Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 13

Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 13
Viktoría Guðmundsdóttir skemmtun væri nauðsynlg. Gat hann þess að ef af yrði, myndu fundirnir haldnir til skiptist á Drumboddstöðum og Gýgjarhóli. Væri hvorutvegga að þessir bæir væru helzt miðsvæðis og svo hentugust húsakynni, litlar stofur, sem góðfúslega fengust lánaðar til fundarhaldanna. Að lokum las svo Þorfinnur frumvarp að lögum fyrir félagið, sem Viktoría hafði að mestu samið.“ Greint er frá umræðum: „ Varð nú hver og einn, er eitthvað vildi um það segja, að standa upp og segja sinn vilja. Urðu furðumargir til þess, en fáir feimnislaust. Var mikill áhugi um þessa félagsstofnun. Að loknum umræðum fór fram atkvæðagreiðsla og var viðhaft nafnakall.“ Nafngreind eru 13 sem sögðu já og áttu þau öll heima á svæðinu sunnan frá Borgarholti og upp að Brú. Fjögur segja nei, og eru þau búsett sunnan frá Krók og upp að Hólum og áttu því flest lengra en aðrir að sækja á fyrirhugaða fundarstaði. Þess er getið að systkin tvö frá Krók hafi síðar gengið í félagið. Um störf og áhrif félagsins segir Guðríður: „Unga fólkið varð ekki fyrir vonbrigðum. Hver fundur færði því fræðslu og gleði, jók viljakraft þess og nauðsynlegt sjálfstraust.“ Hún segir að mikið fjör hafi verið á málfundunum og flestir eða allir tekið til máls. Sem dæmi um umræðuefni er saga Jóns Trausta, Halla. Bókin hafði verið keypt af Lestrarfélagi Eystritungunnar. „Nú var hún búin að ganga bæja á milli, svo vitað var að allir höfðu lesið hana.“ Rökrætt hafði verið bæði um söguna í heild og aðalpersónur hennar. Önnur umræðuefni, sem Guðríður tilgreinir, eru siðferði, bækur, málshættir, fatnaður, gamlar venjur, jarðmyndun, jurtalíf, Jörundur hunda- dagakonungur, fornmenn, trú þeirra og kristnitakan. Dansað var, sungið og farið í leiki, sagðar ferðasögur og svo haldið heim þegar birta fór af degi. Lög Unglingafélagsins eru í heild á eftir grein Guðríðar í Inn til fjalla. 2. gr. þeirra er á þessa leið: „Tilgangur félagsins er að venja menn við að láta skoðanir sínar opinberlega í ljós, skýrt og skilmerkilega, í ræðuformi og gefa meðlimum færi á að kynnast hinum almennustu og einföldustu fundarreglum og jafnframt vill það efla og iðka hvers konar félagslíf, skemmtanir og íþróttir, sem ungum mönnum eru til gamans gagns og gengis.“ Kveðið er á um að taka megi öll mál til umræðu „nema trúarbrögð, því reynslan hefur sýnt að hætt er við að það verði æsingamál.“ Gert er ráð fyrir að félagsmenn séu á aldrinum 15 til 30 ára og eigi heima í Eystritungunni. Fundi á félagið að halda þriðja hvert laugardagskvöld frá veturnóttum til þorraloka. 13. gr. er þannig: „ Eftir fund hvern skal félögum gefinn kostur á að skemmta sér við söng, dans og spil eða annað eftir því er húsrúm og ástæður leyfa. Peningaspil er þó stranglega bannað." Fólkið sem stofnaði þetta félag var á aldrinum 16 til 22 ára og átti heima ofan frá Brú og suður að Krók. Loftlínan milli þessara bæja er um 15 km og þurftu þeir er áttu heima lengst frá fundarstöðunum að fara svipaðan veg. Oftast munu þeir hafa gengið. Svo sem fram kemur hjá Guðríði var lestrarfélag til í Eystritungunni, og annað hafði verið til í Ytritungunni (Inn til fjalla III. Bls 63), en þau störfuðu þannig að bækur voru keyptar og gengu síðan milli bæja. Glímufélagið Teitur virðist hafa verið eins og deild í Unglingafélaginu, en í því voru aðeins piltar. Málfundarfélag Ytritungunnar var stofnað um svipað leyti og Unglingafélagið. Litlum sögum fer af starfi þess, en fram kemur að þar hafi verið rætt um byggingu heimavistarbarnaskóla og hafði sóknarpresturinn, Eiríkur Þ. Stefánsson á Torfastöðum, verið framsögumaður, þá þrítugur. (Inn til fjalla III. Bls 79). Bæði af þessu umræðuefni, málshefjanda og nafni félagsins má ætla að þar hafi verið eldra fólk en í Unglingafélaginu og fjallað um raunhæf verkefni fremur en náttúruvísindi og skáld- sagnapersónur. A. K. 13 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.