Litli Bergþór - 01.03.2008, Page 5
Hvað segirðu til?
Helstu tíðindi úr sveitinni frá desember 2007 til febrúar 2008
í svartasta skammdeginu var tíð fremur mild,
hiti oft um og yfir frostmarki, fremur lítil úrkoma
og hún að mestu rigning. Hvasst var öðru hvoru
og mikil rigning, en það stóð aldrei lengi og mun
ekki hafa valdið verulegum skaða. Um miðjan
janúar snjóaði nokkuð, oftast í hægum éljagangi,
en stundum tálmaði snjórinn umferð þannig að
kennsla féll niður í skólanum, póstferðir töfðust
og fólk átti í erfiðleikum að komast leiðar sinnar
þar sem ekki var mokað. Um miðjan febrúar
hlánaði og hvarf snjórinn að mestu á láglendi á
skömmum tíma. Eftir það tóku við umhleypingar
með skúrum, éljagangi og bjartviðri öðru hvoru.
Jólamarkað hélt Kvenfélag Biskupstungna í
Aratungu 1. desember. Þar voru til sölu ýmsir
handunnir munir úr tré og gleri, málverk og
myndir, kökur og fleira.
Jólaball Grunnskólans í Reykholti og Kvenfél-
agsins var í Aratungu í vikunni fyrir jól. Þar léku
Karl Hallgrímsson og Stefán Þorleifsson jólalög.
Helgihald á jólaföstu hófst með árdegismessu í
Skálholtskirkju og kvöldmessu í Torfastaðakirkju
fyrsta sunnudag í aðventu. Aðventukvöld var í
Úthlíð, tvennir tónleikar Skálholtskórs með Barna
og Kammerkór Biskupstungna, einsöngvurum og
hljóðfæraleikurum í Skálholtskirkju og aðventu-
kvöld bæði í Bræðratungu- og Haukadalskirkju
með ræðum, upplestrum og tónlistarflutningi.
Jólamessur voru að vanda þrjár í Skálholts-
kirkju frá aðfangadagskvöldi til miðs jóladags,
messa í Bræðratungu á annan í jólum, í Úthlíðar-
kirkju á þriðja í jólum og í Torfastaðakirkju á
nýársdag, en áformuð messa í Haukadal milli jóla
og nýárs féll niður vegna ófærðar. Glúmur
Gylfason á Selfossi var organisti í þessum mes-
sum, þar sem Hilmar Örn Agnarsson var í leyfi.
Helgileik fluttu nemendur 1.-4. bekkjar
Grunnskólans í Reykholti með aðstoð kennara
sinna, sóknarprests og organista í Skálholtskirkju
snemma á jólaföstu.
Lúsíuhátíð var haldin í Skálholtsskóla á jóla-
föstu á vegum Norræna félagsins í uppsveitum
Arnessýslu. Þar söng lúsía og fylgdarlið hennar
og boðið var upp á súkkulaði og lúsíubrauð.
Ljósmyndasýningin Mannlíf í Biskupstungum
var opnuð í Skálholtsskóla um miðjan desember
og var eldri borgurum í uppsveitum Arnessýslu
boðið til samveru í Skálholti í tengslum við
opnunina. Myndir á sýningunni eru frá um aldar-
fjórðungs til aldar gamlar, og voru þær fengnar
frá ýmsum hér í sveit. Þær valdi Skúli Sæland,
sagnfræðingur í Reykholti, úr myndasöfnum
einstaklinga og öðrum, sem til eru á
Héraðsskjalasafni Arnesinga. Skúli samdi einnig
skýringar með myndunum í sýningarskrá. Gert
er ráð fyrir að sýningin verði opin fram yfir
páska.
Uppsveitaalmanak fyrir árið 2008 hefur verið
gefið út að frumkvæði ferðamálafulltrúa með
myndum frá ljósmyndasýningunni.
Attræðisafmælis Reykholtsskóla var minnst síð-
ast í janúar með sýningu á handverki og myndum
í skólanum og samkomu með skemmtidagskrá
nemenda með aðstoð Gunnars Björns
Guðmundssonar, leikstjóra, og kennara skólans í
Aratungu.
Þorrablót var haldið að kvöldi bóndadags.
Sóknarbörn í Bræðratungusókn sáu um það og
skemmtu gestum með minni kvenna og karla,
einsöng, fjöldasöng og skemmtidagskrá. Meira en
helmingur sóknarbamanna lét ljós sitt skína í
skemmtiatriðunum, en samkoman endaði með
dansi við undirleik heimamanna í
Bláskógabyggð.
Félag eldri borgara í Biskupstungum hélt þorra-
blót fyrir félaga sína og gesti þeirra viku síðar.
Þeirra hátíð hófst með fordrykk, matur var fram-
reiddur af starfsfólki Aratungu, og þeir fengu
síðan að njóta skemmtidagskrár Bræðra-
tungusóknar frá þorrablóti þeirra. Félagið er með
reglulega starfsemi frá hausti til vors, sem felst í
að koma saman fyrsta fimmtudag í hverjum
mánuði, þar sem flutt er ýmiskonar efni, erindi,
söngur og fleira. Aðra fimmtudaga er komið
saman þar sem sumir stunda handíðir með tilsögn
Ragnhildar Magnúsdóttur í Gýgjarhólskoti og
aðrir spila á spil. Síðdegis hvem
þriðjudag er líkamsrækt fyrir
aldna í íþróttamiðstöðinni, og
hefur Helgi Kjartansson, íþrótta-
kennari, stjórnað henni í vetur.
Sveitarstjórnarmenn T-listans í
Bláskógabyggð boðuðu til fundar um
sveitarstjórnarmál í Lindinni á
Laugarvatni síðla í nóvember.
Sveitarstjórnarmenn Þ-listans í
Bláskógabyggð boðuðu til annar slíks,
fundar í Aratungu síðast í janúar.
5 Litli Bergþór