Litli Bergþór - 01.12.2004, Side 5
Hvað segirðu til?
Að þessu sinni verður greint frá því fréttnæma úr sveitinni
frá júní til nóvember.
Gott veðurfar vorsins hélst allt sumarið, það var hlýtt, vægir
vindar og sólríkt. Jafnvel hefur því verið líkt við sólskinssumarið
mikla 1939. Bændur byrjuðu flestir slátt um og upp úr miðjum
júní og slógu jafnvel bestu túnin þrisvar. Viðarvöxtur var mikill
og einnig spratt vel í ræktarlöndum. Urkoma var fremur lítil en
vökvaði þó oft gróður. Haustið var einnig gott, ekki teljandi frost
fyrr en í byrjun vetrar og snjór ekki sjánlegur nema sem föl á
jörð einstöku sinnum og fjallatoppar oftast auðir fram á vetur.
Stuttir en vatnsmiklir rigningarskvettir komu öðru hvoru og
hækkaði við það nokkuð vatnsstaða í jörð, einkum var mikil
úrkoma í fyrri hluta nóvember.
Þjóðhátíð hófst að vanda með messu í Torfastaðakirkju,
skrúðganga var frá Bjarnabúð að íþróttamiðstöðinni, þar sem
fjallkona las ljóð, Georg Kári Hilmarsson í Skálholti flutti
hátíðarræðu og skemmt var með leikjum. I Aratungu var
síðdegis selt kaffi og meðþví, og þar var danshljómlist um
kvöldið.
Helgihald hefur mest verið í Skálholti og ber þar Skálholts-
hátíð hæst. Sumartónleikar voru þar um helgar á miðju sumri,
þar sem margir miðluðu list sinni. Þar hefur verið messað
árdegis flesta sunnudaga og öðru hvoru á miðjum degi í hinum
kirkjunum í prestakallinu.
Síðla í september hélt stúlknakór frá Kaupmannahöfn tónleika
í Skálholtskirkju ásamt félögum úr Kammerkór Biskupstungna.
Rúmum mánuði síðar voru þar tónleikar í minningu systranna frá
Rauðaskógi, Ragnhildar Petru og Önnu Margrétar. Þar söng
Jónann Friðgeirsson einsöng, Kári Þormar lék á orgel,
Skálholtskór og Bama- og kammerkór Biskupstungna sungu
undir stjórn Hilmars Amar Agnarssonar.
Félag eldri borgara í Biskupstungum efndi til ferðar vestur í
ísafjarðardjúp fyrir félaga sína og nokkra nærsveitunga og í
september var farið til Reykjavíkur í boði Bláskógabyggðar og
Kvenfélags Biskupstungna. Vetrarstarf félagsins hófst um miðjan
október með samkomu í Reykholtsskóla, en slíkar samkomur
verða sem áður í Bergholti fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði í
vetur og aðra fimmtudaga föndrað þar og spilað á spil.
í september var buðu þrjú afmælisbörn, sem samtals vom 200
ára, ásamt mökum sínum til tveggja afmælisveislna í Aratungu.
Hin fyrri var í tilefni af afmæli Sigurjóns Kristinssonar að
Kistuholti 21 og Oddnýjar Jósefsdóttur á Brautarhóli og hin
síðari á afmælisdegi Sigurðar Þorsteinssonar á Heiði.
í sumar var áfram unnið í sjálfboðavinnu að byggingu
Gíslaskála í Svartárbotum í sumar, og var hann vígður á hátíð þar
um miðjan ágúst.
„Létt-mennigarvökur Klettsins“ hófust um miðjan október
með ferð í máli og myndum um Kjöl undir leiðsögn Arnórs
Karlssonar. Önnur vakan var þar mánuði seinna, og þar
skemmtu félagar úr leikfélaginu Hugleik í Reykjavík með
flutningi á frumsömdu efni í formi tónlistar og ljóða. Áformað er
að slíkar vökur verði þar í hverjum mánuði í vetur.
