örva hann til dáða. Þannig tókst stundum að fá fram sæmileg gos, allt að 20 metrum á hæð. 1863. 15 metra hátt gos er framkallað með grjótburði. Ólgaði mikið í hvernum næstu 30 mínútumar á eftir 1871 Virkni Strokks er nánast engin. 1880. Sagnir eru um 25 - 28 metra há gos um þetta leyti. 1896. í Suðurlandsskjálftunum þetta haust hætti Strokkur alveg að gjósa. Þá tók Geysir hins vegar til við að gjósa af krafti og hélt því áfram í tvo áratugi. 1898. Þess er getið að ekkert vatn renni lengur frá Strokki og engin kísilskán sé í kringum hann eins og Geysi. 1931. Vatnsborð í Strokki er 1 metra undir yfirborði. Stöku gasbólur stíga upp úr djúpunum, að öðra leyti er hann óvirkur. Yfirborðshiti mælist 80,5 gráður. 1937. Aðrennsispípan í Strokk mæld og reynist 11 metrar. Yfirborðshiti 70 gráður en rauk upp af og til. 1961. Að sögn heimamanna hefur Strokkur aðeins gosið árin 1916 og 1937. Tæpir 2 metrar eru niður á vatnsborð. Að sögn Kristbergs Jónssonar, sem þá bjó á Laug, var hverinn 12 metrar á dýpt og mjókkaði niður. Aður fyrr stóð vatn ekki í Strokki heldur var aðeins smápollur neðst í pípunni áður en hverinn gaus, og hafði Litli - Bergþór 14

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.