Litli Bergþór - 01.04.1996, Blaðsíða 16
Frá Leikdeild Umf. Bisk.
Nú er leikdeildin að setja upp leikritið
„Fermingarbarnamótið“ eftir þau, Ármann
Guðmundsson, Árna Hjartarson, Hjördísi
Hjartardóttur, Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu
Oskarsdóttur, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir
Tryggvason, sem öll eru í áhugaleikfélaginu
Hugleikur í Reykjavík.
Þetta er leikrit í léttum dúr með söng og
dansi. Rúmlega 20 manns taka þátt í þessari
uppsetningu og þar af 17 leikarar. Það er
ótrúlegt (og þó) hvað við erum rík af leikurum
hér í sveit og við vitum að það eru fleiri sem
ekki hafa þorað að láta þessa hæfileika í ljós og
enn fleiri sem gefa sér bara ekki tíma í þetta
núna en verða með næst.
Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson og
hefur hann búið hjá Bjama og Oddnýju meðan
hann hefur verið að leikstýra. Jón hefur verið
að leikstýra krökkunum í skólanum og aðstoða
þau við eitt og annað sem þau hafa verið að
gera og ber að fagna því. Hver veit nema
einhverjir af þessum krökkum starfi með
leikdeildinni seinna.
Hilmar Örn Agnarsson og Hjörtur
Hjartarson sjá um tónlistina og fara létt með
það.
Egill Jónasson.
Camilla Ólafsdóttir.
Egill Jónasson og
Erla B. Bergsdóttir.
Margrét Sverrisdóttir og
Eiríkur Georgsson.
Áslaug Magnúsdóttir,
Magnús Jónasson og
Aðalheiður Helgadóttir.
Allur leikhópurinn ásamt leikstjóra
sínum, Jóni Stefáni Kristjánssyni.
Litli - Bergþór 16