Tvö íbúðarhús hafa risið við Bjarkarbraut í norðanverðu
Reykholtshverfi í haust og verið er að fullgera hús þau er byrjað
var á síðastliðinn vetur í Reykholti og Laugarási. Á Brekku er
verið að byggja tvö íbúðarhús, skemmu í Brekkuskógi og aðra í
Lambadal við Reykholt. I Gýgjarhólskoti er að ljúka stækkun og
endurbótum á fjósi.
Tungnaréttir 2004. Síðasti innrekstur.
Olíumöl var síðsumars lögð á Kjalveg frá Gullfossi að Sandá,
en þar var í sumar sprengd rás í klapparhólinn sunnan við brúna,
grjótið mulið og hluti þess notaður í veginn en allmiklar hrúgur
bíða þar til að nota í áframhaldandi vegagerð.
Feðgarnir Magnús og Guðmundur í Austurhlíð voru í grenja-
leit í vor. Fundu þeir tófur í 8 grenjum, 6 í byggð, sunnan frá
Spóastöðum og upp að Neðradal, og 2 í afrétti, í Miðveri og
Kjalhrauni. Við grenin náðu þeir samtals 37 yrðlingum og 8 full-
orðnum dýrum, auk þess skutu þeir eitt hlaupadýr. I einu greni
að auki í byggð er vitað um að tófa var með yrðlinga, en ekki
vannst tími til að vinna á þeim.
Sauðfé á Biskupstungnaafrétti var færra í sumar en það hefur
verið síðustu áratugi, líklega ekki mikið yfir 1.000 fullorðnar
kindur. Réði þar mestu um að aðeins var farið með fé þangað úr
Eystritungu, en mælst var til þess að þangað færi ekki fé sem
eftir lifði á svæði því er riða var staðfest á í vetur. Fjallferðir
fóru eigi að síður fram með hefðbundnum hætti. I fyrstasafn fóru
24 leitarmenn og smöluð í viku, oftast í vætu og dimmviðri.
Tungnaréttardagur var að vanda daginn eftir að þeir komu af
fjalli. Þann dag var blítt veður og voru gestir margir, og um
kvöldið var réttaball í Aratungu. Eftirsafn var tveggja daga leit
síðast í september. Tilkvaddir leitarmenn voru 6 en meira en
tvöfölduðust af sjáfboðaliðum. Þeir fundu 43 kindur, flestar í
Hólahögum. Skömmu síðar voru 5 kindur sóttar í afrétt. Um
tveim vikum síðar fóru 5 leitarmenn í eftirleit. Þeir voru viku og
komu með 6 kindur. Hlíðalönd voru smöluð af 16 leitarmönnum
síðla í september og því réttað á bæjum. Fé var talið allvel fram-
gengið bæði í heimahögum og afrétti.
í ljós kom við rannsókn á heilsýni úr á frá Gýgjarhólskoti,
sem var slátrað á Selfossi í byrjun september, að hún var með
riðusýkingu. Eftir það var tekin ákvörðun um að slátra í haust
öllu fé í Eystritungu, en áður hafði verið ákveðið að lóga fénu í
Ytritungu sunnan Hlíðahólfs. Heimilt verður að taka fé aftur á
þessu svæði eftir tvö ár en næsta haust á þeim bæjum sem skorið
var niður á í vetur sem leið.
Helgi Kristbergur Einarsson, bóndi í Hjarðarlandi, f. 1921,
lést í ágúst. Hann var jarðsettur í Haukadal.
Ágústa Margrét Ólafsdóttir, húsfreyja í Úthlíð, f. 1937, lést í
september. Hún var jarðsett í Skálholti.
Gunnar Karl Gunarsson, Bæjarholti 13 í Laugarási, f. 1986,
lést í október. Hann var jarðsettur í Skálholti.
A. K.
Litli Bergþór 5