Litli Bergþór - 01.12.2004, Qupperneq 9
Frá Landgræðslufélagi Biskupstungna
Starfsemi félagsins hefur verið með hefðbundnum hætti
sl. ár. Unnið hefur verið að þeim verkefnum sem félagið
hefur helgað krafta sína undanfarin ár. Farinn er að sjást
töluverður árangur af 10 ára starfi félagsins.
Eftir síðasta aðalfund félagsins í október 2003 skipti
stjórnin með sér verkum að nýju þar sem nýr maður
Guðmundur Ingólfsson á Iðu var komin í stað Þorfinns á
Spóastöðum í stjóm. Amheiður í Gýgjarhólskoti var gerð
að formanni, Guðmundur ritari og Margeir á Brú hélt sínu
embætti sem gjaldkeri.
Fyrsta verk formanns á nýju starfsári var að gera land-
bótaáætlun fyrir Biskupstungnaafrétt, að ósk sveitarstjórnar.
Uppkast var lagt fyrir á stjórnarfundi í febrúar, þar sem
gerðar voru athugasemdir við hana. Síðan var áætlunin
send sveitarstjóm, sem sendi hana áfram til Landgræðsl-
unnar. Verið er að ganga frá henni hjá Landgræðslunni um
þessar mundir.
Formaður og ritari fóm í mars austur í Gunnarsholt í
boði Landgræðslunnar. Þar hittum við fyrir fólk úr öðmm
landgræðslufélögum og var kynnt starfsemin á staðnum og
fræddumst einnig um hvað önnur svona félög em að gera.
Sótt var um styrki úr Landbótasjóði og Pokasjóði versl-
unarinnar til að halda áfram við verkefni fyrir innan Hvítá.
Fengust 200.000 krónur úr Landbótasjóði og 800.000 úr
pokasjóði. Einnig gaf Sláturfélag Suðurlands 10 tonn af
áburði til dreifingar á afrétinn. 5 tonnum var dreift í sumar
en 5 eru eftir og verður dreift á næsta ári.
Annað starf gekk eins og vant er með þeirri viðbót að í
vor fór hópur unglinga úr Grunnskólanum inn í
Sandvatnshlíð. Klipptir voru stiklinga og þeim stungið
niður. Einnig var sáð rýgresisblöndu. Þetta starf var unnið
undir verkstjórn Sigþrúðar og Jóns frá Landgræðslunni. I
haust var svo farið með böm úr 5., 6. og 7. bekk í Grunn-
skólanum inn í Rótamannagil og þar plantað birkiplöntum
sem Guðni Lýðsson og Þuríður Sigurðardóttir gáfu.
Landbætur í Biskupstungum 2004
Landgræðslufélag Biskupstugna
Staður Áætlun 2004 kg af áburði Dreifing kg af áburði
Sunnan Sandár 8.000 7.200
Norðan Sandár 24.000 29.000
Fremstaver 6.000 6.000
Rótamannagil 1.600 1.600
Sandvatnshlíð 1.600 1.600
Svartártorfur/Árbúðir 6.000 7.200
Tjarnheiðarbrún 6.000 7.200
Svartárbotnar 1.800 1.800
Tunguheiði 4.800
Samtals áburður: 55.000 66.400
Rúllur til dreifingar í Tjarnaheiði.
Alls var dreift í sumar um 66 tonnum af áburð og um
450 kg af fræi í tengslum við hin ýmsu verkefni félagsins.
Sjá nánar í töflu hér að neðan. Einnig var farið með og
dreift úr um 200 rúllum inn við Hvítárvatn.
Eins og allir vita er félagið búið að starfa í 10 ár, stofnað
13. apríl 1994. í vor var áætlað að fara í kynnisferð á
vegum félagsins og skoða hvað hefur áunnist í tilefni af
þessum tímamótum. Af þessu varð þó £>
ekki, bæði vegna fjárskorts og tíma- f þá ekki rétt að
leysis en ferðin bíður betri tíma. [óbyggðanefhd komi hér að
Nú em þeir tímar að riða í sauðfé er'\^^/w^í//'! '■
komin upp hér í sveit og verður afrétturinn vænt-
anlega fjárlaus næstu tvö árin. Þetta vekur upp
vonir um aukna landgræðslu á afréttinum. Enn er
ekkert komið fram um hvernig málin þróast að
þessu leyti. Mögulegt er að leyft verði að fara
með hey til uppgæðslu þegar ekkert fé er í afrétt-
inum af þeim bæjum þar sem
öryggisniðurskurður hefur verið eða verður
framkvæmdur. Þetta ræðst meðal annars af því
hvað kemur út úr þeim greiningum sem verið er að gera í
haust. En vonandi verður hægt að halda áfram því öfluga
uppræðslustarfi sem unnið hefur verið hér í sveitinni.
Gýgjarhólskoti, nóv. 2004
Arnlieiður Þórðardóttir.
Aðrar uppgræðsluaðgerðir
Staður Áætlun Framkvæmt
Sunnan Sandár
Norðan Sandár Fræ 200 kg fræ
Fremstaver
Rótamannagil Lúpínusáning Lúpínus,- trjáplöntun
Sandvatnshlíð 20 rl. og fræ Viðarst., 63 rl„ 25 kg fræ
Svartártorfur/Árbúðir 50 rl., fræ
Tjarnheiðarbrún 150 rl., fræ 200 rl„ 200 kg fræ
Svartárbotnar 25 kg fræ
Tunguheiði Lúpínusáningat
Litli Bergþór 9