Litli Bergþór - 01.12.2004, Side 8
(punktur G) og fylgi svo fjallsbrúninni norðaustur fyrir
Bjarnarfell, allt inn í Haukadalsland í Sandfelli í sjónhend-
ingu í 400 m hæðarlínu (punktur H) og fylgja svo þessari
hæðarlínu meðfram Sandfelli og umhverfis sjálfan
Haukadalinn og að punkti í 250 m hæðarlínu beint við upp-
tök Tungufljóts (punktur I). Þaðan eftir 250 m hæðarlínu í
gegnum Hólaland og þannig sem beinast í sömu hæð að
suðurhluta Tunguheiðar við Hvítá (punktur J).“
í varakröfu er línan: „Þjóðlendumörk (kröfulína) fylgi
Hvítá um 1,8 km niður að eyðibýlinu Tunguseli um 1,5 km
ofan Gullfoss. Frá Tunguseli liggi lína þjóðlendumarka 5
km lítillega vestur af norðri í Háöldu, sem er um 1 km aust-
an Austari Ásbrandsár, skammt norðan þess sem Ásbrands-
ámar koma saman í Tungufljót. Frá Háöldu 9,8 km vestur
Haukadalsheiði sjónhending í topp Sandfells og frá
Sandfelli 7,2 km suðsuðvestur um topp Bjamarfells. Þeirri
stefnu sé haldið og lína dregin niður í suðurhlíðar fellsins í
um 440 m hæð yfir sjávarmál, sem er nokkru austan
Valahnjúks, en norðan Kistu. Þaðan sé lína dregin austur frá
Litlahöfða sunnan í Högnhöfða og norðan Brúarárskarða
um Uthlíðarhraun í topp Miðfells, hæð 525 m yfir sjávar-
mál til skurðar við fyrrnefnda línu um Sandfell og
Bjarnarfell. Þessar línur skerast í áðurnefndum punkti í 440
m hæð yfir sjávarmál sunnan í Bjarnarfelli. Línan um
Miðfell og Litlahöfða er framlengd í vestur til
Laugardalshrepps til skurðar við línu um topp Rauðafells."
Landeigendur kröfðust þess á hinn bóginn að staðfestur
verði úrskurður óbyggðanefndar að allt land innan landa-
merkja jarða þeirra „sé fullkomið eignarland.11
í dómnum er málsmeðferð fyrir óbyggðanefnd, héraðs-
dómi og Hæstarétti rakin og greint frá röksemdafærslum
málsaðila. Síðan segir: „Samkvæmt öllu framanröktu er
hafnað kröfum aðaláfrýjanda um að mörk þjóðlendu verði
dregin inn fyrir landamerki Úthlíðartorfu, Haukadalstorfu,
Hóla og Tunguheiðar, eins og þeim er lýst í áðurnefndum
landamerkjabréfum og dómi. Leiðir sjálfkrafa af því vegna
landfræðilegra aðstæðna að ekki er heldur fallist á kröfur
aðaláfrýjanda um mörk þjóðlendu innan lýstra landamerkja
Austurhlíðar, Neðri-Dals og Helludals I og II.“
Hæstiréttur hafði einnig til meðferðar eignarrétt á
Framafrétti, þ. e. landið frá Sandá að Hvítá og Hvítárvatni,
og svæði við Hagavatn og Hagafell. Bláskógabyggð
krafðist þess að allt þetta land yrði úrskurðað eign sveitar-
félagsins. Obyggðanefnd úrskurðaði það þjóðlendu og að
afréttarnot sveitarfélagsins næðu aðeins vestur að
Hagavatni. Héraðssdómur staðfesti þennan úrskurð
varðandi þjóðlendu en tók til greina kröfu sveitarfélagsins
um viðurkenningu á heimild til afréttarnota á því öllu.
Þennan dóm staðfesti Hæstiréttur.
f heild er því niðurstaða Hæstaréttar að
Biskupstungnaafréttur norðan frá afréttarmörkum á Kili,
suður að Sandá og Sanvatni, vestan frá Fari, mörkum við
Laugardal á Hagafelli og Langjökul, austur að Jökulfalli og
Hvítá skuli vera þjóðlenda með afréttareign Bláskóga-
byggðar, en landeigendur sunnan Sandár, Sandvatns, Fars
og Hagavatns fá staðfestingu á eignarrétti á löndum sínum.
Ekki mun vera mögulegt að hnekkja þessum úrskurði
fyrir íslenskum dómstólum, en ræddur hefur verið sá
möguleiki að vísa honum til Mannréttindadómstóls Evrópu.
A. K.
Fl pl ú S
1 1 borgar sig o
Sími 482 2266 ...og þú færð m.a.
Yfir 25 þúsund íslenskar fjölskyldur hafa valið
F plús víðtæku fjölskyldutrygginguna og nýtt
sér kosti hennar. Hringdu og fáðu nánari
upplýsingar í síma 482 2266 eða á heimasíðu
okkar, www. vis.ls.
* Nánarl upplýslngar (skilmálum félagsins.
• Víðtæka fjölskyldutryggingu
• Afslátt af öðrum tryggingum
• Afslátt af öryggisvörum
• Víðtæka ferðatryggingu
• Aðgang að ýmsum tilboðum
• og margt, margt flelra
Litli Bergþór 8