Litli Bergþór - 01.04.1996, Síða 18
Hugleiðingar
um ferðamál
✓
Asborg Arnþórsdóttir,
ferðamálafulltrúi Biskupstungna.
Ferðamál eru mál málanna í dag. Mikið er
rætt og ritað um ferðaþjónustu sem vaxtarbrodd
þjóðfélagsins og menn gæla við þá hugmynd að
innan þess geira sé helst að vænta nýrra starfa á
komandi árum á íslandi. En það eru fleiri sem
líta hýru auga til buddu ferðamannsins, inörg
önnur lönd hafa svipaða framtíðarsýn og leggja
mikið kapp á uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Við erum að keppa við önnur lönd sem
ferðamannalandið Island og þegar við höfum
náð ferðamanninum til landsins keppast hinir
ýmsu landshlutar við að ná honum heim til sín.
Þannig er að mörgu að hyggja. Gott dæmi um
slíka samkeppni innan lands og utan er baráttan
um ráðstefnurnar. Ráðstefnuhald og þjónusta
því tengd hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár
og er orðinn stór þáttur í ferðaþjónustu okkar
Islendinga. En það hefur ekki gerst án baráttu,
það eru ekki mörg ár síðan við Islendingar
höfðum ekki möguleika á ráðstefnumarkaðnum.
Nú leikum við okkur hins vegar að því að taka
á móti allt að 1000 manna fundum og getum
stolt farið út í heim og boðið í svo til hvaða
ráðstefnu sem er.
Það er margt spennandi að gerast í
ferðamálum á íslandi í dag og það hefur enginn
efni á því að missa af lestinni. Tekjur af
erlendum ferðamönnum jukust um 1,8 milljarð
í fyrra og heildarráðstöfunarfé Ferðamálaráðs í
ár er 8 milljónum króna hærra en ‘95.
Umtalsverðum upphæðum verður varið til
úrbóta á fjölförnum ferðamannastöðum og
tvöföldun hefur orðið milli ára á fé sem ætlað er
til rannsókna og kannana á sviði ferðamála.
Ymis sveita- og bæjafélög hafa séð sér hag
í því að ráða fagfólk til að sinna þessum
málaflokki innan sveitar og gæta hagsmuna
þeirra útávið.
17 ferðamálafulltrúar eru nú starfandi víðs
vegar um landið og stefna þeir að því að gera
ísland að betra ferðamannalandi og að
sjálfsögðu hver sinn landshluta að betri valkosti
fyrir ferðamanninn þegar hann er kominn til
landsins. Þeir hafa með sér ákveðna samvinnu
og hafa m.a. hrundið af stað vinnuhópum sem
munu fjalla um málaflokkana:
1. Upplýsingamiðlun, útgáfu og
kynningarmál,
2. Lenging ferðamannatímans,
3. Umhverfismál tengd ferðaþjónustu.
Hópastarfið fer fram innan Ferðamálasamtaka
íslands sem er ákveðinn samstarfsvettvangur
fyrir landsbyggðamenn, þar sem þeir geta
komið sínum málum á framfæri og haft áhrif.
Það er nauðsynlegt að aðilar innan
ferðaþjónustunnar hafi með sér samstarf bæði
innan og milli svæða ekki síst vegna
utanaðkomandi ógnana.
Það er enginn einn í ferðaþjónustu og
stundum þarf samvinnu um að taka einhverja
áhættu og í ýmsum tilfellum getur verið hagur
að kynna allt annað en sjálfan sig.
Starfsvettvangur ferðamálafulltrúa er afar
misjafn eftir landshlutum. Á sumum svæðum
hefur markvisst verið unnið að ferðamálum til
margra ára, á öðrum eru menn að stíga sín
fyrstu skref og sums staðar er þetta blandað.
Þar sem ferðaþjónustan er á frumstigi felst starf
þeirra m.a. í að aðstoða fólk við að hrinda
hugmyndum í framkvæmd og benda á
möguleika, en þar sem menn eru lengra komnir
er hægt að eyða meiri tíma í þætti eins og
vöruþróun, nýsköpun, gæðamál, umhverfismál
o.fl.
Það er engin ein stétt sem á ferðamálin
heldur eiga allar faggreinar og starfstéttir á
hverjum stað hagsmuna að gæta og bera
ábyrgð. Ferðamálafulltrúinn er aðstoðarmaður
Litli - Bergþór 18