Litli Bergþór - 01.12.2004, Blaðsíða 4
Formannspistill
Nú á þessum haustdögum hefur verið óvenjulegt ástand
í íslensku samfélagi og einnig í okkar samfélagi sem meðal
annars lítur að velferð og skólagöngu barna og unglinga.
f upphafi skólaársins bættust við nemendur úr Grímsnesi
sem hófu skólagöngu í Reykholtsskóla. Vona ég að þeim
eigi eftir að vegna vel í skólanum og að börnunum gangi
vel að aðlagast hvert að öðru.
Gallinn er hins vegar sá að skólahald hefur alls ekki
verið með eðlilegum hætti, reyndar verið verkfall í heilar 7
vikur. Ég ætla ekki að fara að leggja nokkurn dóm á þessa
deilu, næg hefur umfjöllunin um hana verið í fjölmiðlum.
Mér sem foreldri er einungis efst í huga réttur barnanna til
skólagöngu og söknuð þeirra til þess að vera í skólanum
við nám með kennara sínum og félögum.
Vonandi er að lausn finnist á þessari kjaradeilu sem allra
gog til lengri tíma litið svo ekki
þurfi að koma til þess að
r r
börnm verði af kennslu a
komandi árum og að full sátt
st um mat og virðingu
kennarastarfsins.
Áður en ég hverf frá skóla og fræðslu
málum get ég ekki orða bundist yfir óbil-
gjarnri umræðu sem meðferðarheimilið á
Torfastöðum hefur mátt þola nú á síðustu
mánuðum. Mér finnst með ólíkindum
hvernig reynt hefur verið að rífa niður störf
hjónanna sem til fjölda ára hafa lagt sig fram
við að beina unglingum inn á farsælar brautir með góðum
árangri og þannig átt mikinn þátt í því að gera þessa ungl-
inga að fullgildum þegnum þessa lands. Þeim sem fjalla
með þessum hætti um störf fólks er ef til vill hollt að hugsa
til þess að auðveldara er að rífa niður en að byggja upp og
á það örugglega við um margt sem lýtur að uppeldi og
þroska bama.
Nú í haust átti ég þess kost að fara í ferð inn á afrétt til
landbótastarfa ásamt Grími Þór og Guðmundi á Iðu,
stjómarmanni Landgræðslufélagsins. Unnum við þar
heilann dag með dráttarvélum og tækjum við að tæta niður
heyrúllur í börð á allstórri gróðurtorfu innan við Sandá
vestan vegar.Veðrið var bjart og fallegt og áttum við því
góðan dag við þessi störf. Undanfarin ár hafa böm úr
skólanum farið til landgræðslustarfa inn á afrétt og þannig
komist í beina snertingu við landgræðslu og vemdun
gróðurþekjunnar sem á veðrasömum dögum á í vök að
verjast eins og til dæmis nú í október síðastliðnum þegar
við sáum jarðveginn lita loftið þannig ——ffr
að brúnleitt mistur sást /annars ekkert að frétta
víða.Vonandi eiga bömin þess kost
í framtíðinni að leggja þessu málefni
lið og þannig öðlast skilning og virðingu
fyrir náttúm landsins
Guttormur Bjarnason,
formaður Umf. Bisk
af Ungmennafélaginu ?
Heimasímar:
Loftur:
486 8812
8531289
VÉLAVERKSTÆpL
^j/DAR^
Heimasímar:
Guðmundur: 486 8817
Helgi: 482 3182
IÐU • BISKUPSTUNCUM
SlMI 486-8840 • FAX 486-8778
KT. 580102-3010
Viðgerðir á búvélum
og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta
Olíusíur í bíla og dráttarvélar
Litli Bergþór 4